| Year | Iceland_Winter | Norway_Winter | Faroes_Winter | Greenland_Winter | Total_Winter | Iceland_Sum.Aut | Norway_Sum.Aut | Faroes_Sum.Aut | Greenland_Sum.Aut | EU_Sum.Aut | Total_Sum.Aut | Total |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1964 | 8.6 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 8.6 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 8.6 |
| 1965 | 49.7 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 49.7 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 49.7 |
| 1966 | 124.5 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 124.5 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 124.5 |
| 1967 | 97.2 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 97.2 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 97.2 |
| 1968 | 78.1 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 78.1 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 78.1 |
| 1969 | 170.6 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 170.6 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 170.6 |
| 1970 | 190.8 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 190.8 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 190.8 |
| 1971 | 182.9 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 182.9 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 182.9 |
| 1972 | 276.5 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 276.5 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 276.5 |
| 1973 | 440.9 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 440.9 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 440.9 |
| 1974 | 461.9 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 461.9 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 461.9 |
| 1975 | 457.1 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 457.1 | 3.1 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 3.1 | 460.2 |
| 1976 | 338.7 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 338.7 | 114.4 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 114.4 | 453.1 |
| 1977 | 549.2 | 0.0 | 24.3 | 0.0 | 573.5 | 259.7 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 259.7 | 833.2 |
| 1978 | 468.4 | 0.0 | 36.2 | 0.0 | 504.6 | 497.5 | 154.1 | 3.4 | 0.0 | 0.0 | 655.0 | 1159.6 |
| 1979 | 521.7 | 0.0 | 18.2 | 0.0 | 539.9 | 442.0 | 124.0 | 22.0 | 0.0 | 0.0 | 588.0 | 1127.9 |
| 1980 | 392.1 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 392.1 | 367.4 | 118.7 | 24.2 | 0.0 | 17.3 | 527.6 | 919.7 |
| 1981 | 156.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 156.0 | 484.6 | 91.4 | 16.2 | 0.0 | 20.8 | 613.0 | 769.0 |
| 1982 | 13.2 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 13.2 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 13.2 |
| 1983 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 133.4 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 133.4 | 133.4 |
| 1984 | 439.6 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 439.6 | 425.2 | 104.6 | 10.2 | 0.0 | 8.5 | 548.5 | 988.1 |
| 1985 | 348.5 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 348.5 | 644.8 | 193.0 | 65.9 | 0.0 | 16.0 | 919.7 | 1268.2 |
| 1986 | 341.8 | 50.0 | 0.0 | 0.0 | 391.8 | 552.5 | 149.7 | 65.4 | 0.0 | 5.3 | 772.9 | 1164.7 |
| 1987 | 500.6 | 59.9 | 0.0 | 0.0 | 560.5 | 311.3 | 82.1 | 65.2 | 0.0 | 0.0 | 458.6 | 1019.1 |
| 1988 | 600.6 | 56.6 | 0.0 | 0.0 | 657.2 | 311.4 | 11.5 | 48.5 | 0.0 | 0.0 | 371.4 | 1028.6 |
| 1989 | 609.1 | 56.0 | 0.0 | 0.0 | 665.1 | 53.9 | 52.7 | 14.4 | 0.0 | 0.0 | 121.0 | 0.0 |
| 1990 | 612.0 | 62.5 | 12.3 | 0.0 | 686.8 | 83.7 | 21.9 | 5.6 | 0.0 | 0.0 | 111.2 | 798.0 |
| 1991 | 202.4 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 202.4 | 56.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 56.0 | 258.4 |
| 1992 | 573.5 | 47.6 | 0.0 | 0.0 | 621.1 | 213.4 | 65.3 | 18.9 | 0.5 | 0.0 | 298.1 | 919.2 |
| 1993 | 489.1 | 0.0 | 0.0 | 0.5 | 489.6 | 450.0 | 127.5 | 23.9 | 10.2 | 0.0 | 611.6 | 1101.2 |
| 1994 | 550.3 | 15.0 | 0.0 | 1.8 | 567.1 | 210.7 | 99.0 | 12.3 | 2.1 | 0.0 | 324.1 | 891.2 |
| 1995 | 539.4 | 0.0 | 0.0 | 0.4 | 539.8 | 175.5 | 28.0 | 0.0 | 2.2 | 0.0 | 205.7 | 745.5 |
| 1996 | 707.9 | 0.0 | 10.0 | 5.7 | 723.6 | 474.3 | 206.0 | 17.6 | 15.0 | 60.9 | 773.8 | 1497.4 |
| 1997 | 774.9 | 0.0 | 16.1 | 6.1 | 797.1 | 536.0 | 153.6 | 20.5 | 6.5 | 47.1 | 763.6 | 1561.5 |
| 1998 | 457.0 | 0.0 | 14.7 | 9.6 | 481.3 | 290.8 | 72.9 | 26.9 | 8.0 | 41.9 | 440.5 | 921.8 |
| 1999 | 607.8 | 14.8 | 13.8 | 22.5 | 658.9 | 83.0 | 11.4 | 6.0 | 2.0 | 0.0 | 102.4 | 761.3 |
| 2000 | 761.4 | 14.9 | 32.0 | 22.0 | 830.3 | 126.5 | 80.1 | 30.0 | 7.5 | 21.0 | 265.1 | 1095.4 |
| 2001 | 767.2 | 0.0 | 10.0 | 29.0 | 806.2 | 150.0 | 106.0 | 12.0 | 9.0 | 17.0 | 294.0 | 1061.2 |
| 2002 | 901.0 | 0.0 | 28.0 | 26.0 | 955.0 | 180.0 | 118.7 | 0.0 | 13.0 | 28.0 | 339.7 | 1294.7 |
| 2003 | 585.0 | 0.0 | 40.0 | 23.0 | 648.0 | 96.5 | 78.0 | 3.5 | 2.5 | 18.0 | 198.5 | 846.5 |
| 2004 | 478.8 | 15.8 | 30.8 | 17.5 | 542.9 | 46.0 | 34.0 | 0.0 | 12.0 | 0.0 | 92.0 | 634.9 |
| 2005 | 594.1 | 69.0 | 19.0 | 10.0 | 692.0 | 9.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 9.0 | 701.1 |
