Laxá í Aðaldal 2017. Seiðabúskapur, veiði og endurheimtur gönguseiða. HV 2018-33

Nánari upplýsingar
Titill Laxá í Aðaldal 2017. Seiðabúskapur, veiði og endurheimtur gönguseiða. HV 2018-33
Lýsing

Í Laxá voru skráðir í veiðibækur alls 711 veiddir laxar sumarið 2017 sem er 46,6% af meðalveiði meðalveiði áranna 1974 ‐ 2016 sem er 1.493 laxar. Veiði er sú þriðja minnsta sem skráð hefur verið í Laxá frá á tímabilinu frá 1974. Af þeim 711 löxum sem veiddust var 689 (96,9%) sleppt aftur en afli var því 22 laxar. Af veiðinni voru 320 smálaxar (eitt ár í sjó) og 391 stórlaxar (tvö ár í sjó og eldri). Alls veiddust 362 hængur og 349 hrygnur. Alls voru 231 hængar að kom eftir eitt ár í sjó og 89 hrygnur. Eftir tvö ár í sjó voru 131 hængur og 260 hrygnur. Meðalþyngd smálaxa var 2,76 kg hjá hængum 2,53 kg hjá hrygnum. Meðalþyngd stórlaxa var um 6,7 kg, fyrir hænga en 5,97 kg fyrir hrygnur.

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Guðni Guðbergsson
Flokkun
Flokkur Haf- og vatnarannsóknir (2016-)
Útgáfuár 2018
Leitarorð River Laxa, River Reykjadalsa, River Myrarkvisl, Rod catch, juvenile density, stock and recruitment
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?