Silungurinn í Mývatni ‐ Yfirlit yfir rannsóknir og veiðitölur 1986 ‐ 2018. HV 2019-48

Nánari upplýsingar
Titill Silungurinn í Mývatni ‐ Yfirlit yfir rannsóknir og veiðitölur 1986 ‐ 2018. HV 2019-48
Lýsing

Sveiflur eru þekktar í lífríki Mývatns og frá 1986 hafa komið tvö hrun í bleikjustofninn, hið fyrra 1988 og það síðara 1997. Eftir 1997 sýna bæði mælingar á bleikjustofninum og afli að stofninn var orðinn mjög lítill og skýr merki um að sú veiðisókn sem var stunduð væri meiri en stofninn stæði undir. Ráðleggingar til Veiðifélags Mývatns hafa, frá árinu 2000, verið að draga sem allra mest úr veiðisókn í Mývatni, þar sem bleikjustofninn er orðinn lítill, veiðiálag hátt og sterkar vísbendingar um að hrygning sé takmarkandi þáttur fyrir stærð bleikjustofnsins og þar með afla. Á árunum 2011 ‐ 2018 hafa verið miklar takmarkanir á veiði í Mývatni, sem er í samræmi við nýtingaráætlun Veiðifélags Mývatns sem staðfest hefur verið af Fiskistofu.

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Guðni Guðbergsson
Flokkun
Flokkur Haf- og vatnarannsóknir (2016-)
Útgáfuár 2019
Blaðsíður 41
Leitarorð Bleikja, urriði, veiði, vöktun
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?