| 2006 | 193.0 | 8.0 | 30.0 | 7.0 | 238.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 238.0 |
| 2007 | 307.0 | 38.0 | 19.0 | 12.8 | 376.8 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 376.8 |
| 2008 | 149.0 | 37.6 | 10.1 | 6.7 | 203.4 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 203.4 |
| 2009 | 15.1 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 15.1 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 15.1 |
| 2010 | 110.6 | 28.3 | 7.7 | 4.7 | 150.7 | 5.4 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 5.4 | 156.1 |
| 2011 | 321.8 | 30.8 | 19.5 | 13.1 | 385.2 | 8.4 | 58.5 | 0.0 | 5.2 | 0.0 | 72.1 | 457.3 |
| 2012 | 576.2 | 46.2 | 29.7 | 22.3 | 674.4 | 9.0 | 0.0 | 0.0 | 1.0 | 0.0 | 10.0 | 684.4 |
| 2013 | 454.0 | 40.0 | 30.0 | 17.0 | 541.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 541.0 |
| 2014 | 111.4 | 6.2 | 8.0 | 16.1 | 141.7 | 0.0 | 30.5 | 0.0 | 5.3 | 9.7 | 45.5 | 187.2 |
| 2015 | 353.6 | 50.6 | 29.9 | 37.9 | 471.9 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 2.5 | 0.0 | 2.5 | 474.4 |
| 2016 | 101.1 | 58.2 | 8.5 | 3.3 | 171.1 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 171.1 |
| 2017 | 196.8 | 60.4 | 15.0 | 27.4 | 299.8 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 299.8 |
| 2018 | 186.3 | 74.5 | 14.3 | 11.4 | 286.5 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 286.5 |
| 2019 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 |
| 2020 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 |
| 2021 | 67.0 | 49.4 | 6.4 | 6.6 | 129.4 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 |
| 2022 | 433.8 | 122.3 | 29.5 | 26.6 | 612.1 | 4.3 | 0.0 | 0.0 | 0.6 | 0.0 | 4.9 | 617.0 |
| 2023 | 325.7 | 50.4 | 22.8 | 46.3 | 445.2 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 |
| 2024 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 |
| 2025 | 5.5 | 0.0 | 0.8 | 3.0 | 9.4 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 9.4 |
| 2026 | 151.8 | 0.0 | 9.0 | 29.3 | 190.1 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 |
Helstu niðurstöður
Stærð veiðistofns loðnu og veiðar úr honum sveiflast milli ára og stjórnast af stærð árganga hverju sinni. Frá því að breytingar urðu á uppeldis- og fæðusvæðum stofnsins um árið 2000 hafa bæði stofnstærð og veiðar að jafnaði verið minni en áður.
Hrygningarstofn loðnu var metinn 566,2 þúsund tonn í haustleiðangri 2026. Að teknu tilliti til mælingarinnar, áætlaðs afráns á loðnustofninn og aflareglu strandríkjanna skal loðnuafli á fiskveiðiárinu 2026/2027 ekki fara yfir 105 773 tonn.
Heildarlífmassi loðnu í haustleiðangri 2026 var metinn 1 022 þúsund tonn. Vísitala fjölda ungloðnu er 65,9 milljarðar, sem bendir til þess að árgangur 2025 (úr hrygningu vorið 2025) sé yfir Utrigger.
Í haustleiðangrinum 2026 tókst að ná yfir helstu útbreiðslusvæði stofnsins. Ekki var þó unnt að kanna svæðin norðan 71°N vegna veðurs og hafíss. Yfirferð á nyrsta hlutanum var því gisin og mælióvissa mikil, og líklega náðist ekki yfir alla útbreiðslu loðnunnar.
Almennar upplýsingar
Loðna er smávaxin og skammlíf uppsjávarfisktegund. Hún er kaldsjávartegund útbreidd á heimskautsvæðum og jöðrum þeirra í Norður-Atlantshafi og Norður-Kyrrahafi. Loðna á svæðinu kringum Ísland, Austur-Grænland og Jan Mayen er talin vera sérstakur stofn, og verður hér eftir vísað til sem ÍSAGJM loðnu.
Loðnuveiðar hófust á Íslandi um miðjan sjöunda áratuginn. Auk þess að vera mikilvægur nytjastofn er loðna lykiltegund í vistkerfi Íslands. Hún nærist á smáum svifdýrum, sérstaklega krabbaflóm, en einnig á marflóm og ljósátu. Loðna er mikilvæg fæða fyrir þorsk, ufsa, ýsu, lúðu og aðrar nytjafiska. Hún er einnig mikilvæg fæða fyrir hvali og fugla. Þannig gegnir loðnan mikilvægu hlutverki í að flytja orku og næringarefni upp í efri lög fæðuvefsins. Kjörhitastig fyrir loðnu er venjulega 1–3°C á fæðugöngu og er það þá oft við syðsta hluta kalds heimskautasjávar. Loðna gengur í torfum til vetursetu og hrygningarsvæða síðla hausts frá fæðusvæðum norður af Íslandi, austan og suðaustan Grænlands. Hún nálgast landgrunnsbrúnina norðan við Ísland og gengur síðan meðfram henni réttsælis umhverfis landið. Hluti megin göngunnar heldur áfram vestur fyrir land. Hrygning fer fram á grunnsævi í mars–apríl í tiltölulega hlýjum sjó sunnan og suðvestan lands. Hrygningar hefur einnig orðið vart norðan við landið en umfang þeirrar hrygningar hefur verið talið lítið samanborið við heildar magnið sem hrygnir í suðri. Meirihluti loðnunnar deyr eftir hrygningu, yfirleitt þriggja ára gömul, en aðallega hrygnur geta lifað af hrygninguna (Christiansen og fél. 2008). Eftir klak reka loðnulirfur með straumum út á landgrunnið norðan Íslands og í breytilegu magni í Grænlandssund og á landgrunn Austur-Grænlands. Uppeldissvæði loðnunnar eru á hafsvæðum norðan við Ísland og í auknum mæli á landgrunninu við Austur-Grænland frá því í upphafi 21. aldar (Bardarson o.fl. 2021; Singh o.fl. 2023). Með göngum sínum flytur loðna geysilega mikla orku inn í vistkerfið á íslenska landgrunninu.
