Fiskirannsóknir á vatnasvæði Þjórsár árið 2014

Nánari upplýsingar
Titill Fiskirannsóknir á vatnasvæði Þjórsár árið 2014
Lýsing

Í skýrslunni er gerð grein fyrir rannsóknum sem höfðu að meginmarkmiði að auka þekkingu á göngum laxfiska ásamt því að meta ástand fiskstofna á vatnasvæði Þjórsár. Tengjast þær m.a. mögulegum mótvægisaðgerðum vegna fyrirhugaðra virkjana í neðanverðri Þjórsá. Seiðabúskapur var vaktaður og fiskgöngur gegnum teljara við Búða og Kálfa kannaðar. Laxveiðin 2014 var samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum 2.569 laxar sem er næst lakasta veiðiárið frá 2003. Skv. stofnmati með merkingum laxaseiða og endurheimtum úr hafi var fjöldi gönguseiða í Kálfá vorið 2013 5.554 laxagönguseiði og 118.092 samtals af vatnasvæðinu öllu. Samtals gengu 7.532 náttúrulegir laxar úr hafi á vatnasvæðið 2014. Veiðihlutfallið í Þjórsá neðan við Kálfá var reiknað 20% fyrir smálax en 40% fyrir stórlax. Þéttleiki laxaseiða á fyrsta ári var yfir meðallagi og sérstaklega gott útlit fyrir sterkan gönguseiðastofn 2015. Góð laxgengd var um teljarann við Búða, sem samtals taldi 1.081 laxa og 1.393 silunga (frádregnir fiskar sem gengu niður), er það besta laxgengd þar til þessa.

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Útgáfa Veiðimálastofnunar (1948-2016)
Útgáfuár 2015
Leitarorð lax, urriði, bleikja, seiðarannsóknir, búsvæðamat, göngur, aldur, virkjanir, Þjórsá
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?