Fiskteljari settur niður í Lambeyrarkvísl

Fiskteljari settur niður í Lambeyrarkvísl

Starfsmenn Hafrannsóknastofnunar settu á dögunum niður fiskteljara í Lambeyrarkvísl í Borgarfirði. Fyrstu bleikjurnar syntu í gegnum teljarann aðeins um fimm klukkustundum eftir að gengið var frá honum.

Mikilvægt hrygningasvæði sjóbleikjustofns í Hvítá

Lambeyrarkvísl er lítil lindá sem rennur í Hvítá í Borgarfirði skammt neðan við Barnafossa. Kvíslin er eitt mikilvægasta hrygningarsvæði sjóbleikjustofnsins í Hvítá, en þar finnst einnig dvergbleikja. Teljarinn er af gerðinni TiVA og nýtir myndavélar og gervigreind til að telja fiska og greina þá til tegunda. 

Í myndbandinu hér neðar má sjá fyrstu bleikjurnar fara í gegnum teljarannn en fyrsta sólarhringinn gengu átta bleikjur upp í kvíslina.

 

Ferðast upp og niður daglega

Markmiðið er að fá betri mynd af hrygningargöngum sjóbleikjunnar, en hrygningartími hennar er að hefjast og stendur fram í desember. Fyrri rannsóknir hafa sýnt að bleikjan gengur daglega upp í kvíslina seinni part dags og aftur niður í Hvítá morguninn eftir. Þetta flækir mat á stærð hrygningarstofnsins, þar sem ekki er vitað hversu oft hver fiskur fer upp og niður.

Gögn úr teljaranum verða nýtt í meistaraverkefni háskólanemas Adams Perry við HÍ, en hann aðstoðaði við uppsetningu teljarans. Einnig er fyrirhugað að merkja fiska í kvíslinni til að afla betri upplýsinga um ferðir einstakra fiska yfir hrygningartímann.

 

 

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?