Veiðar
Aflaþróun
Heildarafli loðnu á ÍSAGJM svæðinu hefur sveiflast mikið frá upphafi veiðanna um miðjan sjöunda áratuginn, með hámörkum seint á tíunda áratugnum og snemma á fyrsta áratug þessarar aldar, en umtalsverðum samdrætti í kjölfar þess. Veiðar á ÍSAGJM loðnustofninum á vertíðinni 2025/2026 voru um 190 þúsund tonn. Heildarafli frá upphafi er sýndur á Mynd 1 eftir tíma árs og eftir veiðiþjóð á Mynd 2.
Útbreiðsla veiða
Dreifingu afla íslenskra veiðiskipa eftir árum má sjá á Mynd 3.
Sögulega hefur meirihluti aflans verið veiddur í hringnót, en breytilegt magn í flottroll eftir vertíðum, háð útgefnu aflamarki og hvenær það er gefið út. Talið er að brottkast hafi verið óverulegt. Aflinn 2025/26 var að mestu veiddur í hringnót (98%) en lágt hlutfall veitt í upphafi vertíðar í flottroll (2%).
Loðnuveiðar í flottroll eru aðallega stundaðar við landgrunnsbrúnina norðan, norðaustan og austan Íslands. Hringnótaveiðar, hins vegar, eru að langmestu leyti stundaðar uppá landgrunninu með ströndinni frá Suðausturlandi, vestur fyrir Reykjanes, í Faxaflóa, úti fyrir Snæfellsnesi, inní Breiðaförð og úti fyrir Vestfjörðum í sumum tilvikum (Mynd 5, Mynd 4).
Árið 2026 voru veiðar í nót aðallega stundaðar í mjórri ræmu með ströndinni frá Suðausturlandi vestur að og norður fyrir Reykjanes nánast samfellt inn í Breiðafjörð (Mynd 3).
Heildarafli náði hámarki seint á tíunda áratugnum, yfir 1200 þúsund tonn, en dróst umtalsvert saman frá um 2002 til 2010, samhliða tímabilum lítillar stofnstærðar (Mynd 6). Afladagbækur íslenskra veiðiskipa sýna skýra mynd af sókninni. Aflahlutdeild mismunandi svæða sýnir nokkurn breytileika árin 1993–2026. Ekkert svæði sker sig úr sem mikilvægast fyrr en eftir 2005, þegar aflahlutdeild vestur og suðvestur svæðanna eykst greinilega, sem bendir til að sóknarmynstur veiðanna hafi breyst (Mynd 6). Þegar stofn var stór (seint á 10 áratug síðustu aldar) var loðna veidd víða um á veiðislóðinni, en þegar stofnstærð var lægri veiddist stærri hluti aflans á færri aðalveiðisvæðum suðvestan og vestan lands (Mynd 6).
Sé litið til árstíma hefur langmestur hluti loðnuaflans verið veiddur frá janúar og fram í apríl (Mynd 7). Hringnót hefur sögulega ráðið ríkjum í veiðunum, þótt hlutfall flotvörpu hafi sveiflast og náð 50% og meira um miðjan fyrsta áratug þessarar aldar og aftur vertíðirnar 2021-2023, en hefur lækkað aftur á síðustu árum (Mynd 8).
Flotastærð og sókn
Fiskiskip sem stunda loðnuveiðar nota annað hvort hringnót eða flotvörpu. Útgefið aflamark og tímasetning þess ræðu miklu um hvort veiðarfærið er notað, komi aflamark seint og sé það lítið minnka líkurnar á að flottroll verði notað á vertíðinni.
Fjöldi skipa sem landa 95% af árlegum afla var um 40 að meðaltali á tímabilinu 1993–2004 og fór svo lækkandi til 2009. Fjöldinn jókst um hríð á milli 2009 og 2014 en eftir það hefur fjöldi skipa sem landa 95% aflans minnkað aftur í um 10 skip og náði sögulegu lágmarki árið 2025 (Mynd 9).
Eins og tekið er fram í skýrslu frá rýnifundi WKCAPELIN (‘benchmark’, ICES, 2023) er afli á sóknareiningu ekki talinn áreiðanlegur mælikvarði á stofnstærð loðnu, því hann ræðst af flóknu samspili torfuhegðunar loðnunnar, árangurs veiðitækni og fiskileitar, aflamarki og stjórn veiðanna fremur en loðnuþéttleika og stærð stofnsins.
Tafla 2 gefur yfirlit um loðnulandanir eftir veiðarfærum og árum.
| Ár | Önnur skip (fjöldi) | Afli annarra skipa (þús. tonn) | Hringnót (fjöldi) | Afli Hringnótar (þús. tonn) | Flottroll (fjöldi) | Afli flottralls (þús. tonn) | Heildarafli (th. t) |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 2001 | 0 | 68.8 | 165 | 815.1 | 29 | 115.0 | 998.9 |
| 2002 | 2 | 141.9 | 146 | 846.7 | 59 | 239.4 | 1228.0 |
| 2003 | 0 | 210.9 | 107 | 371.4 | 63 | 319.6 | 901.9 |
| 2004 | 0 | 9.9 | 94 | 367.5 | 50 | 157.0 | 534.4 |
| 2005 | 1 | 0.0 | 90 | 414.5 | 57 | 190.0 | 604.5 |
| 2006 | 0 | 0.0 | 50 | 165.1 | 30 | 23.4 | 188.5 |
| 2007 | 1 | 0.0 | 64 | 258.8 | 34 | 50.5 | 309.3 |
| 2008 | 1 | 1.8 | 46 | 122.3 | 19 | 24.9 | 149.0 |
| 2009 | 0 | 0.0 | 15 | 15.1 | 0 | 0.0 | 15.1 |
| 2010 | 0 | 0.0 | 48 | 113.2 | 4 | 3.2 | 116.4 |
| 2011 | 1 | 51.7 | 64 | 250.9 | 22 | 79.5 | 382.1 |
| 2012 | 0 | 86.9 | 65 | 392.3 | 44 | 197.5 | 676.7 |
| 2013 | 1 | 23.7 | 50 | 335.6 | 30 | 121.3 | 480.6 |
| 2014 | 0 | 0.5 | 39 | 91.9 | 18 | 20.3 | 112.7 |
| 2015 | 0 | 0.0 | 55 | 309.7 | 19 | 44.7 | 354.4 |
| 2016 | 0 | 0.0 | 34 | 96.6 | 4 | 5.4 | 102.0 |
| 2017 | 0 | 0.0 | 42 | 197.9 | 0 | 0.0 | 197.9 |
| 2018 | 0 | 0.0 | 37 | 117.3 | 17 | 71.6 | 188.9 |
| 2021 | 0 | 0.0 | 34 | 69.5 | 21 | 77.9 | 147.4 |
| 2022 | 0 | 0.0 | 46 | 202.1 | 49 | 249.2 | 451.3 |
| 2023 | 0 | 325.7 | 46 | 320.6 | 6 | 5.2 | 651.5 |
| 2025 | 0 | 0.0 | 9 | 5.6 | 0 | 0.0 | 5.6 |
| 2026 | 0 | 0.0 | 37 | 150.9 | 2 | 1.0 | 151.9 |
Heildarafli í fjölda (milljörðum) og þyngd (þúsundum tonna) að hausti er gefinn í Tafla 3 og að vetrarlagi í Tafla 4.
