Stofnmæling hrygningarþorsks með þorskanetum (SMN) 2025 – framkvæmd og helstu niðurstöður

Nánari upplýsingar
Titill Stofnmæling hrygningarþorsks með þorskanetum (SMN) 2025 – framkvæmd og helstu niðurstöður
Lýsing

Ágrip

Farið er yfir framkvæmd og helstu niðurstöður stofnmælingar hrygningarþorsks með þorskanetum (SMN, netarall) sem fór fram í 30. sinn dagana 27. mars til 22. apríl 2025. Í skýrslunni eru auk þess sýndar lífmassavísitölur helstu fisktegunda er fást í netaralli, ásamt útbreiðslu háfiska, krabba, sjófugla og sjávarspendýra.

Stofnvísitala hrygningarþorsks við Ísland hefur verið há í um hálfan annan áratug og hækkar nú á ný eftir lækkun síðustu tvö. Hækkun stofnvísitölu í ár má að mestu rekja til þess að vísitala hækkar aftur í Breiðafirði og Faxaflóa eftir lækkun árin þar á undan. Þorskur 7-9 ára er algengastur í netaralli og í ár fékkst mest af 8 ára þorski.

Ástand hrygningarþorsks er undir meðaltali samanburðartímabilsins á flestum svæðum. Breytingar frá fyrra ári eru þó óverulegar eftir samdrátt síðustu ára. Bæði slægð þyngd og lifrarþyngd hafa dregist saman á síðustu árum á fjölmörgum svæðum, einkum við Suðausturland og Norðurland. Lakara líkamsástand þorsks að undanförnu gæti verið tengt skertu aðgengi að loðnu sem fæðu í aðdraganda hrygningar.

Stofnvísitala ufsa hækkar mikið í ár og er svipuð og árið 2019 sem var sú hæsta til þessa. Mikil aukning var á ufsa á Selvogsbanka og má að mestu rekja hækkun vísitölu til þess svæðis, en breytingar voru minni á öðrum svæðum.

Af breytingum á stofnvísitölum annarra fisktegunda í netaralli má helst nefna að vísitala ýsu hefur verið há síðustu níu ár. Vísitala löngu er sú hæsta sem mælst hefur í netaralli og vísitölur, keilu, lúðu og skarkola hafa verið háar undanfarin ár.

Abstract

This report describes the implementation and main results of the gillnet survey of spawning cod in Icelandic waters (SMN) carried out for the 30th time between 27 March and 22 April 2025. In addition, this report presents biomass indices for the main fish species caught in the gillnet survey, along with information on the distribution of sharks, crabs, seabirds, and marine mammals

The biomass index of spawning cod in Iceland has been high for a decade and a half, and increased this year after having decreased in the two previous years. The increase in the biomass index this year is mostly due to higher catches in Breiðafjörður and Faxaflói after a decrease in the two previous years. Most cod caught in the survey are usually 7-9 years old, and this year 8-year-old fish were the most common.

Condition of cod was below the mean for the period 1996-2025 in most areas, but there have been relatively little changes in the condition of cod since last year after a decline in previous years. Notably, the gutted weight and liver weight have significantly decreased in recent years in many regions, especially in the Southeast and the North. This decline in condition is possibly due to the reduced availability of capelin as food leading up to the spawning period.

Biomass index of saithe in the gillnet survey increased significantly this year and is similar to the peak in 2019. T his increase in saithe can largely be attributed higher catches at the Southwest Bank, while changes in other areas were relatively minor .

The biomass index of

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Haf- og vatnarannsóknir (2016-)
Útgáfurit Haf- og vatnarannsóknir
Útgáfuár 2025
Tölublað 29
Blaðsíður 25
Útgefandi Hafrannsóknastofnun
ISSN 2298-9137
Leitarorð Stofnmæling, stofnvísitölur, net, þorskur, ýsa, ufsi, botnfiskar, vöxtur, kynþroski, hrygning, hrygningarstofn, háfiskar, krabbar, sjófuglar, sjávarspendýr,
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?