Áfram ráðgjöf um engar loðnuveiðar

Rannsóknarskipið Árni Friðriksson.
Ljósm. Svanhildur Egilsdóttir Rannsóknarskipið Árni Friðriksson.
Ljósm. Svanhildur Egilsdóttir

Hafrannsóknastofnun leggur til að engar loðnuveiðar verði leyfðar fiskveiðiárið 2023/2024.

Þessi ráðgjöf er samhljóma fyrirliggjandi upphafsráðgjöf sem byggði á mælingum á ungloðnu haustið 2022. Ráðgjöfin verður endurmetin þegar niðurstöður bergmálsmælinga á stærð veiðistofnsins liggja fyrir í byrjun árs 2024.

Ráðgjöfin byggir á niðurstöðum bergmálsmælinga á loðnustofninum á rannsóknarskipunum Árna Friðrikssyni og Tarajoq á tímabilinu 23. ágúst til 23. september (mynd 1). 

Leiðangurinn er talinn hafa náð yfir útbreiðslusvæði stofnsins. Hafís takmarkaði yfirferð nyrst á rannsóknasvæðinu, en ekki er talið líklegt að loðna hafi verið á svæðinu sem var sleppt. Loðnan var nokkuð jafndreifð á svæðinu og mælingin hennar hafði fremur lágan breytistuðul.

Heildarmagn loðnu mældist tæp 697 þúsund tonn og þar af var stærð veiðistofns metin 325 þúsund tonn. Magn ókynþroska í fjölda var um 48 milljarðar en samkvæmt samþykktri aflareglu þarf yfir 50 milljarða til að mælt verði með upphafsaflamarki fiskveiðiársins 2024/2025.

Gögn um niðurstöður ungloðnumælinganna verða lögð fyrir Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) sem mun veita ráð um upphafsaflamark vertíðarinnar 2024/2025.

Mynd 1. Leiðangurslínur rs. Árna Friðrikssonar (rauðar) og rs. Tarajoq (bláar) í ágúst - september 2023 ásamt dreifingu loðnu samkvæmt bergmálsgildum.

Loðnuráðgjöfina má nálgast hér.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?