| Ár | Aldur 1 | Aldur 2 | Aldur 3 | Aldur 4 | Aldur 5 | Heildarfjöldi | Heildarþyngd |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1985 | 0.8 | 25.6 | 15.4 | 0.2 | 0.0 | 42.0 | 919.7 |
| 1986 | 0.0 | 10.0 | 23.3 | 0.5 | 0.0 | 33.8 | 772.9 |
| 1987 | 0.0 | 27.7 | 6.7 | 0.0 | 0.0 | 34.4 | 458.6 |
| 1988 | 0.3 | 13.6 | 5.4 | 0.0 | 0.0 | 19.3 | 371.4 |
| 1989 | 1.7 | 6.0 | 1.5 | 0.0 | 0.0 | 9.2 | 121.0 |
| 1990 | 0.8 | 5.9 | 1.0 | 0.0 | 0.0 | 7.7 | 111.2 |
| 1991 | 0.3 | 2.7 | 0.4 | 0.0 | 0.0 | 3.4 | 56.0 |
| 1992 | 1.7 | 14.0 | 2.1 | 0.0 | 0.0 | 17.8 | 298.1 |
| 1993 | 0.2 | 24.9 | 5.4 | 0.2 | 0.0 | 30.7 | 611.6 |
| 1994 | 0.6 | 15.0 | 2.8 | 0.0 | 0.0 | 18.4 | 324.1 |
| 1995 | 1.5 | 9.7 | 1.1 | 0.0 | 0.0 | 12.3 | 205.7 |
| 1996 | 0.2 | 25.2 | 12.7 | 0.2 | 0.0 | 38.4 | 773.7 |
| 1997 | 1.8 | 33.4 | 10.2 | 0.4 | 0.0 | 45.8 | 763.6 |
| 1998 | 0.9 | 25.1 | 2.9 | 0.0 | 0.0 | 28.9 | 440.5 |
| 1999 | 0.3 | 4.7 | 0.7 | 0.0 | 0.0 | 5.7 | 102.4 |
| 2000 | 0.2 | 12.9 | 3.3 | 0.1 | 0.0 | 16.5 | 265.1 |
| 2001 | 0.0 | 17.6 | 1.2 | 0.0 | 0.0 | 18.8 | 294.0 |
| 2002 | 0.0 | 18.3 | 2.5 | 0.0 | 0.0 | 20.8 | 339.7 |
| 2003 | 0.3 | 11.8 | 1.0 | 0.0 | 0.0 | 14.3 | 199.5 |
| 2004 | 0.0 | 5.3 | 0.5 | 0.0 | 0.0 | 5.8 | 92.0 |
| 2005 | 0.0 | 0.4 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.4 | 9.0 |
| 2006 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 |
| 2007 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 |
| 2008 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 |
| 2009 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 |
| 2010 | 0.0 | 0.2 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.2 | 5.4 |
| 2011 | 0.0 | 2.5 | 1.6 | 0.0 | 0.1 | 4.1 | 72.1 |
| 2012 | 0.0 | 0.2 | 0.2 | 0.0 | 0.0 | 0.4 | 10.4 |
| 2013 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 |
| 2014 | 0.0 | 2.2 | 0.6 | 0.0 | 0.0 | 2.8 | 45.5 |
| 2015 | 0.0 | 0.1 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 1.4 | 2.5 |
| 2016 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 |
| 2017 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 |
| 2018 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 |
| 2019 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 |
| 2020 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 |
| 2021 | 0.0 | 2.6 | 0.6 | 0.0 | 0.0 | 4.2 | 77.1 |
| 2022 | 0.0 | 0.0 | 0.1 | 0.0 | 0.0 | 0.2 | 4.9 |
| 2023 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 |
| 2024 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 |
| 2025 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 |
| 2026 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 |
| Ár | Aldur 1 | Aldur 2 | Aldur 3 | Aldur 4 | Aldur 5 | Heildarfjöldi | Heildarþyngd |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1986 | 0 | 0.1 | 9.8 | 6.9 | 0.2 | 17.0 | 391.8 |
| 1987 | 0 | 0.0 | 6.9 | 15.5 | 0.0 | 22.4 | 560.5 |
| 1988 | 0 | 0.0 | 23.4 | 7.2 | 0.3 | 30.9 | 657.2 |
| 1989 | 0 | 0.1 | 22.9 | 7.8 | 0.0 | 30.8 | 665.1 |
| 1990 | 0 | 1.4 | 24.8 | 9.6 | 0.1 | 35.9 | 686.8 |
