Píslrækja

Tungumál Samheiti
Fræðiheiti: Eualus pusiolus

Útlit

Píslrækja er af ætt rækja Caridea. Spjót píslrækju er stutt og örlítið bogið niður, með örfáum göddum að ofan (Squires, 1990). Píslrækja er hálfgagnsæ og mismunandi að lit og getur verið græn, rauðbrún, bleik eða flekkótt. Heildarlengd píslrækju getur orðið næstum 3 cm (Telnes, 2018).

Heimkynni

Píslrækja finnst um allt Atlants‐ og Kyrrahaf. Hún hefur fundist frá yfirborði og niður að 500 m dýpi (de Kluijver og Ingalsuo, 2018). 

Lífshættir

Píslrækja virðist helst velja sér harðan botn, að öðru leiti er lítið vitað um lífshætti hennar.

Heimild

https://www.hafogvatn.is/is/midlun/utgafa/haf-og-vatnarannsoknir/raekjutegundir-vid-island

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?