Könnun á útbreiðslu brimbúts (Cucumaria frondosa) í Héraðsflóa 2021. HV 2022-32

Nánari upplýsingar
Titill Könnun á útbreiðslu brimbúts (Cucumaria frondosa) í Héraðsflóa 2021. HV 2022-32
Lýsing

Í skýrslunni er gerð grein fyrir niðurstöðum könnunar í leit að mögulegum sæbjúgnamiðum (brimbútur) í Héraðsflóa í ágúst 2021. Við veiðarnar var notaður sæbjúgnaplógur. Um borð í leiðangrinum var eftirlitsmaður frá Fiskistofu sem sá um skráningu á afla og myndatöku. Myndefni sem safnað var af afla og öðru sem kom upp í togunum var yfirfarið af sérfræðingum Hafrannsóknastofnunar sem greindu og skráðu meðaflategundir. Botnlag og setgerð voru metin þar sem slíkt var mögulegt út frá botnefni sem kom upp með veiðarfærinu og tegundasamsetningu lífvera í afla. Könnunin fór fram á 10 stöðvum (41‐72 m) og fannst brimbútur á 8 þeirra en í litlu magni að undanskildum tveimur stöðvum. Heildarafli í togi var 6-300 kg og afli brimbúts var mismikill, 1-200 kg í togi. Á þeim tveimur stöðvum þar sem afli brimbúts var mestur var hann annarsvegar 200 kg (67% af heildarafla) og hinsvegar 80 kg (80% af heildarafla). Sæbjúgun voru þung/stór, 300‐500 g/einstaklingur (votvigt). Tuttugu og þrjár tegundir/hópar lífvera voru greindar af myndum og úr aflasýnum og var fjöldi tegunda/hópa á hverri stöð 3-15. Brimbútur var ríkjandi tegund á 4 stöðvum hvað þyngd varðar. Ríkjandi meðaflategundir voru marígull, stórkrossi, holdýr og svampar af ýmsum tegundum.

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Haf- og vatnarannsóknir (2016-)
Útgáfurit Haf- og vatnarannsóknir
Útgáfuár 2022
Blaðsíður 16
Útgefandi Hafrannsóknastofnun
Leitarorð sæbjúga, brimbútur, sæbjúgnaplógur, Héraðsflói
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?