| 1991 | 0 | 0.5 | 7.4 | 1.5 | 0.0 | 9.4 | 202.4 |
| 1992 | 0 | 2.7 | 29.4 | 2.8 | 0.0 | 34.9 | 621.1 |
| 1993 | 0 | 0.2 | 20.1 | 2.5 | 0.0 | 22.8 | 489.6 |
| 1994 | 0 | 0.6 | 22.7 | 3.9 | 0.0 | 27.2 | 567.1 |
| 1995 | 0 | 1.3 | 17.6 | 5.9 | 0.0 | 24.8 | 539.8 |
| 1996 | 0 | 0.6 | 27.4 | 7.7 | 0.0 | 35.7 | 723.6 |
| 1997 | 0 | 0.9 | 29.1 | 11.0 | 0.0 | 41.0 | 797.6 |
| 1998 | 0 | 0.3 | 20.4 | 5.4 | 0.0 | 26.1 | 481.3 |
| 1999 | 0 | 0.5 | 31.2 | 7.5 | 0.0 | 39.2 | 658.9 |
| 2000 | 0 | 0.3 | 36.3 | 5.4 | 0.0 | 42.0 | 830.3 |
| 2001 | 0 | 0.4 | 27.9 | 6.7 | 0.0 | 35.0 | 787.2 |
| 2002 | 0 | 0.1 | 33.1 | 4.2 | 0.0 | 37.4 | 955.0 |
| 2003 | 0 | 0.1 | 32.2 | 1.9 | 0.0 | 34.4 | 648.0 |
| 2004 | 0 | 0.6 | 24.6 | 3.0 | 0.0 | 28.3 | 542.9 |
| 2005 | 0 | 0.1 | 31.5 | 3.1 | 0.0 | 34.7 | 692.0 |
| 2006 | 0 | 0.1 | 10.4 | 0.3 | 0.0 | 10.8 | 230.0 |
| 2007 | 0 | 0.3 | 19.5 | 0.5 | 0.0 | 20.3 | 376.8 |
| 2008 | 0 | 0.5 | 10.6 | 0.4 | 0.0 | 11.5 | 202.4 |
| 2009 | 0 | 0.1 | 0.6 | 0.1 | 0.0 | 0.7 | 15.1 |
| 2010 | 0 | 0.7 | 5.3 | 0.9 | 0.0 | 6.9 | 150.7 |
| 2011 | 0 | 0.1 | 16.2 | 0.6 | 0.0 | 17.0 | 385.2 |
| 2012 | 0 | 0.6 | 25.0 | 6.1 | 0.0 | 31.8 | 674.4 |
| 2013 | 0 | 0.3 | 12.1 | 9.7 | 0.2 | 22.3 | 541.0 |
| 2014 | 0 | 0.1 | 4.8 | 1.3 | 0.0 | 6.1 | 141.8 |
| 2015 | 0 | 0.3 | 17.5 | 4.7 | 0.1 | 22.7 | 471.9 |
| 2016 | 0 | 0.4 | 5.5 | 2.0 | 0.0 | 8.0 | 171.1 |
| 2017 | 0 | 0.4 | 5.4 | 4.1 | 0.1 | 10.0 | 299.8 |
| 2018 | 0 | 0.6 | 10.4 | 0.9 | 0.0 | 11.9 | 286.5 |
| 2019 | 0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 |
| 2020 | 0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 |
| 2021 | 0 | 0.0 | 4.8 | 0.3 | 0.0 | 5.2 | 129.4 |
| 2022 | 0 | 0.2 | 22.6 | 1.5 | 0.0 | 24.3 | 612.1 |
| 2023 | 0 | 0.0 | 7.9 | 9.2 | 0.1 | 17.2 | 445.2 |
| 2024 | 0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 | 0.0 |
| 2025 | 0 | 0.0 | 0.3 | 0.0 | 0.0 | 0.3 | 9.3 |
| 2026 | 0 | 0.1 | 6.8 | 0.7 | 0.0 | 7.6 | 190.0 |
Gögn og sýnataka
Gögn um veiðarnar
Þekja sýnatöku úr afla miðað við dreifingu veiðanna er almennt góð (Mynd 10), og til er löng tímaröð sýna úr afla. Sýnin eru tekin úr afla í hringnót og flotvörpu, með áherslu á að tryggja fullnægjandi sýnatöku yfir mismunandi svæði og tíma á vertíð.
Sýntaka úr afla
Að minnsta kosti 50–100 einstaklingar í hverju aflasýni eru teknir til nánari greiningar, lengd og þyngd og auk þess er kynþroskastig ákvarðað og kynkirtlar kynþroska fiska vegnir. Aldur fisksins er ákvarðaður með skoðun kvarna undir smásjá, lengdarmælingar eru framkvæmdar með stöðluðum mælibrettum með 1 mm nákvæmni. Líffræðiupplýsingar sem sýnin gefa eru grundvöllur skilnings á aldurssamsetningu og kynþroskahlutfalli loðnustofnsins, sem er aftur forsenda stofnmats og veiðistjórnunarákvarðana. Sýnatökuáætlunin miðar að því að gögnin séu dæmigerð fyrir veiðarnar, dreifingu aflans eftir svæðum og tíma árs, á svipaðan hátt og sýnataka í bergmálsmælingaleiðöngrum er notuð til að meta samsetningu og dreifingu stofnsins.
Tafla 5 sýnir fjölda lengdarmælinga og kvarnasýna til aldursgreingar í aflasýnum eftir árum og veiðarfærum.
