| Lýsing |
Ágrip
Rannsókn á útbreiðslu, þéttleika, árgangaskipan og stærð seiða fór fram á átta stöðvum í Svarfaðardalsá og hliðarám hennar (Skíðadalsá, Þverá, Holtsá) 22.–23. ágúst 2025. Niðurstöður voru bornar saman við sambærilegar rannsóknir frá 1992–1995 og 1976, auk þess sem þróun í stangveiði á bleikju og urriða á tímabilinu 1990–2025 var skoðuð. Bleikjuseiði veiddust á öllum rafveiðistöðvum og voru þau á aldrinum 0+ til 3+. Vísitala þéttleika var hærri árið 2025 en í fyrri rannsóknum, sérstaklega hjá yngsta aldurshópnum (0+). Urriðaseiði veiddust einungis í Holtsá og engin laxaseiði veiddust. Þrátt fyrir aukinn þéttleika seiða hefur skráðum bleikjum í stangveiði í ánni farið fækkandi undanfarna áratugi. Þessi þróun er í samræmi við þróun sem sést hefur víðar á Íslandi sem og á útbreiðslusvæði bleikju utan Íslands. Líklega er um sameiginlegan áhrifavald að ræða og loftslagsbreytingar oftast nefndar í því samhengi auk áhrifa vegna mannlegra athafna. Niðurstöðurnar benda ekki til fækkunar seiða, en bent er á að malarnám og bakkavarnir á vatnasviðinu geti haft neikvæð staðbundin áhrif á uppeldissvæði bleikju sem rannsóknin nam ekki. Áhersla er lögð á mikilvægi verndar hrygningar- og uppeldissvæða, viðhalds vatnsgæða og reglubundinnar vöktunar til að tryggja framtíð bleikjustofnsins í ánni.
Abstract
A study of distribution, density, cohort structure, and size of Arctic charr parr was carried out at eight locations in river Svarfaðardalsá and its tributaries (Skíðadalsá, Þverá, Holtsá) on 22–23 August 2025. Results were compared with similar surveys from 1992–1995 and 1976, and trends in rod catches of Arctic charr and brown trout over the period 1990–2025 were also examined. Arctic charr parr were caught at all electrofishing stations, ranging in age from 0+ to 3+. The density index was higher in 2025 than in previous surveys, particularly for the youngest age group (0+). Brown trout parr were caught only in Holtsá and no Atlantic salmon parr were caught. Despite the increased parr density at the electrofishing stations, recorded rod catches of Arctic charr in the river have declined in recent decades. This trend is consistent with patterns observed elsewhere in Iceland, as well as across the species' range outside Iceland. A shared underlying driver is likely, with climate change most frequently cited in this context, along with the effects of human activities. The results do not indicate a decline in parr numbers within the study area itself, but it is noted that gravel extraction and bank protection works in the watershed may have negative local effects on Arctic charr nursery habitat that this study did not capture. Emphasis is placed on the importance of protecting spawning and nursery habitats, maintaining water quality, and conducting regular monitoring to secure the future of the Arctic charr population in the river. |