Eggert Benedikt Guðmundsson og Vilda Griūnienė frá Litháen, nýkjörnir varaforsetar ICES.
Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, var kjörinn einn af varaforsetum Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) á fulltrúaráðsfundi ráðsins í Kaupmannahöfn 21.–22. október. Þar með tekur hann sæti í sjö manna stjórn ráðsins (Bureau).
Á fundinum voru kjörnir þrír nýir varaforsetar. Auk Eggerts voru það Vilda Griūnienė frá Litháen og Geir Huse frá Noregi. Þau taka við af Önnu Rindorf frá Danmörku, Gerd Kraus frá Þýskalandi og Liisu Peramaki frá Kanada, sem hafa setið í stjórninni undanfarin þrjú ár. Forseti ICES er Carl O’Brien.
ICES er mikilvægur vettvangur alþjóðlegs samstarfs um hafrannsóknir og ráðgjöf um sjálfbæra nýtingu og verndun hafsins. Fulltrúar 19 aðildarríkja sitja í fulltrúaráðinu, tveir frá hverju ríki.
„Ráðið er lykilsamstarfsaðili Hafró og þess vegna er ég spenntur að fá að taka þátt í að móta framtíð þess, en ICES fagnar 125 ára afmæli með pomp og prakt á næsta ári,“ segir Eggert.

Fulltrúaráð ICES í móttöku hjá sendiherra Írlands í Danmörku, Kyle O’Sullivan.
Afmælisárið 2027 verður ný stefna ICES fyrir árin 2027–2032 kynnt. Það verður gert í tengslum við ársfund ráðsins (Annual Science Conference) í Kaupmannahöfn í september, sem verður hápunktur afmælishaldsins. Á fundinum samþykkti fulltrúaráðið einnig nýja gagnaáætlun ICES. Hún er fyrsta áætlunin sem samþykkt er á grundvelli nýju stefnunnar.
Nánar má lesa um fundinn í frétt ICES.