| Ár | Fjöldi sýna | Lengdir (Hringnót) | Lengdir (Flottroll) | Kvarnir (Hringnót) | Kvarnir (Flottroll) |
|---|---|---|---|---|---|
| 1993 | 1 | 9304 | 0 | 9292 | 0 |
| 1994 | 1 | 6208 | 0 | 6199 | 0 |
| 1995 | 1 | 5900 | 0 | 5898 | 0 |
| 1996 | 1 | 8438 | 0 | 8400 | 0 |
| 1997 | 1 | 10926 | 500 | 10911 | 500 |
| 1998 | 1 | 7196 | 0 | 7176 | 0 |
| 1999 | 1 | 5388 | 0 | 5385 | 0 |
| 2000 | 1 | 9097 | 0 | 8962 | 0 |
| 2001 | 1 | 8096 | 0 | 8078 | 0 |
| 2002 | 1 | 6322 | 0 | 6006 | 0 |
| 2003 | 0 | 3200 | 0 | 3190 | 0 |
| 2004 | 0 | 3100 | 0 | 3092 | 0 |
| 2005 | 0 | 1950 | 0 | 1943 | 0 |
| 2006 | 0 | 1400 | 0 | 1387 | 0 |
| 2007 | 0 | 3402 | 0 | 3268 | 0 |
| 2008 | 0 | 2899 | 0 | 2889 | 0 |
| 2009 | 0 | 814 | 0 | 796 | 0 |
| 2010 | 0 | 4363 | 0 | 4162 | 0 |
| 2011 | 0 | 4359 | 0 | 4350 | 0 |
| 2012 | 0 | 2465 | 0 | 2426 | 0 |
| 2013 | 0 | 2541 | 0 | 2535 | 0 |
| 2014 | 0 | 3942 | 0 | 3940 | 0 |
| 2015 | 1 | 5538 | 200 | 5528 | 200 |
| 2016 | 0 | 1700 | 0 | 1600 | 0 |
| 2017 | 1 | 6105 | 0 | 5982 | 0 |
| 2018 | 1 | 2295 | 2889 | 2062 | 2888 |
| 2020 | 0 | 0 | 200 | 0 | 200 |
| 2021 | 1 | 4276 | 889 | 4123 | 872 |
| 2022 | 1 | 5048 | 4542 | 4805 | 4519 |
| 2023 | 0 | 1470 | 2376 | 1464 | 2370 |
| 2025 | 0 | 74 | 1274 | 74 | 1273 |
| 2026 | 0 | 1798 | 750 | 1174 | 749 |
Árgangasamsetning og meðalþyngd eftir aldri í afla
Sýnataka úr afla spannar árgangana 1961–2024, og er ætlað að endurspegla aldurssamsetningu loðnu í veiðunum (Mynd 11). Á síðari árum virðast vera færri árgangar í aflanum, vegna þess að veiðar fara aðallega fram á milli janúar og apríl, og loðna sjaldnar veidd að hausti í seinni tíð. Tekið skal fram að þessi árgangagreining endurspeglar kjörhæfni veiðanna en ekki endilega aldurssamsetningu stofnsins, því veiðarnar geta beinst að ákveðnum aldurshópum, og sérstaklega að stærri og eldri einstaklingum.
Fjöldi fiska í sýnum ár hvert jókst frá því um 1980, náði hámarki um miðjan áttunda áratug síðustu aldar, í samræmi við góð aflabrögð um það leyti (Mynd 11). Sýnum fækkaði verulega eftir aldamót, og enn frekar þegar stofninn var lítill. Hvaða árgangur er ráðandi í aflanum er breytilegt á milli ára, og aðeins fáeinir árgangar eru áberandi á fleiri en einni vertíð. Stærsti hluti afla hvers árs er þriggja ára loðna.
Meðalþyngd eftir aldri er breytileg og víkur töluvert frá heildarmeðaltali allra árganga fyrir hvern aldurshóp, sem sýnir að vöxtur einstaklinga sé verulega breytilegur á milli árganga (Mynd 12). Breytileikinn vex með aldri, og sýna sumir árgangar frávik af stærðargráðunni 5–10 g. Eftir árið 2000 hefur meðalþyngd eftir aldri almennt verið hærri en langtímameðaltal, sérstaklega eldri aldurshóparnir (3–5).
Leiðangursgögn
Bergmálsmælingar
Loðnustofninn á Íslands-Austur Grænlands-Jan Mayen svæðinu hefur verið metinn með bergmálsmælingum árlega síðan 1978. Mælingar hafa verið gerðar að haustlagi (september-desember) og á veturna (janúar-febrúar). Frekara yfirlit er að finna í stofnviðauka (stock-annex) vinnunefndar Alþjóða hafrannsóknaráðsins sem fjallar um stofninn NWWG, ICES.
Haustmæling 2026
Haustmælingar á loðnu hafa það að markmiði að meta stærð bæði fullorðins og uppvaxandi hluta loðnustofnsins (Bardarson og fél. 2024). Frá því árið 2010 hafa haustmælingar hafist í september (og að hluta til seint í ágúst) eða mánuði fyrr en árin þar á undan. Þetta var gert vegna vandkvæða við að ná utan um útbreiðslu stofnsins vegna hafíss og erfiðra veðurskilyrða síðla hausts á norðvestlægari fæðuslóð en í upphafi 21. aldar (Vilhjálmsson, 2007).
Fyrir hönd Hafrannsóknastofnunar tók r/s Árni Friðriksson þátt í haustmælingu loðnu 2026 og r/s Tarajoq fyrir hönd Grænlensku náttúrufræðistofnunarinnar (GINR, Grænlenska náttúrufræðistofnunin)(Mynd 13). Rannsóknarsvæðið var á og meðfram landgrunnsbrún Austur-Grænlands frá um 64°30´N að um 71°4´N, og náði einnig yfir Grænlandssund og landgrunnsbrúnina norðvestan við Ísland. Íslandshaf, Kolbeinseyjarhryggur og Grænlandshaf voru ekki könnuð vegna tímaskorts og af sömu ástæðu voru sjó- og svifmælingar takmarkaðar, auk þess sem veður var slæmt.
Almennt takmörkuðu veðurskilyrði og hafís yfirferð rannsóknaskipanna norðan 71°N, og skortur á upplýsingum um botnlag hafði stundum áhrif á val á leiðarlínum og takmarkaði yfirferð í átt að strönd Grænlands (Mynd 13). Afar slæmt veður gerði nauðsynlegt að breyta upphaflegri áætlun og hafís setti leiðangrinum skorður, þannig ekki tókst að finna mörk útbreiðslu loðnunnar. Þótt yfirferð á stærstum hluta leiðangurssvæðisins hafi verið í samræmi við áætlanir og sé talin fullnægjandi, tókst ekki að kanna nyrsta svæðið til fulls vegna hafíss og óveðurs. Kynþroska loðna fannst á nyrsta hluta yfirferðarinnar, nálægt hafísnum (Mynd 13, Mynd 14). Því er líklegt að kynþroska hluti stofnsins sé vanmetinn, en ekki er vitað að hve miklu leyti.
