Frá Arnarfirði.
Hafrannsóknastofnun leggur til, í samræmi við varúðarsjónarmið, að rækjuveiðar verði ekki heimilaðar í Arnarfirði né Ísafjarðardjúpi fiskveiðiárið 2025/2026. Forsendur ráðgjafar má finna hér.
Stofnvísitala rækju í Arnarfirði hefur farið lækkandi frá árinu 2022. Mikið var af ýsu á svæðinu en árin 2020-2025 voru vísitölur ýsu þær hæstu frá árinu 2011. Vísitala þorsks var yfir meðallagi. Nánari upplýsingar um niðurstöður stofnmælingarinnar í Arnarfirði og veiðar má nálgast hér.
Stofnvísitala rækju í Ísafjarðardjúpi mældist undir skilgreindum viðmiðunarmörkum. Vísitölur ýsu hafa verið háar frá árinu 2004 og frá árinu 2020 hafa þær verið mjög háar í sögulegu samhengi. Nánari upplýsingar um niðurstöður stofnmælingarinnar í Ísafjarðardjúpi og veiðar má nálgast hér.