Vatnasvæði Laxár í Leirársveit 2025. Vöktun á stofnum laxfiska.

Nánari upplýsingar
Titill Vatnasvæði Laxár í Leirársveit 2025. Vöktun á stofnum laxfiska.
Lýsing

Ágrip

Á vatnasvæði Laxár í Leirársveit (Laxá, Þverá og Selós) veiddust samtals 525 smálaxar, 122 stórlaxar, 267 urriðar, sex bleikjur og þrír hnúðlaxar. Öllum stórlöxum var sleppt úr veiðinni og stórum hluta smálaxa (74,7%). Hrygnur voru í minnihluta, bæði hjá smálöxum (42,1%) og stórlöxum (41,0%). Rúmlega helmingi urriða var sleppt (50,9%). Laxveiðin í Laxá 2025 (megináin) dróst saman um 30% á milli ára og var 36,3% undir meðalveiði og er þetta tíunda árið í röð sem veiðin er undir meðaltalveiði. Veiði á urriða í Laxá 2025 meira en tvöfaldaðist á milli ára og var 44,6% yfir meðalveiði og er þetta mesta veiði á urriða í ánni á 20 ára tímabili.

Ganga laxfiska um myndavélarteljarann í Eyrarfossi var skráð frá 20. júní − 6. október og var nettó ganga upp fyrir teljarann 1.813 urriðar, 720 smálaxar og 157 stórlaxar. Þetta er stærsta ganga, bæði hjá urriða og laxi, sem skráð hefur verið frá því teljarinn var tekinn í notkun 2020. Helmingur urriðanna gekk í júlí og ríflega þriðjungur í ágúst. Af heildargöngu smálaxa var gangan mest í júlí og drjúg í ágúst. Stórlaxar gengu að megninu til í júlí. Veiðihlutfall á laxi og urriða ofan teljarans í Eyrarfossi var undir meðaltali (2020 – 2025), þ.e. 5,3% á urriða en 20% á laxi. Reiknaður hrognafjöldi á svæðinu ofan við Eyrarfoss var 2,53 milljónir hrogna (23,3 hrogn/m2) og er sá mesti sem reiknaður hefur verið frá árinu 2020 og var hlutfall stórlaxahrogna af heildarfjöldanum 26,6%.

Seiðavísitala 0+ og 1+ laxaseiða var í báðum tilfellum lítillega lægri en meðaltalið (1993 – 2025) og vísitala 2+ seiðanna var langt undir meðaltali. Lítill þéttleiki mælist jafnan af 3+ laxaseiðum á vatnasvæðinu. Seiðavísitala 0+ urriðaseiða var lítillega undir meðaltali og vísitala 1+ seiðanna var lítillega yfir meðaltali. Lítill þéttleiki mælist jafnan af eldri urriðaseiðum á vatnasvæðinu. Meðallengd 0+ og 2+ laxaseiða var lítillega meiri en meðaltal áranna 1993 – 2025 en 1+ seiðin voru 0,2 cm undir meðaltali og elstu seiðin (3+) voru 0,6 cm yfir meðaltali. Yngstu urriðaseiðin (0+) voru lítillega yfir meðaltali og 1+ seiðin voru jöfn meðaltalinu.

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Haf- og vatnarannsóknir (2016-)
Útgáfurit Haf- og vatnarannsóknir
Útgáfuár 2026
Tölublað 08
Blaðsíður 30
Útgefandi Hafrannsóknastofnun
ISSN 2298-9137
Leitarorð Laxá, Selós, Þverá, stangveiði, lax, urriði, sjóbirtingur, seiðamæling, hrognafjöldi, vatnshiti, veiðiskráning, veiðihlutfall, fisktalning, myndavélateljari
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?