Suður-Landgrunnshlíðar (Suðurbrún)

Landgrunnshlíðar Suðurlands frá Háfadjúpi í vestri til Papagrunns í austri.

Stærð svæðis

32 712 km2

Hlutfall af efnahagslögsögu

4.3 %

Birting ráðgjafar: 10. júní 2026. Útgefið af Hafrannsóknastofnun.


Ráðgjöf

Hafrannsóknastofnun ráðleggur, í samræmi við varúðarsjónarmið til að koma í veg fyrir hnignun búsvæða og vistkerfa, að landgrunnshlíðar Suðurlands frá Háfadjúpi í vestri til Papagrunns í austri og niður fyrir gil og hryggi sem skera landgrunnskantinn skuli njóta verndar. Til að ná þeim markmiðum þarf að friðlýsa svæði sem er 32  712 km2 og koma á vernd þar sem allar athafnir sem snerta botn og/eða geta haft áhrif niður á botn eru óheimilar.

Mynd 1. Landgrunnshlíðar Suðurlands frá Háfadjúpi í vestri til Papagrunns í austri sem lagt er til að vernda.

Forsendur ráðgjafar

Ráðgjöfin byggir á rannsóknum á botnlagi sem er einstakt fyrir hafsvæði Íslands og á lífríkisrannsóknum. Spálíkönum var beitt til að meta útbreiðslu tveggja kóraltegunda sem mynda kóralrif (Hafrannsóknastofnun 2026a). Forsenda ráðgjafar byggir einnig á greiningum viðkvæmra vistkerfa og tegunda inna svæðisins samkvæmt skilgreiningum fyrir hafsvæði í Norður-Atlantshafi (tafla 1 og 2, Hafrannsóknastofnun 2026b).

Tafla 1. Yfirlit yfir svæðið, stærð og helstu forsendur verndunar.

Stærð svæðis: 32  712 km²

Hlutfall af efnahagslögsögu: 4,3 %

Viðkvæm vistkerfi:

- Kóralrif
- Kóralgarðar
- Svampabreiður
- Sæfjaðragarðar

Jarðminjar:

- Gljúfurkerfi með giljum og hryggjum.
- Brattan landgrunnskant.

Tafla 2. Yfirlit yfir fiska og kórala sem eru innan svæðisins og eru á válista Alþjóðanáttúrverndarsamtakanna (IUCN). Verndun er talin hafa jákvæð áhrif á tegundir sem nýta sé svæðið en er ekki ætlað að stýra veiðum nytjategunda.

Tegundir á válista*

Fiskar

Kóralar**

Slétti langhali Coryphaenoides rupestris1

Desmophyllum pertusum2

Djúpkarfi Sebastes mentella1

Paragorgia arborea3

Háfur Squalus acanthias1

Funiculina quadrangularis3

Rauðháfur Centrophorus squamosus1

Kophobelemnon stelliferum3

Gljáháfur Centroscymnus coelolepis1

Pennatula aculeata3

Flatnefur Deania calceus1

Primnoa resedaeformis3

Búrfiskur Hoplostethus atlanticus2

Blálanga Molva dypterygia2

Geirnyt Chimaera monstrosa3

Loðháfur Etmopterus spinax3

* Rauði listi Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN) yfir stöðu fiska í Evrópu og stöðu kórala á heimsvísu og listi OSPAR yfir tegundir sem er ógnað eða hafa hnignað innan OSPAR svæðis I, sem Ísland er innan.

** Fleiri tegundir kórala auk svampa sem einnig finnast innan svæðisins eru á listum ICES/NAFO og NEAFC fyrir viðkvæm vistkerfi og einkennistegundir þeirra.

1Tegund í hættu.

2Tegund í nokkurri hættu.

3Tegund í yfirvofandi hættu.

Áhrif ráðgjafar

Fyrir vistkerfi:

Kóralrif hafa takmarkaða útbreiðslu við Ísland þar sem þau eru nær eingöngu á landgrunninu suður af landinu, í landgrunnskantinum suður og vestur af landinu og að einhverju marki á Reykjaneshrygg. Meiri hluti kóralrifa sem eru á landgrunnsbrúninni eru á megin veiðislóð bolfiska suður af landinu. Kóralrifin á landgrunnskantinum eru því að mestu eyðilögð og aðeins lítill hluti lifandi. Með friðlýsingu svæðisins er vonast til þess að kóralsvæði við landgrunnskantinn og í landgrunnshlíðinni verði ekki fyrir meiri skaða en þegar hefur orðið. Vonir eru einnig bundnar við endurheimt kóralrifa á Öræfagrunni og með stækkun fyrri verndar í Skaftárdjúpi og í Hornafjarðadjúpi.

Fyrir nýtingu svæðisins:

Miðað við afla áranna 2015–2024 verða áhrif svæðisins lítil fyrir veiðar með línu og netum. Miðgildi hlutdeildar ársafla í þessi veiðarfæri á Íslandsmiðum á þessu tímabili var um eða innan við 0,1 % innan svæðanna og hlutdeild í einstökum árum fór hæst í 0,3 %. Fyrir fiskibotnvörpu var miðgildi hlutdeildar ársafla um 0,6 % og í einstöku ári hæst 1 %.

Hlutfall ársafla á árunum 2016–2024 innan svæðis samkvæmt tillögu fyrir hefðbundnar nytjategundir eru: Djúpkarfi (6 % af ársafla), gulllax (19 %), litli karfi (17 %), skötuselur (3 %) og stórkjafta (26 %).

Heimildir og Ítarefni

Hafrannsóknastofnun 2026a. Tillögur Hafrannsóknastofnunar um vernd í hafi 2026. Landgrunnshlíðar Suðurlands frá Háfadjúpi í vestri til Papagrunns í austri. Hafrannsóknastofnun, 10. júní 2026.

Hafrannsóknastofnun 2026b. Inngangur að svæðaráðgjöf. Vernd í hafi. Hafrannsóknastofnun, 10. júní 2026.