Sunnudaginn 31. júlí lauk mánaðarlöngum leiðangri r/s Árna Friðrikssonar sem hafði það megin markmið að meta magn og útbreiðslu makríls umhverfis Ísland.
05. ágúst 2016
Ný Hafrannsóknastofnun tekur til starfa
Þann 1. júlí tók til starfa Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna.
Stofnunin starfar samkvæmt lögum 112/2015 sem samþykkt voru á Alþingi í desembermánuði síðastliðnum. Stofnunin varð til við sameiningu Hafrannsóknastofnunar og Veiðimálastofnunar og tekur við öllum skyldum og hlutverkum þeirra stofnana. Forstjóri nýrrar stofnunar er Sigurður Guðjónsson.