Grímsá og Tunguá 2025 - Rannsóknir á stofnum laxfiska

Nánari upplýsingar
Titill Grímsá og Tunguá 2025 - Rannsóknir á stofnum laxfiska
Lýsing

Ágrip

Í stangveiðinni í Grímsá og Tunguá 2025 veiddust 790 laxar og var hlutdeild smálaxa af heildarveiði 82,4% en hlutdeild stórlaxa 17,6%. Laxveiðin dróst saman um 31% á milli ára og var 36% undir meðalveiði. Hrygnur voru í minnihluta laxveiðinnar, bæði hjá smálöxum og stórlöxum og var áætluð meðalþyngd smálaxa 2,62 kg og stórlaxa 4,76 kg. Áætluð meðallengd smálaxa var 62,2 cm og stórlaxa 76,6 cm. Heildarveiði á urriða var 352 fiskar og meira en tvöfaldaðist á milli ára og var 139% yfir meðalveiði. Ein bleikja var skráð í stangveiðinni. Hlutdeild þess að veiða og sleppa laxi var 76,8% af heildarveiði en 60,2% af heildarveiði á urriða.

Í seiðamælingum á fiskgengum hluta vatnasvæðisins veiddust 703 laxaseiði af fjórum aldurshópum (frá 0+ til 3+), 139 urriðaseiði af tveimur aldurshópum (0+ og 1+) og fjögur hornsíli. Samanlögð seiðavístala allra aldurshópa laxaseiða (meðaltal stöðva) var 76,5/100 m2 en skiptist þannig að í Tunguá var vísitalan 127,1/100 m2 en í Grímsá 46,2/100 m2. Vísitala sumargömlu (0+) seiðanna var 54,5/100 m2 á svæðinu öllu og var hún 57,6% yfir meðaltali. Vísitala veturgömlu (1+) seiðanna var 20% undir meðaltalinu og vísitala tveggja vetra seiðanna var 50% undir meðaltali. Vísitala þriggja vetra (3+) seiðanna var jöfn meðaltalinu. Samanlögð seiðavísitala urriðaseiða (meðaltal stöðva) var 15,5/100 m2 á öllum fiskgenga hlutanum en skiptist þannig að hún var 20,6/100 m2 í Grímsá og 6,9/100 m2 í Tunguá.

Á ófiskgengum hluta Tunguár er stunduð fiskrækt, bæði með flutningi á lifandi hrygningarfiski upp fyrir Englandsfoss og með hrognagreftri enn ofar á vatnasvæðinu, bæði í Tunguá og í Reykjaselskvísl. Á ófiskgenga hlutanum öllum veiddust samanlagt 59 laxaseiði af fjórum aldurshópum (0+ - 3+), þrjú veturgömul (1+) urriðaseiði og 23 bleikjur af fimm aldurshópum (0+ - 4+). Sýnt er að hrognagröftur haustið 2024 bar árangur á tveimur af þeim fjórum stöðvum sem kannaðar voru efst á ófiskegnga hlutanum haustið 2025. Á neðri hluta ófiskgenga hlutans komu engin sumargömul (0+) laxaseiði fram haustið 2025 en níu eins árs (1+) seiði og þrjú tveggja ára (2+). Urriðaseiðin þrjú veiddust á neðstu tveimur stöðvum svæðisins en bleikjurnar veiddust á tveimur efstu stöðvum Tunguár og í Reykjaselskvísl.

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Haf- og vatnarannsóknir (2016-)
Útgáfurit Haf- og vatnarannsóknir
Útgáfuár 2026
Tölublað 20
Blaðsíður 20
Útgefandi Hafrannsóknastofnun
ISSN 2298-9137
Leitarorð Grímsá, Tunguá, lax, urriði, sjóbirtingur, stangveiði, hrognafjöldi, seiðaþéttleiki, fiskirækt, hrognagröftur, fiskflutningur, merkingar, slöngumerki.
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?