Helstu niðurstöður vistfræðileiðangurs í Austurdjúp á RS Árna Friðrikssyni í maí 2022. HV 2023-07

Nánari upplýsingar
Titill Helstu niðurstöður vistfræðileiðangurs í Austurdjúp á RS Árna Friðrikssyni í maí 2022. HV 2023-07
Lýsing

Hafrannsóknastofnun hefur verið þátttakandi í árlegum alþjóðlegum vistfræðileiðangri í Austurdjúpi í maí frá upphafi hans árið 1995. Markmið leiðangursins er að rannsaka umhverfisskilyrði, svifdýrasamfélög, fylgjast með útbreiðslu og mæla stofnstærð og göngur norsku vorgotssíldarinnar og kolmunna í Austurdjúpi og á Austur- og Norðausturmiðum.

Niðurstöður íslenska hluta leiðangursins á RS Árna Friðrikssyni í ár sýndu að norsk-íslensk síld var að finna á stóru svæði austur og norðaustur af Íslandi. Það bendir til svipaðs göngumynsturs og undanfarin ár. Mest mældist af 6 ára síld (2016 árganginum), þá helst á austurhluta svæðisins en eldri síld, að stærstum hluta 2013 árgangurinn, var einnig áberandi. Mælingar sýndu töluverða aukningu í kolmunna (mestmegnis 1-2 ára) sem var að finna víða í hlýsjónum, austur af kalda Austur-Íslandsstraumnum og helgast það af sterkri nýliðun síðustu ára. Magn átu var svipað og síðustu ár og var rauðáta jafnan algengust. Ítarlegur samanburður á átumagni og ástandi sjávar milli ára og svæða er gerður í sameiginlegri leiðangursskýrslu allra þátttökuþjóða. Þar eru einnig að finna upplýsingar um bergmálsvísitölur á síld og kolmunna fyrir öll leiðangurssvæði. Skráning og vöktun sjávarspendýra, sem voru nú gerðar í fjórða sinn í leiðangrinum, innihéldu 67 skráningar af 4 tegundum hvala.

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Sigurvin Bjarnason
Nafn Hildur Pétursdóttir
Nafn Michelle Marie Dutro
Nafn Paulus Jacobus Wensveen
Flokkun
Flokkur Haf- og vatnarannsóknir (2016-)
Útgáfurit Haf- og vatnarannsóknir
Útgáfuár 2023
Blaðsíður 25
Útgefandi Hafrannsóknastofnun
Leitarorð Vorgotssíld, bergmál, Noregshaf, uppsjávarvistkerfi, umhverfi
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?