Göngur þorsks út frá sjávarföllum
| Nánari upplýsingar |
| Titill |
Göngur þorsks út frá sjávarföllum |
| Lýsing |
Ágrip
Rafeindamerki (DST) skrá samfellt gögn um hita og dýpi og veita mikilvægar upplýsingar um atferli fiska. Við Ísland hafa gögn úr rafeindamerkjum leitt í ljós tvær ólíkar fargerðir þorsks (Gadus morhua): grunnfarsþorsk sem dvelur að mestu leyti á grunnsævi (< 200 m) árið um kring, og djúpfarsþorsk sem heldur sig á meira dýpi í hitaskilum yfir fæðutímann. Ef fiskur liggur nógu lengi við sjávarbotn má sjá sjávarföll í dýptarferlinum. Þau er hægt að nota til að bera saman við sjávarfallalíkan á útbreiðslusvæði fisksins og finna þannig líklegustu staðsetningu hans en það var einmitt meginmarkmið þessa verkefnis. Stærsti hluti verkefnisins fólst í því að uppfæra sjávarfallalíkanið sem notað er þannig að það myndi ná yfir stærra hafsvæði og að færa kóðann úr Matlab yfir í R. Einnig var kannað hvort hægt væri að sjá mun í erfðafræði grunn- og djúpfarsfiska með það að markmiði að geta greint þá í sundur án þess að skoða gögn úr rafeindamerkjum. Verkefnið var styrkt af Verkefnasjóði sjávarútvegsins. Í þessari skýrslu er tekin saman framvinda verkefnisins og helstu niðurstöður þess kynntar.
Abstract
Data storage tags (DSTs) continuously record temperature and pressure-derived depth data, offering insights into the behaviour of fish. In Icelandic waters, DST data have previously revealed two distinct ecotypes of Atlantic cod (Gadus morhua): coastal cod, which mainly remain at shallow depths (< 200) year-round, and frontal cod, which migrate to deeper offshore waters during the feeding season. If cod remain on the seabed, tidal signals can be detected within the DST depth profile. These signals can be compared with predictions from a tidal model developed for the Icelandic shelf to geolocate the fish, which is the main objective of this project. A major component involves upgrading a tidal geolocation model to expand its geographical range and reimplementing the code in R. Furthermore, we investigated whether genetic analysis can distinguish between coastal and frontal cod, making it possible to identify the ecotypes without relying on DST data. The project was supported by Verkefnasjóður sjávarútvegsins. This report synthesizes the project's progress, outlines the development of the analytical framework, and presents the main outcomes. |
| Skráarviðhengi |
Ná í viðhengi |
| Flokkun |
| Flokkur |
Haf- og vatnarannsóknir (2016-) |
| Útgáfurit |
Haf- og vatnarannsóknir |
| Útgáfuár |
2026 |
| Tölublað |
23 |
| Blaðsíður |
12 |
| Útgefandi |
Hafrannsóknastofnun |
| ISSN |
2298-9137 |
| Leitarorð |
göngur, sjávarföll, þorskur, grunnfar, djúpfar, cod, migration, tidal signature, coastal cod, frontal cod. |
Takk fyrir! Ábending þín er móttekin