Innkaupastefna

Framtíðarsýn

Hafrannsóknastofnun kaupir inn vörur og þjónustu á gagnsæjan, skilvirkan og hagkvæman hátt með tilliti til innkaupastefnu ríkisins. Innkaup eru vistvæn og taka mið af nýsköpun. Við innkaup eru ákvarðanir teknar á grundvelli veginna stefnuþátta sem við eiga í samræmi við aðrar stefnur Hafrannsóknastofnunar.

Hlutverk

Við innkaup fylgir Hafrannsóknastofnun lögum um opinber innkaup nr. 120/2016. Hlutverk starfsmanna stofnunarinnar er að skilgreina þörf fyrir aðföng og taka þátt í að skilgreina eiginleika sértækra aðfanga, velja viðeigandi innkaupaaðferðir, framkvæma innkaup og panta aðföng. Eftir atvikum er unnið í samstarfi við Ríkiskaup og aðrar ríkisstofnanir.

Stefna

Hafrannsóknastofnun hefur sem viðmið í innkaupum að:

  • Horfa til umhverfisáhrifa svo sem kolefnisspors, úrgangs og mengunar. Taka skal mið af umhverfisstefnu Hafrannsóknastofnunar við innkaup.
  • Velja hagkvæmasta kostinn að teknu tilliti til allra þátta sem skipta máli og líftíma við greiningu og val á vöru eða þjónustu.
  • Verklagsreglur um innkaup og innkaupaaðferðir séu gagnsæjar og innkaup framkvæmd af þekkingu og fagmennsku.
  • Gæta jafnræðis milli þeirra aðila sem eiga viðskipti við stofnunina.
  • Samnýta aðföng innan stofnunarinnar s.s. við birgðastjórnun.
  • Taka tillit til mannréttinda, heilbrigðis- og öryggissjónarmiða við innkaup.

Gildissvið

Stefnan tekur til allrar starfsemi stofnunarinnar.

Ábyrgð

Rekstrarkostnaður

Framkvæmdastjórn ber ábyrgð á heildaráætlun og forgangsröðun verkefna innan hennar.

Sviðsstjórar og verkefnastjórar bera ábyrgð á þarfagreiningu aðfanga fyrir verkefni.

Svið fjármála og reksturs ber ábyrgð á innkaupum í samræmi við samþykkt fjárhæðarmörk sem skilgreind eru á heimasíðu Ríkiskaupa[1].

Verkefnastjórar og aðrir starfsmenn sem sviðsstjórar hafa veitt umboð hafa heimild til að panta aðföng í samræmi við samþykkta áætlun verkefna.

Svið fjármála og reksturs ber ábyrgð á birgðahaldi og lager.

Fjárfestingar

Framkvæmdastjórn ber ábyrgð á heildaráætlun og forgangsröðun verkefna innan hennar með tækjakauplista.

Sviðsstjórar og verkefnastjórar bera ábyrgð á þarfagreiningu fjárfestinga fyrir verkefni á sínu sviði.

Svið fjármála og reksturs ber ábyrgð á innkaupum í samræmi við samþykkt fjárhæðarmörk sem skilgreind eru á heimasíðu Ríkiskaupa1.

Verkefnastjórar og aðrir starfsmenn sem sviðsstjórar hafa veitt umboð hafa heimild til að panta aðföng í samræmi við samþykkta áætlun verkefna.

 

[1] https://www.rikiskaup.is/is/innkaup_og_utbod/innkaup-skref-fyrirskref/vidmidunarupphaedir-og-tilbodsfrestir

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?