Þverá í Borgarfirði 2025 - Vöktun á stofnum laxfiska

Nánari upplýsingar
Titill Þverá í Borgarfirði 2025 - Vöktun á stofnum laxfiska
Lýsing

Ágrip

Á vatnasvæði Þverár í Borgarfirði 2025 (Kjarará, Þverá og Litla Þverá) veiddist 1.871 lax sem er 16,5% minni veiði en árið 2024 og 4,0% undir meðalveiði tímabilsins 1974 – 2024. Meirihluta laxa var sleppt (81,1%) og af kyngreindum löxum voru hrygnur í minnihluta, bæði hjá smálöxum (27,3%) og stórlöxum (43,0%). Fjöldi urriða/sjóbirtinga í stangveiðinni var 140 og var veiðin 8,9% yfir meðaltali tímabilsins 1987 – 2024 en einnig veiddust þrjár bleikjur.

Hreistri úr laxveiðinni á vatnasvæði Þverár var eingöngu safnað í ánni Þverá og var fjöldi sýna 64 (3,4% af heildarveiði). Öll sýnin utan eitt voru af löxum á sinni fyrstu hrygningargöngu og voru sex sýni (9,4%) rakin til laxa af eldisuppruna (1 ár í ferskvatni) en á árunum 2022 – 2024 var 30.000 gönguseiðum sleppt ár hvert í Þverá. Meirihluti sýna (90,6%) voru af löxum af náttúrulegu klaki árinnar, með ferskvatnsaldur á bilinu þrjú til fimm ár. Niðurstöður aldursgreininga á hreistri umreiknaðar á veiðina 2025 bentu til þess að 131 smálax ætti uppruna úr sleppingum gönguseiða 2024 og 66 stórlaxar úr sleppingum gönguseiða 2023 og er þetta 10,5% af heildarveiði á laxi. Reiknaðar endurheimtur úr gönguseiðasleppingum 2022 voru 0,35% en 0,98% úr sleppingunum frá 2023.

Í seiðamælingum á vatnasvæði Þverár veiddust 750 laxaseiði af fimm aldurshópum (0+ - 4+), 104 urriðaseiði af fjórum aldurshópum (0+ - 3+), eitt veturgamalt (1+) bleikjuseiði og eitt hornsíli. Nokkur breytileiki var á meðallengdum aldurshópanna milli ársvæða. Samanlögð seiðavísitala (meðaltal stöðva) allra aldurshópa laxaseiða var 31,7/100 m2 sem er 21,6% undir meðaltali (1996 – 2025; 40,4/100 m2). Vísitala sumargömlu laxaseiðanna (0+) 2025 var 10,6% undir meðaltali en svipuð vísitölu sama aldurshóps 2024. Vísitala veturgömlu (1+) seiðanna var hátt í helmingi minni (8,1/100 m2) en meðaltalið og er sú minnsta sem mælst hefur frá 2008. Tveggja vetra seiðin (2+) voru um 9,0% undir meðaltali en vísitala þriggja vetra seiðanna (3+) var vel yfir meðaltali (21,6%).

Samanlögð seiðavísitala allra aldurshópa urriðaseiða á vatnasvæði Þverár var 4,0/100 m2 og var hún yfir meðaltali (1996 – 2025; 3,4/100 m2) .

Mánaðarmeðaltöl vatnshita á árinu 2025 voru í öllum tilfellum, að janúar og júní undanskildum, yfir langtímameðaltali mánaða (2001 – 2025).

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Haf- og vatnarannsóknir (2016-)
Útgáfurit Haf- og vatnarannsóknir
Útgáfuár 2026
Tölublað 21
Blaðsíður 24
Útgefandi Hafrannsóknastofnun
ISSN 2298-9137
Leitarorð lax, urriði, bleikja, seiðarannsóknir, hreisturrannsóknir, Kjarará, Þverá, Litla Þverá,
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?