Laxá í Dölum 2025 Vöktunarrannsóknir á stofnum laxfiska

Nánari upplýsingar
Titill Laxá í Dölum 2025 Vöktunarrannsóknir á stofnum laxfiska
Lýsing

Ágrip

Í stangveiðinni í Laxá í Dölum 2025 veiddust 775 laxar; 558 smálaxar (72,0%) og 217 stórlaxar (28,0%). Auk þess veiddust 28 urriðar, 14 bleikjur og 13 hnúðlaxar. Öllum stórlöxum, að fjórum undanskildum, var sleppt að lokinni veiði og tæplega 80% smálaxa. Hrygnur voru í minnihluta stangveiddra laxa, bæði hjá smálöxum og stórlöxum. Laxveiðin var um 43% minni en veiðin 2024 og 22,8% undir meðalveiði (1974 – 2025).

Fiskiteljari var starfræktur í fiskveginum í Sólheimafossi frá 2. júní – 19. október. Vatnsleysi takmarkaði að líkindum för fiska upp teljarann mestan part sumars. Fiskur í göngu var skráður frá 15. september − 19. október en vatnsmagn jókst í fiskveginum vegna haustrigninga. Taldir voru níu silungar, 58 smálaxar og 34 stórlaxar. Gangan var sú mesta (92 laxar) frá upphafi talninga í Laxá árið 2020, en að meðaltali hafa 54 laxar gengið upp fyrir teljarann á ári. Hrognafjöldi í Laxá ofan Sólheimafoss og í Skeggjagili var metinn 305.734 hrogn (3,06 hrogn/m2) og er mesta hrognamagn frá 2020.

Seiðavísitala laxaseiða neðan við Sólheimafoss var 69,3 seiði/100 m2 sem er önnur hæsta vísitalan sem mælst hefur á svæðinu. Hæst var vísitalan hjá 1+ seiðum (30,5/100 m2) og næst hæst hjá 0+ seiðum (26,6/100 m2). 2+ seiðin voru töluvert undir meðaltali seiðavísitölu en aðrir aldurshópar voru langt fyrir ofan meðaltal. Seiðavísitala laxaseiða ofan við foss var 28,0/100 m2 þar sem 0+ og 1+ seiðin mældust með vísitölu um og yfir 10,0/100 m2 en 2+ seiðin voru með vísitöluna 7,4/100 m2. Vísitala urriða neðan við Sólheimafoss var 4,1/100 m2 en ofan við foss var hún 11,7/100 m2.

Meðallengdir laxaseiða ofan við Sólheimafoss voru almennt lengri en meðallengdir seiða á svæðinu neðan við foss. Þvert á móti voru meðallengdir urriðaseiða meiri neðan við foss en ofan við hann. Meðallengdir allra aldurshópa laxaseiða neðan við foss voru undir langtímameðaltali en 0+ seiðin voru þó einungis 0,1 cm undir, en eldri aldurshópar voru ýmist 0,5 eða 0,6 cm undir meðaltali.

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Haf- og vatnarannsóknir (2016-)
Útgáfurit Haf- og vatnarannsóknir
Útgáfuár 2026
Tölublað 11
Blaðsíður 22
Útgefandi Hafrannsóknastofnun
ISSN 2298-9137
Leitarorð Laxá í Dölum, lax, urriði, bleikja, stangveiði, hrognafjöldi, seiðaþéttleiki, fiskirækt, fiskvegur.
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?