Mun meira mældist af makríl

Mynd úr safni Hafrannsóknastofnunar Mynd úr safni Hafrannsóknastofnunar

Lokið er samantekt á niðurstöðum sameiginlegs uppsjávarleiðangurs Íslendinga, Færeyinga, Norðmanna, Grænlendinga og Dana sem farinn var á tímabilinu 1. júlí til 3. ágúst 2022. Meginmarkmið leiðangursins var að meta magn uppsjávarfiska í Norðaustur-Atlantshafi að sumarlagi en jafnframt að rannsaka vistkerfi og umhverfi sjávar. Leiðangurssvæði var 2,9 milljón ferkílómetrar sem er 32% stærra en síðasta ár þar sem nú var að nýju farið inn í grænlenska landhelgi og suður af 61°N breiddargráðu í Íslandsdjúpi og á Reykjaneshrygg.

Vísitala lífmassa makríls var metinn 7,37 milljónir tonna sem er 43% hækkun frá árinu 2021 og er nálægt langtímameðaltali gagnaseríu (7,28 milljónir tonna). Byggir vísitalan á afla í alls 247 stöðluðum yfirborðstogum á fyrirfram ákveðnum stöðvum. Tvær togstöðvar voru með einstaklega mikinn afla, eða 70 og 103 tonn á km2. Reiknaður lífmassi fyrir þessar tvær stöðvar er um þriðjungur af heildarlífmassa. Án þessara tveggja stöðva væri reiknaður lífmassi 2022 svipaður og 2021.

Útbreiðsla makríls var mun meiri við Ísland í ár samanborið við síðustu tvö ár og mældist makríll fyrir austan, sunnan og vestan landið (sjá mynd neðar). Fyrir sunnan land náði útbreiðslan yfir landgrunnið og suður að 61°N. Mesti þéttleikinn var fyrir suðaustan landið og síðan fyrir vestan. Alls mældist 18,9% af heildarlífmassa makríls í íslenskri landhelgi samanborið við 7,7% síðast ár. Líkt og undanfarin ár mældist meirihluti stofnsins í Noregshafi en minna mældist í norðanverðu Noregshafi.

Samkvæmt gervihnattagögnum var meðaltalshitastig í yfirborðslögum sjávar austan og norðan Íslands lægra í júlí en á sama tíma í fyrra og einnig undir meðaltali síðustu 20 ára. Í suðurhluta Noregshafs var yfirborðshiti einnig undir meðaltali síðustu 20 ára en yfir langtímameðaltali í norður hlutanum.

Vísitala um magn dýrasvifs á hafsvæðinu í júlí við Ísland og í Noregshafi var af svipaðri stærðargráðu og á síðasta ári og lág í sögulegu samhengi leiðangursins.

Í leiðangrinum voru bergmálsmælingar einnig notaðar til að meta magn norsk-íslenskrar síldar og kolmunna en úrvinnsla á þeim mælingum er ólokið og verða þær niðurstöður kynntar 30. september næstkomandi.

Niðurstöður leiðangursins fyrir makríl voru kynntar innan stofnmatsvinnunefndar Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) í dag. Þær eru, ásamt öðrum gögnum, notaðar við mat á stofnstærð makríls en ICES mun birta ráðgjöf um aflamark næsta árs fyrir makríl, norsk-íslenska síld og kolmunna þann 30. september næstkomandi.

Smelltu hér til að lesa skýrslu um bráðabirgðaniðurstöður leiðangursins.

mynd af útbreiðslu makríls

Mynd. Vísitala um magn makríls reiknuð fyrir reiti (2 breiddargráður og 4 lengdargráður) í júlí og ágúst 2022. Enginn makríll mældist í hvítum reitum og gulur til rauðs litakvarða táknar vaxandi þéttleika sem tonn á ferkílómetra. Stærð hringja sýnir magn makríls á togstöðvum sem tonn á ferkílómetra og grár kross táknar togstöðvar þar sem enginn makríll veiddist.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?