Litli trjónukrabbi

Tungumál Samheiti
Fræðiheiti: Hyas coarctatus
Danska: violinkassekrabbe
Norska: gitarpyntekrabbe
Sænska: maskeringskrabba
Enska: lesser toad crab, contracted crab
Franska: crabe violon

Útlit

Litli trjónukrabbi er töluvert minni og grannvaxnari en trjónukrabbi (skjaldarlengd allt að 65 mm en finnst þó sjaldnast stærri en 30-40 mm). Skjöldurinn er breiðari framan til en á trjónukrabba og lengri en breiddin. Lögun skjaldarins minnir á fiðlu og erlend heiti vísa oft til þess. Litur er mismunandi, oft Ijósmógrár.

Heimkynni

Útbreiðsla litla trjónukrabba er beggja vegna N Atlantshafs. Hér er hann mjög algengur frá fjöruborði niður að 300 metra dýpi, allt umhverfis landið.

Lífshættir

Litli trjónukrabbi lifir á þörungum, hveldýrum, ormum, krabbadýrum og skeljum.

Nytjar

Beinar nytjar eru engar, en litli trjónukrabbi er algeng fæða botnfiska allt í kringum landið.

Heimildir/ ítarefni

Náttúrufræðingurinn (Bjarni Sæmundsson) https://timarit.is/page/4263874?iabr=on#page/n17/mode/2up

http://www.arcodiv.org/seabottom/Crustaceans/decapods/Hyas_coarctatus.html

Ragnhildur Sara Bergsdóttir. 2025. Íslenskir krabbar í fæðu ránfiska (https://hdl.handle.net/1946/50291) [Bakkalár, Háskóli Íslands]. Skemman. https://skemman.is/handle/1946/50291

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?