Brislingur, Sprattus sprattus (Linnaeus, 1758), ný fisktegund við Íslandsstrendur

Nánari upplýsingar
Titill Brislingur, Sprattus sprattus (Linnaeus, 1758), ný fisktegund við Íslandsstrendur
Lýsing

ÁRIÐ 2017 veiddist brislingur (Sprattus sprattus) í fyrsta sinn á Íslandsmiðum svo vitað sé. Á næstu árum fjölgaði brislingum sem veiddust við landið og í rannsóknarleiðangri í mars 2021 fengust alls 375 brislingar, einkum fyrir Suður- og Vesturlandi. Í leiðöngrum haustið 2021 fengust um 300 brislingar, nokkrir við Suðurland og í Faxaflóa en flestir í Arnarfirði og Ísafjarðardjúpi. Með auknu innflæði hlýs sjávar á Íslandsmið síðan árið 1996 hafa nýjar tegundir veiðst við Ísland og talið er líklegt að uppgangur brislings hér við land tengist hærri sjávarhita undanfarin ár. Ekki er enn vitað hvernig hann kom til Íslands en flestir brislingar sem hafa verið kynþroskagreindir hér við land voru kynþroska. Staðfest er að brislingur hrygndi við Ísland sumarið 2021 og það kann að auka líkurnar á því að þessi smávaxna fisktegund sé komin til að vera. Tíminn leiðir síðan í ljós hvort brislingur festir sig í sessi og verður mikilvæg tegund í vistkerfi Íslandsmiða.

Höfundar
Nafn Jónbjörn Pálsson
Nafn Guðjón Már Sigurðsson
Nafn Ingibjörg G. Jónsdóttir
Nafn Klara Björg Jakobsdóttir
Nafn Nicholas Hoad
Nafn Valur Bogason
Nafn Jón Sólmundsson
Flokkun
Flokkur Ritaskrá
Útgáfurit Náttúrufræðingurinn
Útgáfuár 2021
Tölublað 91(3-4)
Blaðsíður 122-131
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?