Könnun á útbreiðslu skollakopps (Strongylocentrotus droebachiensis) í Norðfjarðarflóa og Miðfirði 2021. HV 2021-48

Nánari upplýsingar
Titill Könnun á útbreiðslu skollakopps (Strongylocentrotus droebachiensis) í Norðfjarðarflóa og Miðfirði 2021. HV 2021-48
Lýsing

Í skýrslunni er gerð grein fyrir niðurstöðum könnunar í leit að mögulegum ígulkeramiðum skollakopps í Norðfjarðarflóa (Norðfjörður, Hellisfjörður, Viðfjörður) og Mjóafirði 20. apríl 2021. Við veiðarnar var notaður ígulkeraplógur (300 kg, 2,5 m að breidd) með 145 mm möskva. Um borð í leiðangrinum var eftiritsmaður Fiskistofu sem sá um skráningu á afla og myndatöku. Myndefni af afla var yfirfarið af sérfræðingum Hafrannsóknastofnunar sem greindu og skráðu meðaflategundir sem sáust á myndunum. Botnlag var metið þar sem slíkt var mögulegt út frá því botnefni sem kom upp með veiðarfærinu og út frá tegundasamsetningu lífvera í afla. Könnunin fór fram á 10 stöðvum þar sem meðaldýpi var frá 4-19 m. Skollakoppur fannst á 90% stöðva og var aflinn 15-200 kg í 3-7 mínútna togi. Meðalstærð var yfir löndunarstærð (>45mm) á öllum stöðvum þar sem skollakoppur veiddist. Á öllum stöðvum var harður botn. Yfirleitt var aflinn nokkuð hreinn af skollakoppi og lítill meðafli. Á milli 8 og 13 tegundir voru greindar í togunum og alls voru greindar 32 tegundir eða hópar lífvera í allri könnuninni. Á tveimur stöðvum kom upp greinóttur kóralþörungur og í töluverðu magni á stöð 5 í Viðfirði. Áður var vitað um kóralþörungasvæði í Norðfirði og var ekki togað innan þess. Niðurstöður könnunarinnar leiddu í ljós að nýtanleg ígulkeramið eru á svæðinu, sérstaklega í Hellisfirði og Viðfirði að undanskilinni stöð fimm.

 

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Haf- og vatnarannsóknir (2016-)
Útgáfurit Haf- og vatnarannsóknir
Útgáfuár 2021
Blaðsíður 24
Útgefandi Hafrannsóknastofnun
Leitarorð skollakoppur, grænígull, ígulker, ígulkeraplógur, kóralþörungar, Norðfjarðarflói, Mjóifjörður, the green sea urchin, dregde, maerl, Lithothamnion, Norðfjarðarflói, Mjóifjörður
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?