Skipaskoðun, fiskasýning, fjörudýrasmiðja og fræðsla á sjómannadaginn

Þórunn Þórðardóttir við bryggju og höfuðstöðvar Hafrannsóknastofnunar að Fornubúðum 5, í Hafnarfirði… Þórunn Þórðardóttir við bryggju og höfuðstöðvar Hafrannsóknastofnunar að Fornubúðum 5, í Hafnarfirði. Ljósmynd: Dóra Magnúsdóttir

Hafrannsóknastofnun býður upp á einstaklega fjölbreytta og fræðandi dagskrá á sjómannadaginn, 7. júní n.k. sem hefst kl. 13.00 við höfuðstöðvar stofnunarinnar að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði.

Gestum og gangandi verður boðið um borð í nýtt rannsóknaskip stofnunarinnar, Þórunni Þórðardóttur HF 300 og hin klassíska fiskasýning Hafró verður á sínum stað. Inni verða fjölbreyttar smiðjur í tengslum við LIFE Icewater og MarineSABRES verkefnin þar sem háir og lágir geta tekið þátt í smiðjum og fræðst um hafrannsóknir og vistkerfi hafsins. 

Dagskrá Hafrannsóknastofnunar 7. júní 2026: 

Heimsókn um borð í Þórunni Þórðardóttur

13.00 – 15.00: Í fyrra tók Hafrannsóknastofnun og um leið Íslendingar allir, nýtt rannsóknaskip í notkun, og nú ætlar stofnunin að bjóða almenningi að skoða skipið. Þórunn Þórðardóttir HF 300 er fjölnota rannsóknaskip, hannað fyrir haf- og fiskirannsóknir á tempruðum svæðum og í heimskautasjó. Skipverjar og aðstoðarfólk taka vel á móti gestum.

Fiskasýning

13.00 – 16.00: Hin sívinsæla fiskasýning Hafró verður á sínum stað fyrir utan Fornubúðir 5. Starfsfólk Hafrannsóknastofnunar safnar og varðveitir nytjafiska en líka alls kyns furðufiska, og aðrar lífverur sjávar svo sem krossfiska og fleira í leiðöngrum sínum og sýnir þá á sjómannadaginn. Þá verður hægt að skoða og snerta fiska sem sjaldnast eru fólki sýnilegir. 

Fjörudýrasmiðja

13.00 – 15.00: Inni í húsi verður hægt að skapa og fræðast um lífríki hafs og fjöru. Náttúruminjasafn Íslands og Hafrannsóknastofnun bjóða uppá þrjár skapandi fjörudýrasmiðjur í fyrirlestrarsal á jarðhæð.

Hægt verður að kynnast lífríki fjörunnar og búa til origami krossfiska, ígulker úr ull og glitrandi skeljar og kuðunga.

Viðburðurinn er liður í viðburðadagskrá LIFE Icewater, sem er samstarfsverkefni vísindafólks, sveitarfélaga, fyrirtækja og stjórnvalda. Verkefnið er samfjármagnað af Evrópusambandinu. Markmiðið er að bæta vatnsgæði í ám, vötnum, sjó og grunnvatni um allt land. Markmið verkefnisins er að hjálpa okkur að hugsa betur um þá mikilvægu auðlind sem vatnið okkar er.

Fræðsla um rannsóknir hafsins

13.00 – 15.00: Áhugasamir gestir Hafrannsóknastofnunar geta fræðst um hlutverk hafrannsókna og dýpkað skilning sinn á verndun vistkerfa hafsins. Fræðslan er á vegum MarineSABRES verkefnisins sem leggur áherslu á að rannsaka hvernig athafnir manna og umhverfisbreytingar hafa áhrif á líffræðilegan fjölbreytileika í sjó og hvernig vísindi geta stutt sjálfbærari nýtingu hafsins.

Með gagnvirkri þátttöku fá gestir innsýn í störf sjávarlíffræðinga: hvernig gögnum er safnað, hvernig tegundir og vistkerfi eru rannsökuð og hvernig ólíkum upplýsingum er safnað saman til að mynda heildstæða mynd af hafinu.

Myndir á síðunni eru teknir á sjómannadögum við Hafrannsóknastofnun sl. ár. 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?