Fiskirannsóknir á vatnasvæði Flekkudsalsár 2025
| Nánari upplýsingar |
| Titill |
Fiskirannsóknir á vatnasvæði Flekkudsalsár 2025 |
| Lýsing |
Ágrip
Laxveiðin á vatnasvæði Flekkudalsár árið 2025 var 55 laxar, tæplega þriðjungur af meðalveiði tímabilisins 1984 – 2024. Smálaxar voru í meirhluta (90%) og af kyngreindum fiskum var hlutur hrygna ívið minni en hænganna og hjá stórlöxum voru hrygnur 80% veiðinnar. Hlutdeild þess að veiða og sleppa lifandi fiski hefur farið vaxandi undanfarin ár og hefur meira en þriðjungi laxveiðinnar verið sleppt á tímabilinu 2015 – 2025. Auk lax veiddust 29 urriðar og 6 bleikjur.
Hreistursýni voru tekin af fimm löxum úr stangveiðinni og nam úrtakið einungis 9% af heildarveiði. Aldursgreining sýndi að ferskvatnsaldur var þrjú til fjögur ár og tilheyrðu laxarnir klakárgöngum 2020 og 2021; þrír smálaxar og tveir laxar á endurtekinni hrygningu.
Í seiðamælingum veiddust 94 laxaseiði (frá 0+ til 3+), eitt sumargamalt (0+) bleikjuseiði og 12 urriðaseiði (frá 0+ til 3+). Meðallengdir yngstu þriggja aldurshópa laxaseiða voru allar yfir langtímameðaltali en mestur var munurinn hjá 0+ seiðum. Hlýindi einkenndu sumarið 2025.
Seiðavísitala sumargömlu (0+) laxaseiðana var vel yfir langtímameðaltali en aðrir aldurshópar voru undir meðaltali. Sérstaka athygli vaktilág seiðavísitala veturgömlu (1+) seiðanna sem var einungis um fimmtungur af langtímameðaltali en árgangurinn mældist í meðallagi árið 2024 sem 0+ seiði.
Mælt er með að forsvarsmenn Veiðifélags Flekkudalsár kanni möguleika á fisktalningu neðarlega á vatnasvæðinu með það að markmiði að mæla stærð hrygningastofnsins ár hvert og fylgjast með mögulegum strokulöxum úr sjókvíaeldi. |
| Skráarviðhengi |
Ná í viðhengi |
| Flokkun |
| Flokkur |
Haf- og vatnarannsóknir (2016-) |
| Útgáfurit |
Haf- og vatnarannsóknir |
| Útgáfuár |
2026 |
| Tölublað |
6 |
| Blaðsíður |
20 |
| Útgefandi |
Hafrannsóknastofnun |
| ISSN |
2298-9137 |
| Leitarorð |
laxveiði, stangveiði, seiðaþéttleiki, seiðavísitala, lax, urriði, bleikja, hreistur, fiskteljari, hrygningarstofn |