Reykjadalsá og Eyvindarlækur í S-Þingeyjarsýslu. Seiðabúskapur og veiði 2020. HV 2021-44

Nánari upplýsingar
Titill Reykjadalsá og Eyvindarlækur í S-Þingeyjarsýslu. Seiðabúskapur og veiði 2020. HV 2021-44
Lýsing

Frá árinu 2009 hafa seiðamælingar verið gerðar í Reykjadalsá. Um er að ræða vöktunarrannsóknir sem miða að því að fylgjast með seiðaþéttleika og árgangastyrk lax og urriða í vatnakerfinu, nýtingu stofnanna og áhrifum hennar á stofnana.

Við mat á seiðaþéttleika og tegundasamsetningu seiða voru alls rafveiddir 317 m2 í Reykjadalsá og 125 m2 í Seljadalsá. Alls veiddust 127 laxaseiði og 166 urriðaseiði í Reykjadalsá. Í Seljadalsá veiddust 22 laxaseiði og 65 urriðaseiði. Í Reykjadalsá var þéttleiki laxa á hverja 100 m2 lægstur við Laugar, 31,4 seiði á hverja 100m2 en hæstur við Hallbjarnarstaði 62,6. Lítill munur var á lengd þyngd og holdastuðli laxa og urriða seiða á milli svæða.

 

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Guðni Guðbergsson
Flokkun
Flokkur Haf- og vatnarannsóknir (2016-)
Útgáfurit Haf- og vatnarannsóknir
Útgáfuár 2021
Blaðsíður 27
Útgefandi Hafrannsóknastofnun
Leitarorð Seiðaþéttleiki, ástand seiða, veiði, stærð hrygningarstofns, hrognafjöldi
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?