Þéttleiki og stærð urriðaseiða í vatnsföllum við Hraunsfjarðarvatn og Baulárvallavatn árið 2021. HV 2022-15

Nánari upplýsingar
Titill Þéttleiki og stærð urriðaseiða í vatnsföllum við Hraunsfjarðarvatn og Baulárvallavatn árið 2021. HV 2022-15
Lýsing

Reglulegar rannsóknir hafa farið fram á urriðastofnum Hraunsfjarðarvatns og Baulárvallavatns frá því Múlavirkjun tók til starfa árið 2005. Markmið þeirra rannsókna er að meta áhrif virkjunarinnar á urriðastofna vatnanna. Í þessari skýrslu er gerð grein fyrir ástandi urriðaseiða í lækjum og ám við vötnin árið 2021. Vísitala þéttleika 0+ og 2+ urriðaseiða í vatnsföllum við Baulárvallavatn var yfir langtíma meðaltali árið 2021 en vísitala þéttleika 1+ urriðaseiða var rétt undir meðaltali. Þéttleiki 0+ urriðaseiða í Fosslæk við Hraunsfjarðarvatn var yfir meðaltali en þéttleiki 1+ og 2+ urriðaseiða var þar undir meðaltali. Vísitala þéttleika urriðaseiða hefur verið mjög breytileg eftir vatnsföllum og árum en almennt má segja að vísitalan í vatnsföllum við Baulárvallavatn hafi vaxið til ársins 2011 þegar hún náði hámarki en síðan farið lækkandi til áranna 2015, 2016 og 2017 þegar vísitala á seiðaþéttleika var mjög lág í vatnsföllum við Baulárvallavatn.

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Haf- og vatnarannsóknir (2016-)
Útgáfurit Haf- og vatnarannsóknir
Útgáfuár 2022
Blaðsíður 11
Útgefandi Hafrannsóknastofnun
Leitarorð Urriði, Salmo trutta, Baulárvallavatn, Hraunsfjarðarvatn, rafveiði, Múlavirkjun, vatnsmiðlun
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?