Rannsóknir á urriðastofnum Hraunsfjarðarvatns og Baulárvallavatns árið 2025
| Nánari upplýsingar |
| Titill |
Rannsóknir á urriðastofnum Hraunsfjarðarvatns og Baulárvallavatns árið 2025 |
| Lýsing |
Ágrip
Múlavirkjun hóf framleiðslu rafmagns í nóvember 2005. Vegna byggingar og reksturs virkjunarinnar hafa farið fram rannsóknir á urriðastofnum Baulárvallavatns og Hraunsfjarðarvatns frá árinu 2003. Í þessari skýrslu er gerð grein fyrir niðurstöðum rannsóknar á urriðastofnum vatnanna árið 2025. Rannsóknin náði bæði til urriðaseiða í vatnsföllum við vötnin ásamt urriða í sjálfum vötnunum. Mat á fjölda urriða í vötnunum, mælt sem afli á sóknareiningu, var 7,7 urriðar í báðum vötnunum. Þetta var aðeins undir langtíma meðalafla á sóknareiningu í Baulárvallavatni (9,6 urriðar) og í Hraunsfjarðarvatni ( 8,6 urriðar). Í Hraunsfjarðarvatni jókst afli á sóknareiningu mikið á milli áranna 2003 til 2008 en hefur verið nokkuð stöðugur á milli 7,3 og 10,4 urriðar síðan. Í Baulárvallavatni hefur afli verið stöðugur á milli 7,4 og 10,7 urriðar frá upphafi rannsóknatímans. Lengdar og aldursdreifing urriða í vötnunum hefur ekki tekið miklum breytingum yfir rannsóknatímann og niðurstöður benda ekki til að brestur hafi orðið í hrygningu og nýliðun. Samkvæmt niðurstöðum rafveiða var vísitala þéttleika urriðaseiða í Fosslæk við Hraunsfjarðarvatn árið 2025 talsvert yfir langtímameðaltali fyrir bæði 0+ og 1+ urriðaseiði. Vísitala þéttleika urriðaseiða í vatnsföllum við Baulárvallavatn var rétt yfir langtímameðaltali. Þar var vísitala 0+ seiða yfir langtímameðaltali en 1+ var undir meðaltali. Miklar sveiflur hafa verið í vísitölu þéttleika og aldurssamsetningu urriðaseiða í vatnsföllum við bæði vötnin yfir rannsóknatímann. Niðurstöður rannsókna benda ekki til að breytingar hafi orðið á fjölda, vexti og aldurssamsetningu urriða umfram það sem viðbúið er við náttúrulegar aðstæður . |
| Skráarviðhengi |
Ná í viðhengi |
| Flokkun |
| Flokkur |
Haf- og vatnarannsóknir (2016-) |
| Útgáfurit |
Haf- og vatnarannsóknir |
| Útgáfuár |
2026 |
| Tölublað |
16 |
| Blaðsíður |
17 |
| Útgefandi |
Hafrannsóknastofnun |
| ISSN |
2298-9137 |
| Leitarorð |
Urriði, Salmo trutta, Baulárvallavatn, Hraunsfjarðarvatn, Múlavirkjun, netaveiði, rafveiði. |
Takk fyrir! Ábending þín er móttekin