Silungurinn í Mývatni ‐ Yfirlit yfir rannsóknir og veiðitölur 1986 ‐ 2017. HV 2018-32

Nánari upplýsingar
Titill Silungurinn í Mývatni ‐ Yfirlit yfir rannsóknir og veiðitölur 1986 ‐ 2017. HV 2018-32
Lýsing

Á undangengnum árum hafa komið fram sveiflur í lífríki Mývatns. Frá 1986 hafa komið tvö hrun í bleikjustofninn, hið fyrra 1988 og það síðara 1997. Eftir 1997 sýna bæði mælingar á bleikjustofninum og afli að stofninn var orðinn mjög lítill. Ráðleggingar til Veiðifélags Mývatns
hafa, frá árinu 2000, verið að draga sem allra mest úr veiðisókn í Mývatni, þar sem bleikjustofninn er orðinn lítill, veiðiálag hátt og sterkar vísbendingar um að hrygning sé takmarkandi þáttur fyrir stærð bleikjustofnsins og þar með afla. Á árunum 2011‐2017 voru miklar takmarkanir á veiði í Mývatni, samkvæmt nýtingaráætlun Veiðifélags Mývatns sem staðfest hefur verið af Fiskistofu.

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Guðni Guðbergsson
Flokkun
Flokkur Haf- og vatnarannsóknir (2016-)
Útgáfuár 2018
Leitarorð bleikja, urriði, veiði, vöktun
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?