Vinnustofa um BioProtect 4. nóvember

Vinnustofa um BioProtect 4. nóvember

Vinnustofa um BioProtect 4. nóvember

Hafrannsóknastofnun býður til vinnustofu um val verndarsvæða í hafi og um það hvernig Evrópuverkefnið BioProtect getur stutt við það ferli. Vinnustofan verður haldin miðvikudaginn 4. nóvember kl. 13:15–16:00 í húsnæði Hafrannsóknastofnunar að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði og er öllum opin. 

Ísland hefur skuldbundið sig til að vernda, stýra og vakta að minnsta kosti 30% hafsvæða sinna fyrir árið 2030. Hafrannsóknastofnun veitir stjórnvöldum ráðgjöf um svæði til verndar. En hvernig á að finna slík svæði? Innan BioProtect er unnið að því að hanna og prófa aðferðir og tól sem hjálpa til við að svara þeirri spurningu.

Skipulagsvefsjá sem auðveldar val svæða

Eitt helsta tólið sem þróað hefur verið innan verkefnisins er skipulagsvefsjáin BioProtect Marine Planner. Hún dregur saman gögn um líffræðilega fjölbreytni, athafnir manna og verndarmarkmið og setur þau fram á myndrænan hátt. Þannig er auðvelt að átta sig á samhenginu þar á milli. Vefsjáin getur einnig metið og lagt til forgangssvæði til verndar.

Dagskrá vinnustofunnar

Á vinnustofunni verður fjallað um mikilvægi verndar. Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um svæðisvernd verður kynnt og farið yfir hlutverk og markmið BioProtect og hvernig verkefnið styður við ferlið. Að lokum kynnir dr. Oisín Callery frá Háskólanum í Galway á Írlandi BioProtect Marine Planner. Sjá dagskrá vinnustofunnar hér. 

Um BioProtect

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins fjármagnar BioProtect undir verkefnaáherslunni (EU Missions) „Endurheimt hafs og vatna“ (Restore our Ocean and Waters). Markmið verkefnisins er að þróa leiðir og aðferðir til að hraða árangursríkri vernd og endurheimt líffræðilegrar fjölbreytni í vistkerfum hafs og stranda.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?