Kynþroska loðna var einkum ráðandi í sýnum á mið- og norðausturhluta yfirferðarinnar meðfram strönd Austur-Grænlands (sjá Mynd 14). Í vestanverðu Grænlandssundi var kynþroska loðna blönduð ókynþroska loðnu, en norðaustar, utan við Scoresby-sund, fannst einkum kynþroska loðna. Öfugt við síðasta ár dreifðist kynþroska loðnan ekki langt austur í Grænlandssundi heldur sáust aðallega sig nálægt vesturjaðri þess. Norðan og norðvestan við Ísland og með suðvesturhluta grænlenska landgrunnsins var að finna ungviði (0-grúppa) af ýmsum tegundum, þar á meðal loðnu sem var ekki magngreind. Ókynþroska loðna var víða á grænlenska landgrunninu, aðallega á suðvesturhluta rannsóknarsvæðisins og í Grænlandssundi (Mynd 14).
Heildar lífmassi loðnu mældist 1 022 þús. tonn, þar af var lífmassi kynþroska hluta stofnsins 566 þús. tonn. Ókynþroska hluti lífmassans var 456 þús. tonn. Vísitala fjölda ókynþroska loðnu var metinn 65,9 milljarðar. Tafla 6 gefur heildarfjölda og lífmassa skipt eftir aldri og lengd.
| Flokkur | Lengd | aldur1 | aldur2 | aldur3 | aldur4 | Heildarfjöldi | Heildarlífmassi (tonn) |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Ungloðnu | 8.5 | 897 | 0 | 0 | 0 | 897 | 2553 |
| Ungloðnu | 9 | 4278 | 0 | 0 | 0 | 4278 | 13930 |
| Ungloðnu | 9.5 | 7727 | 69 | 0 | 0 | 7796 | 33240 |
| Ungloðnu | 10 | 10768 | 0 | 0 | 0 | 10768 | 49824 |
| Ungloðnu | 11 | 11564 | 0 | 0 | 0 | 11564 | 65497 |
| Ungloðnu | 11.5 | 9058 | 207 | 0 | 0 | 9265 | 60446 |
| Ungloðnu | 12 | 5584 | 700 | 0 | 0 | 6284 | 45565 |
| Ungloðnu | 12.5 | 2291 | 927 | 0 | 0 | 3218 | 26747 |
| Ungloðnu | 13.5 | 604 | 1630 | 0 | 0 | 2234 | 22311 |
| Ungloðnu | 14 | 414 | 2266 | 0 | 0 | 2680 | 30397 |
| Ungloðnu | 14.5 | 37 | 2148 | 106 | 0 | 2291 | 29329 |
| Ungloðnu | 15 | 0 | 2136 | 0 | 0 | 2136 | 30155 |
| Ungloðnu | 16 | 0 | 1609 | 111 | 0 | 1720 | 28232 |
| Ungloðnu | 16.5 | 0 | 460 | 0 | 0 | 460 | 8542 |
| Ungloðnu | 17 | 0 | 212 | 0 | 0 | 212 | 4450 |
| Ungloðnu | 17.5 | 0 | 74 | 0 | 0 | 74 | 1624 |
| Ungloðnu | 18.5 | 0 | 37 | 0 | 0 | 37 | 716 |
| Ungloðnu | 19 | 0 | 37 | 0 | 0 | 37 | 1068 |
| Ungloðnu | 20 | 0 | 0 | 27 | 0 | 27 | 968 |
| Kynþroska | 8.5 | 69 | 0 | 0 | 0 | 69 | 469 |
| Kynþroska | 9 | 276 | 0 | 0 | 0 | 276 | 2056 |
| Kynþroska | 10 | 69 | 0 | 0 | 0 | 69 | 531 |
| Kynþroska | 10.5 | 69 | 503 | 0 | 0 | 572 | 6018 |
| Kynþroska | 11.5 | 0 | 1864 | 0 | 0 | 1864 | 21800 |
| Kynþroska | 12 | 27 | 3002 | 37 | 0 | 3065 | 40673 |
| Kynþroska | 13 | 0 | 3752 | 244 | 0 | 3996 | 59188 |
| Kynþroska | 14 | 0 | 4153 | 270 | 0 | 4423 | 74524 |
| Kynþroska | 14.5 | 0 | 3112 | 328 | 69 | 3509 | 66211 |
| Kynþroska | 15.5 | 0 | 4205 | 461 | 69 | 4735 | 100396 |
| Kynþroska | 16 | 0 | 2041 | 381 | 0 | 2423 | 56609 |
| Kynþroska | 17 | 0 | 1566 | 397 | 0 | 1963 | 51338 |
| Kynþroska | 18 | 0 | 870 | 133 | 0 | 1004 | 29872 |
| Kynþroska | 18.5 | 0 | 807 | 101 | 69 | 976 | 32205 |
| Kynþroska | 19.5 | 0 | 244 | 144 | 0 | 388 | 14576 |
| Kynþroska | 20 | 0 | 117 | 138 | 0 | 255 | 9710 |
| Kynþroska | Samtals | 510 | 26237 | 2633 | 207 | 29587 | 566176 |
| Ungloðnu | Samtals | 53221 | 12511 | 244 | 0 | 65975 | 455594 |
Í leiðangrinum um borð í r/s Árna Friðrikssyni voru hvalir taldir, og voru hnúfubakar (Megaptera novaeangliae) og höfrungar algengastir. Ítarleg leiðangursskýrsla verður gefin út í ritröð Hafrannsóknastofnunar (Haf- og vatnarannsóknir).
Þyngd eftir aldri í stofni
Söguleg þróun meðalþyngdar eins til þriggja ára ungloðnu í haustmælingum er sýnd á Mynd 15 og meðalþyngdar eins til fjögurra ára kynþroska loðnu á Mynd 16. Meðalþyngdir allra aldurshópa hafa almennt hækkað frá upphafi 21. aldar. Breytileiki í meðalþyngd 4 ára fiska er mikill (Mynd 16) því matið er byggt á tiltölulega fáum fiskum og ber því að túlka þær niðurstöður varlega.
