Vatnakerfi Blöndu 2015. Seiðarannsóknir, stangaveiði og göngufiskur

Nánari upplýsingar
Titill Vatnakerfi Blöndu 2015. Seiðarannsóknir, stangaveiði og göngufiskur
Lýsing

Í þessari skýrslu er að finna niðurstöður um seiðarannsóknir og stangaveiði í Blöndu og Svartá sumarið 2015, auk fiskgengdar um fiskteljara í Ennisflúðum. Einnig er gerð grein fyrir niðurstöðum mælinga á vatnshita í Blöndu. Þéttleiki og ástand seiða var kannað með rafveiðum í Blöndu og Svartá í lok ágúst. Laxaseiði veiddust á öllum stöðvunum í Blöndu og voru þau vorgömul til þriggja ára. Bleikju- og urriðaseiði veiddust á þremur stöðvum. Laxaseiði veiddust á öllum stöðvum í Svartá, auk bleikju- og urriðaseiða á fimm stöðvum. Vísitala þéttleika laxaseiða hefur haldist há í sögulegu samhengi í báðum ánum síðustu fjögur sumur. Alls veiddust 4.549 laxar (afli) í vatnakerfinu sumarið 2015. 

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Útgáfa Veiðimálastofnunar (1948-2016)
Útgáfuár 2016
Leitarorð Lax, bleikja, seiðarannsóknir, teljari, vatnshiti, veiði, Blanda, Svartá, Blöndulón, Ennisflúðir
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?