Ágrip
Laxveiðin á vatnasvæði Hörðudalsá 2025 var 44 fiskar sem er 11,4% undir meðalveiði. Hlutur stórlaxa af heildarveiðinni var 27,3%. Hrygnur voru í meirihluta smálaxa en hængar í meirihluta stórlaxa. Þriðjungi stórlaxa var sleppt en litlum hluta smálaxa. Bleikjuveiðin taldi 50 fiska og var einungis um 20% af meðalveiði. Meirihlutinn var hrygnur og litlum hluta var sleppt. Tveir hnúðlaxar veiddust. Maðkur var algengasta agnið í stangveiðinni, bæði fyrir lax og bleiku. Innan við þriðjungur laxa var veiddur á flugu en tæplega helmingur bleikja.
Hreistursýni af löxum voru aldursgeind af fjórðungi veiðinnar og var ferskvatnsaldur þeirra á bilinu þrjú til fimm ár, komnir úr klakárgöngum 2018 – 2021. Hlutdeild laxa á endurtekinni hrygningu var 45,5%, allir úr smálaxagöngu 2024. Tveggja ára laxar úr sjó og laxar á endurtekinni hrygningargöngu virðast hafa vegið upp á móti lítilli smálaxagöngu á vatnasvæði Hörðudsalsár 2025.
Aldursgeind sýni af bleikju námu 14,0% af heildarveiði og var ferskvatnsdvöl fyrir fyrstu sjógöngu tvö til þrjú ár. Allar bleikjurnar utan ein höfðu gengið í tvígang til sjávar en aldur bleikjanna var frá 3 – 5 ára, komnar úr klaki áranna 2020 – 2022.
Í seiðamælingum á viðmiðunarstöðvum veiddust 65 laxaseiði (0+ og 1+), 42 bleikjuseiði (0+ og 1+), tvö flundruseiði auk fimm hornsíla. Meðallengd 0+ seiðanna var 0,5 cm yfir langtímameðaltali en 1+ seiðin voru jöfn meðaltali. Meðallengd 0+ bleikjuseiðanna var undir meðaltali en 1+ seiðin voru jöfn meðaltali.
Seiðavísitala laxaseiðanna (0+ og 1+) var langt undir langtímameðaltali en vísitala sumargömlu (0+) bleikjuseiðanna var þriðjungi hærri en meðaltalið og vísitala veturgömlu (1+) bleikjuseiðanna var um helmingur af meðaltali. Flutningur á lifandi hrygningarfiski upp á efra svæði Laugár haustið 2023 og 2024 skilaði sýnilegum árangri og veiddust þar 17 laxaseiði (0+ og 1+) og að auki 9 bleikjuseiði (0+).
Í ljósi lítils þéttleika laxaseiða er lagt til að eingöngu verði leyfð fluguveiði og að skylt verði að sleppa öllum laxi á vatnasvæði Hörðudalsár. Lagt er til að haldið verði áfram með flutning fiska upp á efra svæði Laugár. |