Bóluþang

Tungumál Samheiti
Fræðiheiti: Fucus vesiculosus
Sænska: blåstång
Enska: bladder wrack, paddy-tang, red fucus, dyers fucus, swine tang, sea ware, bladder, rockweed, bladderwrack, popping wrack, wrack, bladder-wrack
Þýska: Blasentang
Franska: fucus vésiculeux
Portúgalska: trambolho, estalos, esgalhota, bagão, limbo-bexiga, bodelha

Bóluþang er brúnþörungur. Plantan er 40 til 90 cm há. Blöðin eru
1 til 2 cm breið með greinilegri miðtaug. Blöðin kvíslgreinast með tiltölulega reglubundnum hætti. Á bóluþanginu eru hnöttóttar loftfylltar blöðrur sem eru tvær og tvær (stundum þrjár) saman, sín hvorum megin miðtaugarinnar. Blöðrurnar eru oftast ofan til á þanginu en stundum er þær í þéttum röðum niður eftir allri plöntunni. Bóluþangið er brúnt en stundum grænleitt eða brúnleitt.

Bóluþang vex allt í kringum Ísland. Það vex á steinum eða klöppum í fjörum og er venjulega mest af því um miðja fjöruna.

 

 

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?