Endurheimt merki skal senda til Hafrannsóknastofnunar, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, með eftirfarandi upplýsingum:
- veiðivatn, veiðistaður og veiðidagur
- fisktegund, lengd og þyngd
- nafn og heimilisfang veiðimanns
 |
Slöngumerki með númerum, s.k. Spaghetti eða Floy merki. Númerin byrja á tákni IS (fyrir Ísland) og 5 til 6 stafa tölu (dæmi: IS 090999). Merkin eru til í mismunandi litum. Þau eru fest í fiskinn neðan við bakuggann og sjást utan á fiskinum.
|
 |
Örmerki er lítil málmflís sem skotið er í haus fisksins. Flísin er 1,1 mm að lengd og í hana er grafið númer, þ.m.t. landsnúmer fyrir Ísland (63). Fiskurinn er auðkenndur með því að veiðiuggi er klipptur af. Fórna þarf fiskinum til að ná merkinu úr haus fisksins, svo unnt sé að lesa það með smásjárbúnaði.
|
 |
Pit-merki er rafeindamerki sem sett er í kviðarhol fisks. Með sérstökum tækjabúnaði má lesa númer merkisins án þess að fórna fiskinum. Stofnunin hefur lítið notað þessa gerð merkja.
|
 |
Útvarpsmerki eru rafeindamerki sem eru eins og mælimerkin ýmist innvortis eða útvortis. Þau gefa frá sér útvarpsbylgjur sem hægt er að nema úr fjarlægð með sérhæfðum leitarbúnaði. Þannig er hægt að staðsetja hinn merkta fisk af nokkurri nákvæmni. Merkin hafa t.d. verið notuð til að fylgjast með hrygningargöngu laxa og fari gönguseiða. |
