Seiðaástand og stangveiði í Vatnsdalsá 2023 og 2024

Nánari upplýsingar
Titill Seiðaástand og stangveiði í Vatnsdalsá 2023 og 2024
Lýsing

Ágrip

Í þessari skýrslu er gerð grein fyrir niðurstöðum seiðarannsókna og stangveiði í Vatnsdalsá árin 2023 og 2024, auk mælinga á vatnshita. Þéttleiki og ástand seiða var kannað með rafveiðum í Vatnsdalsá í lok ágúst bæði árin. Laxaseiði veiddust á öllum stöðvum í Vatnsdalsá árin 2023 og 2024 og einnig í Tunguá og Álku. Seiðavísitala var almennt um eða undir langtímameðaltali en mikill breytileiki er í þéttleika laxaseiða milli ára, sérstaklega hjá 0+ og 1+ en sveiflur hafa verið minni hjá eldri seiðum. Vísitala þéttleika laxaseiða var mjög há árin 2015 – 2018 en síðan þá hefur vísitalan almennt lækkað.

Nær eingöngu veiðast vorgömul bleikjuseiði og flest þeirra á stöðvum á svæðinu frá Álku niður að Hofi. Frá árinu 2014 hefur vísitala þéttleika bleikjuseiða verið stöðug á milli 2 og 4 seiði/100m2. Vísitala þéttleika urriðaseiða hefur verið há frá árinu 2011 en fyrir þann tíma veiddust fá urriðaseiði í Vatnsdalsá. Árið 2023 var vísitala þéttleika urriðaseiða rétt yfir meðaltali áranna 1998 – 2024 en árið 2024 lækkaði vísitalan um 30%. Urriðaseiði veiðast að jafnaði á öllum svæðum nema í Álku.

Sumarið 2023 veiddust 442 laxar í Vatnsdalsá og var hlutfall stórlaxa (2 ár í sjó) 42%. Sumarið 2024 veiddust 683 laxar og var hlutfall stórlaxa 25%. Yfir 90% af öllum veiddum laxi í Vatnsdalsá er sleppt aftur eftir veiði og þar af er nánast öllum hrygnum sleppt. Árið 2023 var fjöldi veiddra laxa nálægt 50% undir meðaltali áranna frá 1974 en árið 2024 um 21% undir meðalveiði. Laxveiði í Vatnsdalsá hefur verið undir langtímameðaltali síðustu átta ár og svipuð niðursveifla á sér stað í öðrum laxveiðiám í Húnavatnssýslum. Í Vatnsdalsá veiddust 1.969 urriðar árið 2023 og 1.824 urriðar árið 2024 sem bæði árin var talsvert yfir 1.202 urriða meðalveiði tímabilsins frá 1987. Árið 2023 veiddust 601 bleikja í Vatnsdalsá og árið 2024 veiddust 521 bleikja sem er undir 1.215 bleikju meðalveiði tímabilsins frá 1987. Bleikjuveiði hefur dregist saman frá árinu 2005 en á sama tíma hefur fjöldi veiddra urriða aukist.

Vatnshiti í Vatnsdalsá var mældur við Skriðuvað og Álku með síritandi hitamæli. Vatnshiti árið 2023 var alla mánuðina frá apríl til ágúst yfir meðalhita áranna 2013 – 2019 fyrir utan júlí sem var undir meðalhita. Árið 2024 var meðalvatnshiti talsvert undir meðalhita alla mánuði frá mars til ágúst. Mánuðina apríl til október var meðalvatnshiti í Álku nálægt 2°C undir hitastigi Vatnsdalsár við Skriðuvað.

Lykilorð: lax, bleikja, urriði, seiðarannsóknir, stangveiði, vatnshiti, Vatnsdalsá, hreistur.

Abstract

This report presents the results of juvenile fish surveys and rod fishing in river Vatnsdalsá during 2024 and 2025, along with water temperature measurements. The density and condition of juveniles were examined using electrofishing in late August both years. Salmon juveniles were caught at all sampling stations in Vatnsdalsá, as well as in river Tunguá and river Álka. In general, the juvenile density index was at or below the long‑term average in 2023 and 2024. There was considerable variability in salmon juvenile density between years, especially among age groups 0+ and 1+, while fluctuations have been smaller among older juveniles. The density index of salmon juveniles was very high in the period 2015–2018, but since then the index has generally declined.

Almost exclusively 0+ char juveniles are caught, most of them at stations in the area from Álka down to Hof. The density index of Arctic char juveniles has remained stable between 2 and 4 juveniles per 100 m² since 2014. The density index of brown trout juveniles has been high from around 2011 onwards, whereas before that time few trout juveniles were caught in Vatnsdalsá. In 2023 the density index of trout juveniles was just above the average of the years 1998–2024, but in 2024 the index decreased by 30%. Trout juveniles are generally caught at all stations, except in Álka.

In summer 2023, 442 salmon were caught in Vatnsdalsá, with the proportion of two sea‑winters(2SW) salmon at 42%. In summer 2024, 683 salmon were caught, with the proportion of 2SW salmon at 25%. Over 90% of all salmon caught in Vatnsdalsá are released after capture (catch and release), and almost all females are released. In 2023 the number of salmon caught was about 50% below the average catch from 1974, and in 2024 about 21% below the average. Salmon catches in Vatnsdalsá have been below a long‑term average for the past eight years, following the same downward trend as seen in other salmon rivers in Húnavatnssýslur.

In Vatnsdalsá, 1,969 trout were caught in 2023 and 1,824 trout in 2024, both years well above the average of 1,202 trout for the period since 1987. In 2023, 601 char were caught in Vatnsdalsá and 521 char in 2024, both below the average of 1,215 char for the period since 1987. While char catches have declined since 2005, trout catches have increased.

Water temperature was measured with data loggers in river Vatnsdalsá at Skriðuvað and in river Álka. In 2023, water temperature was above the long-term average 2013–2019 for all months from April to August, except July which was below average. In 2024, average water temperature was considerably below the long‑term average for all months from March to August. Mean water temperature from April to October in river Álka is generally about 2°C lower than at Skriðuvað in Vatnsdalsá.

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Haf- og vatnarannsóknir (2016-)
Útgáfurit Haf- og vatnarannsóknir
Útgáfuár 2026
Tölublað 42
Blaðsíður 30
Útgefandi Hafrannsóknastofnun
ISSN 2298-9137
Leitarorð lax, bleikja, urriði, seiðarannsóknir, stangveiði, vatnshiti, Vatnsdalsá, hreistur, Atlantic salmon, Arctic charr, Brown trout, salmon juveniles, rod-catch, water temperature, River Vatnsdalsá, scales.
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?