Vöktun á laxfiskastofnum Norðfjarðarár í kjölfar efnistöku Áfangaskýrsla 2025

Nánari upplýsingar
Titill Vöktun á laxfiskastofnum Norðfjarðarár í kjölfar efnistöku Áfangaskýrsla 2025
Lýsing

Ágrip

Hafrannsóknastofnun hefur vaktað framvindu á laxfiskastofnum í Norðfjarðará í kjölfar efnistöku sem framkvæmd var í ánni fram til ársins 2017. Við undirritum samnings milli Vegagerðarinnar og Hafrannsóknastofnunar var ætlunin að vakta Norðfjarðará til ársins 2021 með möguleika á áframhaldandi vöktun til 2026 ef niðurstöður bentu til að áhrif efnistöku væru ekki að fullu komin fram. Vöktunin hefur nú staðið yfir í níu ár (2017 - 2025). Í þessari áfangaskýrslu verður niðurstöðum mælinga 2024 og 2025 gerð skil ásamt samantekt á gögnum frá árinu 2017-2025. Í árlegum seiðamælingum fundust þrír árgangar bleikjuseiða, frá vorgömlum upp í tveggja ára seiði, og fundust seiði á öllum sjö stöðunum sem skoðaðir voru. Einnig fundust fjórir aldurshópar laxaseiða sem gefur til kynna að lax er farinn að hrygna þar árlega. Vísitala á seiðaþéttleika bleikju var mest árið 2019 en lítill þéttleiki var árin 2020 og 2021. Síðustu fjögur ár hefur vísitalan farið hækkandi og mælist yfir langtíma meðaltali. Ekki hefur mælst marktækur munur á holdastuðli, meðallengd og meðalþyngd bleikjuseiða á milli ára. Veiðinni í Norðfjarðará hefur hrakað frá 2016 og árið 2024 var veiðin 359 bleikjur. Árið 2025 var minnsta skráða veiði bleikju frá því tölur fóru að berast Hafrannsóknastofnun, aðeins 254 bleikjur. Það er ætlun Hafrannsóknastofnunar að klára vöktun út árið 2026 og ljúka þar með tíu ára vöktun í kjölfar efnistöku. Í lok rannsóknatímabilsins verða öll gögn tekin saman og metið hvort áhrif í kjölfar efnistöku séu komin fram ásamt því að meta þörf fyrir áframhaldandi vöktun.

Abstract

The Marine and Freshwater Research Institute (MFRI) has been monitoring the salmonid populations and environmental factors in River Norðfjarðará since 2017 following extensive quarrying in the river. The project has been carried out for nine years and in this report the results of the 2024 and 2025 salmonid juvenile survey are analyzed. Three year-classes of Arctic charr, from newly hatched fry to two-year-old parr, were found in the survey and on all sampling stations. The numbers of newly hatched juveniles were similar to previous surveys. No significant difference has been recorded in mean length, weight and condition factor of juvenile charr between years. Four year-classes of Atlantic salmon juveniles were recorded in the year 2025 and numbers indicate a general increase in salmon spawning in the river. Number of charr caught in the rod fisheries in River Norðfjarðará has decreased substantially since the year 2016. A record low number of charr caught in rod fisheries in River Norðfjarðará was in 2025, only 254. The MFRI intends to finish the last sampling year of the ten-year proposed survey period in 2026. At the end of the ten-year survey period the data will be analysed and a decision on whether there is a need to continue the survey will be made.

 

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Haf- og vatnarannsóknir (2016-)
Útgáfurit Haf- og vatnarannsóknir
Útgáfuár 2026
Tölublað 9
Blaðsíður 37
Útgefandi Hafrannsóknastofnun
ISSN 2298-9137
Leitarorð Norðfjarðará, efnistaka, seiðarannsóknir, bleikjuseiði, laxaseiði, stangveiði, Austurland, , quarrying, juvenile survey, arctic char, atlantic salmon, rod fishery
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?