Hrygningartími laxa á vatnasvæði Ölfusár-Hvítár
| Nánari upplýsingar |
| Titill |
Hrygningartími laxa á vatnasvæði Ölfusár-Hvítár |
| Lýsing |
Ágrip
Skýrsla þessi fjallar um rannsókn á hrygningartíma laxa á vatnasvæði Ölfusár-Hvítár byggt á kreistingartíma laxa á árunum 1985 – 2010. Vatnasvæðið er stórt og þar eru jökulár, dragár og lindár þar sem lax hrygnir og elst upp í. Gögnin byggja á hrygningartíma 818 laxahrygna. Hrygningartíminn var frá miðjum október og fram í desember. Hann var breytilegur milli áa og svo virðist sem vatnshiti í ánum að vetri á klaktíma hrogna ráði þar miklu um. Þannig var hrygning fyrr í Stóru-Laxá, sem er dragá með lágan vetrarhita, en í Sogi sem er lindá með hærri vetrarhita. Fram kom að stórlaxar hrygna fyrr en smálaxar.
Abstract
This report is about research on spawning time of Atlantic salmon in river Ölfusá-Hvítá watersed based on the squeezing of salmon in the years 1985 – 2010. The watersed is large with glacial-, runoff- and springfed rivers with salmon spawning and juvelile habits. The data are based on the spawning time of 818 female salmon. The spawning season was from mid-October to December. It varied between rivers and it seems that the water temperature in the rivers in winter, while the eggs are in incubation period buried in the gravel bed, play a large role. Thus, spawning was earlier in river Stóra-Laxá, which is a runoff river with low winter temperatures, than in river Sog, which is a spring fed river with higher winter temperatures. Large salmon (2SW) spawned earlier than small salmon (1SW). |
| Skráarviðhengi |
Ná í viðhengi |
| Flokkun |
| Flokkur |
Haf- og vatnarannsóknir (2016-) |
| Útgáfurit |
Haf- og vatnarannsóknir |
| Útgáfuár |
2026 |
| Tölublað |
10 |
| Blaðsíður |
11 |
| Útgefandi |
Hafrannsóknastofnun |
| ISSN |
2298-9137 |
| Leitarorð |
Lax, hrygningartími, vatnshiti, stórlax, smálax, Ölfusá, Hvítá, Sog, Stóra-Laxá, Dalsá-Fossá, Litla-Laxá, Brúará, Ásgarðslækur, Höskuldslækur, Atlantic salmn, spawning time, 2SW salmon, 1SW salmon. |
Takk fyrir! Ábending þín er móttekin