Lýsing |
Ágrip
Farið var í seiðarannsóknir í Vesturdalsá og Selá í Vopnafirði, Miðfjarðará í Bakkaflóa og Hölkná, Sandá, og Svalbarðsá í Þistilfirði. Seiðarannsóknir samanstanda af greiningu á þéttleika eftir árgöngum, meðallengd, meðalþyngd og holdastuðli. Gönguseiðagildru var komið fyrir í Vesturdalsá, þar sem gönguseiði voru mæld og hluti þeirra merkt áður en þeim var sleppt. Teljarar voru staðsettir í Vesturdalsá, Miðfjarðará og Selá. Lestur og greining var framkvæmd á hreistri sem barst úr Miðfjarðará og Selá. Samantekt á upplýsingum úr veiðibókum var gerð fyrir fyrrnefnd vatnsföll sem og fyrir Hölkná í Bakkaflóa og Hafralónsá í Þistilfirði. Hitamælingar voru gerðar í hluta af ánum.
Abstract
Juvenile surveys were carried out in River Vesturdalsá, and River Selá in Vopnafjörður, RIver Miðfjarðará in Bakkaflói, and River Hölkná, River Sandá and River Svalbarðsá in Þistilfjörður. The research included an estimation of density for each age group, and calculation of average length, weight and condition. Smolt trap was installed in River Vesturdalsá, where smolts were aged and measured and a sample was tagged before being released. Fish counters were operating in River Vesturdalsá, River Miðfjarðará, and River Selá. Scales of adult salmon were analyzed from samples that were taken in River Miðfjarðará and River Selá. Summary of the catch statistics were made from fishing logs in the rivers above as well as in River Hölkná in Bakkaflói and River Hafralónsá in Þistilfjörður. Temperature was measured with data loggers in part of the rivers. |