Nýr samskiptastjóri Hafrannsóknastofnunar

Dóra Magnúsdóttir, nýr samskiptastjóri Hafrannsóknastofnunar Dóra Magnúsdóttir, nýr samskiptastjóri Hafrannsóknastofnunar

Dóra Magnúsdóttir hefur verið ráðin í nýtt starf samskiptastjóra Hafrannsóknastofnunar, rannsókna- og ráðgjafarstofnunar hafs og vatna.

Við bjóðum Dóru hjartanlega velkomna til starfa. Þessi nýja staða og sterki liðsauki gerir stofnuninni kleift að fylgja stefnu sinni um aukna áherslu á á upplýsingamiðlun, samskipti og almannatengsl. 

Dóra hefur yfirgripsmikla þekkingu og reynslu á sviði samskipta og almannatengsla. Hún hefur einnig reynslu af markaðsmálum, vef-, verkefna- og viðburðastjórnun sem og blaðamennsku og leiðsögn. Dóra er með meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu (MPA), gráðu í fjölmiðlafræði frá Háskóla Íslands og viðskipta- og markaðsfræði frá Interactive Marketing and Multimedia Academy í Danmörku auk þess að vera með B.Sc.gráðu í landfræði frá HÍ.

Áður en Dóra hóf störf hjá Hafrannsóknastofnun starfaði hún sem fræðslu- og kynningarstjóri hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð. Þar bar hún ábyrgð á námskeiðahaldi stofnunarinnar og öðrum fræðslumálum ásamt kynningar- og vefmálum, samfélagsmiðlum, þróun rafrænnar miðlunar og almannatengslum.

„Við hlökkum til að fá góðan liðsmann til okkar til að efla innri og ytri samskipti Hafrannsóknastofnunar. Við höfum væntingar um að með þessu nýja starfi og breyttum áherslum varðandi samskipti verðum við enn fremri en við höfum verið á sviði almannatengsla og miðlun upplýsinga“ segir Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar.

„Ég er mjög áhugasöm um þá mikilvægu starfsemi sem Hafrannsóknastofnun sinnir enda að upplagi afar forvitin manneskja. Þó ég sé nýbyrjuð hef ég þegar áttað mig á að hér starfar heill her af gríðarlega vel menntuðu og hæfu fólki. Fólk sem býr yfir yfirgripsmikill þekkingu, um lífríki sjávar og vatna, sem nauðsynleg er þjóð sem byggir afkomu sína að miklu leyti á náttúrulegu umhverfi sínu; hafi og vötnum,“ segir Dóra Magnúsdóttir, nýr samskiptastjóri Hafrannsóknastofnunar.

49 manns sóttu um stöðuna og var Dóra valin úr hópi hæfra umsækjenda eftir vandað og ítarlegt umsóknarferli.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?