Orkunotkun mæld við botnvörpuveiðar

Áhöfnin á Árna græjar veiðafærin til mælinga, Áhöfnin á Árna græjar veiðafærin til mælinga,

Leiðangur á vegum Hafrannsóknastofnunar var farinn dagana 9. til 13. nóvember á rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni. Hann er hluti af Evrópuverkefninu MarineGuardian, sem Matís stýrir. Þetta var fyrri leiðangurinn af tveimur þar sem orkunotkun við að draga hefðbundna botnvörpu er mæld og borin saman við breyttar uppsetningar á vörpunni. Að þessu sinni var orkunotkun mæld við drátt á óbreyttu hefðbundnu veiðarfæri, til að mynda grunn fyrir seinni mælingar. Ein breyting var þó prófuð. Flotkúlur á höfuðlínu voru að mestu teknar af og segl sett í staðinn til að halda opnun vörpunnar. Þessi einfalda breyting reyndist vel við þær aðstæður sem unnið var við, og fyrstu niðurstöður benda til þess að varpan hafi verið léttari í drætti. Á næsta ári verður prófaður búnaður sem á að draga úr snertingu botnvörpu við hafsbotn og um leið minnka olíunotkun við veiðar.

Breytingar á veiðarfærum geta skipt máli víðar en í olíureikningnum. Flotkúlur sem tapast af veiðarfærum eru algengar í rusli á fjörum hér á landi og hjá nágrannaþjóðum. Ef segl geta leyst flestar kúlurnar af hólmi gæti það bæði sparað olíu og dregið úr slíkri mengun. Frekari prófanir með mismunandi gerðum varpa og við ólík veðurskilyrði þarf þó áður en hægt er að fullyrða að fullu um notagildið.

Árni Friðriksson hentar vel til orkurannsókna

Botnvarpan sem notuð var er af gerðinni Jagger 88,8 frá Hampiðjunni og var sett upp með hefðbundnu rockhopper. Brim lánaði hlerana sem notaðir voru í leiðangrinum. Árni Friðriksson hentar afar vel til rannsókna sem þessara, því hann er knúinn rafmótor og er hvorki með gír né skiptiskrúfu. Aflið má því lesa beint af mælum. Einnig skiptir máli að skipið er búið rafknúnum togvindum frá íslenska tæknifyrirtækinu Naust Marine. Fyrirtækið tekur þátt í samstarfi um orkunotkun togskipa innan Evrópuverkefna. Afl og olíunotkun vélar ásamt átaki á togvindum voru skráð með hárri tíðni allan leiðangurinn, og einnig straumhraði við botn undir skipinu. Þær mælingar verður hægt að bera saman við hátíðni straumsjá sem var á netþaki vörpunnar og mældi straumhraða og stefnu með nokkurra sentimetra millibili þvert í gegnum vörpuna. Í hverju togi var lögun vörpunnar einnig mæld með hefðbundnum nemum, og afli var lengdarmældur til að meta hvort breytt uppsetning vörpunnar hefði áhrif á veiðina.

Myndavél inni í vörpunni

Einnig var prófað myndavélakerfið FiskGreinir, sem Hafrannsóknastofnun þróar í samvinnu við Stjörnu Odda. Kerfið greinir tegundir og mælir lengd fiska inni í vörpunni og gerir skipstjórnendum jafnframt kleift að sjá í rauntíma hvað berst í vörpuna. Fyrir FiskGreini var prófuð ný uppsetning á kapli á veiðarfærinu frá Hampiðjunni og reyndist hún vel.

Þessi leiðangur er grunnviðmið fyrir prófanir á nýrri gerð af hálfhringlaga fótreipi, Flow Gear frá Hampiðjunni. Verulegt magn gagna safnaðist, og unnið verður úr þeim á næstu vikum. Niðurstöðurnar verða síðan bornar saman við gögnin úr næsta leiðangri.

Mælingarnar á Árna eru aðeins hluti af verkinu. Sambærileg gögn um orkunotkun verða einnig skráð um borð í togurum Brims, svo hægt sé að meta áhrifin við raunverulegar veiðar. Trackwell og Naust Marine vinna að því að safna þessum gögnum saman og gera þau aðgengileg til greiningar. Samstarf Hafrannsóknastofnunar, Matís, Hampiðjunnar, Brims, Trackwell, Naust Marine og Stjörnu Odda sýnir hvernig rannsóknastofnanir og íslensk fyrirtæki geta unnið saman að lausnum og nýsköpun í sjávarútvegi sem gagnast bæði útgerð og umhverfi.

Leiðangursstjóri var Haraldur Arnar Einarsson. Leiðangurinn er hluti af MarineGuardian, sem hlýtur styrk úr Horizon Europe, rannsókna og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins Hann tengist einnig verkefninu InfiniFish, sem er sömuleiðis styrkt af Horizon Europe. Þá fékk verkefnið mikilvægan styrk úr Verkefnasjóði sjávarútvegsins.

Myndirnar úr leiðangrinum tók Cécile Dargentolle sem starfar hjá Matís. 

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?