Vöktun veiðiáa

Málþing um erfðafræðileg áhrif laxeldis á villta laxastofna

Málþing um erfðafræðileg áhrif laxeldis á villta laxastofna

Erfðanefnd landbúnaðarins efnir til málþings um erfðafræðileg áhrif laxeldis á villta laxastofna fimmtudaginn 1. febrúar nk. 

Tveir starfsmenn Hafrannsóknastofnunar munu halda erindi á málþinginu. Leó Alexander Guðmundsson mun fjalla um rannsókn á erfðablöndun á Vestfjörðum og Ragnar Jóhannsson um áhættumat á erfðablöndun og vöktun áhrifa eldis á náttúrulega laxastofna.

 

Aðalfyrirlesari á málþinginu verður Kevin Glover (Hafrannsóknastofnun Noregs og Háskólinn í Bergen), sem er einn af leiðandi vísindamönnum Noregs á sviði erfðablöndunar eldislax og náttúrulegs lax og vöktunar á erfðafræðilegum áhrifum laxeldis. Mun hann fjalla um stöðu þekkingar á erfðablöndun, umfangi og áhrifum. Fletcher Warren-Myers frá Háskólanum í Melbourne í Ástralíu mun fjalla um rannsóknir sínar á notkun baríum salta til merkingar á eldislöxum svo rekja megi strokulaxa úr eldi til framleiðenda.

Málþingið fer fram í Fróða, fyrirlestrarsal Íslenskrar erfðagreiningar, Sturlugötu 8, og stendur frá kl. 13:00-16:30.

Fundarstjóri: Emma Eyþórsdóttir formaður Erfðanefndar landbúnaðarins

Dagskrá

13:00 Setning

Emma Eyþórsdóttir formaður erfðanefndar landbúnaðarins

13:05 Genetic interaction between farmed and wild salmon: what do we know, and what don’t we know? (Erfðafræðileg áhrif eldislaxa á villta laxa: hvað vitum við og hvað vitum við ekki?)

Dr. Kevin Glover prófessor í erfðafræði við Sea Lice rannsóknarstofnun Háskólans í Bergen og rannsóknarstjóri við Hafrannsóknastofnunina í Noregi.

13:55 Mass marking farmed salmon with barium salts: Application techniques, mark detection rates, fish welfare, and material costs estimates (Merking eldislaxa með baríum söltum: Notkun og árangur aðferðar, dýravelferð og efniskostnaður)

Dr. Fletcher Warren-Myers sérfræðingur við Háskólann í Melbourne, Ástralíu

14:40 Kaffihlé í Tjarnarsal

15:05 Erfðablöndun eldislax og náttúrulegs lax á Vestfjörðum

Leó Alexander Guðmundsson líffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun

15:35 Áhættumat vegna mögulegrar erfðaböndnunar milli eldislaxa og náttúrulegra laxastofna á Íslandi

Dr. Ragnar Jóhannsson sviðstjóri hjá Hafrannsóknastofnun

16:00 Pallborðsumræður. Umræðustjóri Sæmundur Sveinsson, rektor LbhÍ

16:30 Málþingi lýkur

Málþingið er öllum opið meðan húsrúm leyfir.

Nánari upplýsingar á vef Erfðanefndar landbúnaðarins.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?