Ásta og sæbjúgað gæti þessi mynd heitið en hún er af Ástu Hrafnhildardóttur náttúrufræðingi á botnsjávarsviði Hafrannsóknastofnunar kampakátri að sýna ljósmyndara brimbút (sæbjúg) en myndin var tekin í haustrallinu í fyrra.
Stofnmæling botnfiska að haustlagi (SMH), oftast nefnd haustrall, hófst 29. september síðastliðinn og er nú um það bil hálfnuð. Tvö skip taka þátt í verkefninu, rannsóknaskipið Árni Friðriksson HF-200 og togarinn Breki VE-61.
Haustrallið hefur farið fram árlega með sambærilegum hætti frá árinu 1996. Eitt helsta markmið þess er að styrkja stofnstærðarmat helstu nytjastofna botnfiska á Íslandsmiðum og er það mikilvæg viðbót við stofnmælingu botnfiska að vorlagi (SMB), sem fer fram síðla vetrar ár hvert.

Áhöfnin á Breka á haustrallinu í fyrra.
Í haustrallinu er jafnframt lögð sérstök áhersla á rannsóknir á grálúðu, djúpkarfa og öðrum djúpsjávarfiskum, en útbreiðslusvæði margra þessara tegunda ná út fyrir rannsóknasvæði vorrallsins.
Áætlað er að toga á rúmlega 370 stöðvum umhverfis landið. Rannsóknasvæðinu er skipt í grunnslóð og djúpslóð. Breki annast sýnatöku á grunnslóð en Árni Friðriksson á djúpslóð, þar sem dýpstu togstöðvarnar eru á allt að 1.400 metra dýpi.
Í gegnum tíðina hefur gagnasöfnun í haustrallinu orðið mikilvægur þáttur í langtímavöktun lífríkis á íslensku hafsvæði. Auk upplýsinga um stofnstærð og útbreiðslu fisktegunda er safnað fjölbreyttum gögnum, meðal annars um sjávarhita, tegundasamsetningu, fæðu fiska og botndýr. Þá hefur rusl í afla verið skráð með kerfisbundnum hætti í um áratug og veita þær upplýsingar mikilvæga innsýn í útbreiðslu rusls á hafsbotni.

Um borði í Árna á haustralli 2025
Alls taka tíu vísindamenn þátt í leiðangrinum, auk áhafna skipanna tveggja. Hægt er að fylgjast með ferðum skipanna og sjá staðsetningu togstöðva haustrallsins á skip.hafro.is.
Gert er ráð fyrir að fyrstu niðurstöður leiðangursins verði aðgengilegar í byrjun desember, þegar frumúrvinnslu gagna lýkur. Niðurstöðurnar verða birtar á gagnasíðu stofnmælinga Hafrannsóknastofnunar.