Laxá í Aðaldal, Mýrarkvísl og Reykjadalsá 2025 - Seiðabúskapur og veiði

Nánari upplýsingar
Titill Laxá í Aðaldal, Mýrarkvísl og Reykjadalsá 2025 - Seiðabúskapur og veiði
Lýsing

Ágrip

Í þessari skýrslu segir frá niðurstöðum seiðamælinga í Laxá í Aðaldal, Mýrarkvíslar og Reykjadalsár síðsumars 2025. Niðurstöðurnar voru bornar saman við fyrri gögn vöktunar sem staðið hefur með sambærilegum hætti í Laxá frá árinu 1971 en gögn úr Mýrarkvísl og Reykjadalsá ná yfir styttri tíma.

Samanburður á framleiðslueiningum í ánum á vatnasvæði Laxár sýnir að um helmingur liggur í Laxá og sinn hvor fjórðungur í Mýrarkvísl og Reykjadalsá. Laxastofnar vatnakerfis Laxár hafa minnkað og veiði dregist saman. Seiðavísitölur fóru lækkandi í Laxá frá árinu 1996 og var gefin sú ráðgjöf að draga úr sókn með því að sleppa öllum löxum. Því var mætt í stangveiðinni frá 2006. Síðustu árin hefur vísitala væntanlegra gönguseiða hækkað. Þéttleiki laxaseiða í Mýrarkvísl hækkaði 2016 og hefur þéttleiki einsárs og eldri seiða verið um meðaltal. Þéttleiki laxaseiða í Reykjadalsá hefur verið breytilegur.

Laxveiði í Laxá hefur verið undir meðaltali frá því um 2000 og í Reykjadalsá frá 1994. Veiðin í Mýrarkvísl hefur verið vaxandi og yfir meðaltali frá 2022.

Fiskrækt hefur verið aukin í Laxá síðustu ár með því að ala undaneldisstofn/klakstofn í eldisstöð. Frá honum hefur verið sleppt seiðum og grafin hrogn undanfarin ár. Ekki er ráðlegt að viðhalda þessari starfsemi til lengri tíma en vænta má að árangur af henni verði mælanlegur á allra næstu árum.

Abstract

This report presents the results of the juvenile surveys in River Laxá in Aðaldalur, Mýrarkvísl and Reykjadalsá in late summer 2025. The results were compared with previous monitoring data that has been conducted in a similar manner in Laxá since 1971, but data from Mýrarkvísl and Reykjadalsá cover a shorter period. A comparison of production units in the rivers in the Laxá catchment area shows that about half are in Laxá and a quarter each in Mýrarkvísl and Reykjadalsá. Salmon stocks in the Laxá water system have declined as well as the angling catch. Juvenile indices have been declining in Laxá since 1996 and advice was given to reduce the effort by releasing all salmon. This was met in the angling fishery from 2006. In recent years, the index of smolt production has increased. The density of salmon fry in Mýrarkvísl increased in 2016 and the density of one-year-old and older juvenile has been around average. The density of salmon fry and parr in Reykjadalsá has been variable. Salmon fishing in Laxá has been below average since around 2000 and in Reykjadalsá since 1994. Fishing in Mýrarkvísl has been increasing and above average since 2022. Stocking has been increased in Laxá in recent years by raising a hatchery broodstock. From this, fry has been released and eggs have been planted in recent years. It is not advisable to maintain this activity in the long term, but it can be expected that its results will be measurable in the next few years.

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Guðni Guðbergsson
Flokkun
Flokkur Haf- og vatnarannsóknir (2016-)
Útgáfurit Haf- og vatnarannsóknir
Útgáfuár 2026
Tölublað 26
Blaðsíður 37
Útgefandi Hafrannsóknastofnun
ISSN 2298-9137
Leitarorð Laxá, Reykjadalsá, Mýrarkvísl, framleiðslueiningar, stangveiði, seiðaþéttleiki, Laxá, Reykjadalsá, Mýrarkvísl, production units, angling catches, juvenile density
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?