Aldurssamsetning stofnsins
Bergmálsmæling á ókynþroska loðnu haustið 2026 var 65,9 milljarðar. Þessi vísitala er yfir langtímameðaltali (Mynd 17, Mynd 24). Upphafsráðgjöf samkvæmt aflareglu fyrir fiskveiðiárið 2027/2028 verður gefin út af ICES og Hafrannsóknastofnun í júní 2027.
Bergmálsmat á fjölda kynþroska í loðnustofninum haustið 2026 var 29,6 milljarðar. Matið er undir langtímameðaltali (Mynd 18). Veður og hafís takmörkuðu þó yfirferð á útbreiðslusvæði kynþroska loðnunnar. Því er líklegt að kynþroska hluti stofnsins sé vanmetinn, en ekki er vitað hversu mikið.
Niðurstöður afránslíkans og lokaráðgjöf
Að loknum haustleiðangri 2026 (Undirkafli 5.2) og mati á stofnstikum (eru tilgreindar í ráðgjafarskjali 2026/2027) og óvissu þeirra, voru 100 þúsund slembivalshermanir með endurísetningu (bootstrap) á kynþroska hluta stofnsins notaðar sem upphafsgildi í keyrslum afránslíkansins. Miðgildi upphafsgilda veiðistofns var 566 200 tonn (CV=0.19) og kemur frá niðurstöðum haustleiðangursins 2026.
Niðurstöður keyrslna afránslíkansins eru gefnar í Tafla 7 og sýndar á Mynd 20 og Mynd 21.
| meðatal | 5% | 25% | 50% | 75% | 95% | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Hrygningarstofn | SSB | 275990 | 114010 | 197580 | 266260 | 344180 | 470200 |
| Afrán | Predation | 134940 | 89630 | 113180 | 132280 | 153820 | 189680 |
Líkanið (ICES 2023, ICES 2024) tekur til afráns þorsks, ýsu og ufsa á göngutíma loðnunnar frá 15. janúar til 15. mars. Flæðirit sem sýnir hvernig líkanið er uppsett má finna á Mynd 19.
Afránslíkanið (ICES 2023, ICES 2024) á við um þann hluta loðnustofnsins sem gengur réttsælis í kringum Ísland. Flest ár hefur meirihluti stofnsins farið þessa leið, og næstum öll veiði hefur verið tekin úr þessum hluta stofnsins. Gert er ráð fyrir að allur loðnustofninn sé fyrir austan land 15. janúar, og 15. mars er gert ráð fyrir að allur loðnustofninn hrygni í suður- og suðvesturhlutanum, með hærra hlutfalli í suðvestri. Gert er ráð fyrir að afræningjarnir (þorskur, ýsa og ufsi) séu dreifðir í samræmi við meðaldreifingu þeirra í stofnmælingu botnfiska í mars frá 1985 fram að síðasta ári. Heildarfjöldi í stofnum afræningja er byggður á spá fyrir núverandi ár út frá mati fyrra árs.
Yfirlit yfir söguleg gildi kynþroska hluta loðnustofnsins (veiðistofninn), áætlaða stærð hrygningarstofns sem eftir verður til hrygningar samkvæmt afránslíkaninu, spáð heildarafrán á tímabilinu 15. janúar – 15. mars ár hvert og afránsdánarstuðla þorsks, ýsu og ufsa sem notaðir voru er sýnt í Mynd 22.
Loðnuvertíðin 2026/2027
Upphafsráðgjöf
Í júní 2026 var gefin upphafsráðgjöf fyrir vertíðina 2026/27 því vísitala ókynþroska í haustleiðangri 2025 var 118.7 milljarðar, sem er hærra en Utrigger (50 milljarðar). Byggt á aflareglunni (sjá Undirkafli 10), var upphafsaflamark 358 044 t fyrir fiskveiðiárið 2026/2027 (Mynd 23).
Milliráðgjöf fyrir fiskveiðiárið 2026/2027
Mat á stærð kynþroska hluta loðnustofnsins með bergmálsmælingum í ágúst og september 2026 (sjá Undirkafli 5.2) og niðurstöður afránslíkans benda til að markmið aflareglunnar um að skilja eftir að lágmarki 114 þús tonn til hrygningar með 95 % líkum myndu nást með 158 660 tonna aflamarki. Með varúðarviðbót aflareglunnar fyrir milliráðgjöf (2/3 af útreiknuðu aflamarki) verður ráðgjöf um aflamark nú 105 773 tonn, fyrir loðnuvertíðina 15. október 2026 til 15. apríl 2027.
Staða stofnsins
Miðgildi lífmassa veiðistofns er metið 566 200 tonn haustið 2026. Afránslíkan (ICES, 2015), sem tekur mið af veiðum og afráni á milli mælinga og hrygningar af völdum þorsks, ufsa og ýsu, áætlaði að 275 990 tonn yrði miðgildi lífmassa skilið eftir til hrygningar vorið 2027 miðað við veiðar í samræmi við aflareglu (Tafla 7). Að teknu tilliti til óvissumatsins eru meiri en 95 % líkur á að minnsta kosti 114 000 tonn verði skilin eftir til hrygningar, ef veidd verða 105 773 tonn af loðnu.
Bergmálsmæling á fjölda ókynþroska loðnu í haustleiðangri 2026 var 65,9 milljarðar. Matið er yfir langtímameðaltali (Mynd 24) og upphafsráðgjöf samkvæmt aflareglu fyrir loðnuvertíðina 2027/28 byggt á þeim fjölda verður gefin út af ICES og Hafrannsóknastofnun í júní 2027.
Áætluð stærð hrygningarstofns (SSB) á hrygningartíma (mars-apríl) hefur verið endurreiknuð fyrir árin 1981-2026 (Mynd 25), með líkaninu sem var tekið upp 2015 og 2023. Endurmatið tekur mið af óvissu í bergmálsmælingum og beitir afránslíkani sem var innleitt árið 2015. Óvissan í bergmálsmælingum var endurreiknuð fyrir árin 2002-2006 og 2012-2014 með því að endurreikna bergmálsvísitölur og beita slembivalshermunum með endurísetningu (e. bootstrapping). Fyrir tímabilið frá 2015 hefur óvissan verið tiltæk þar sem ráðgjöf hefur verið veitt út frá nýrri aflareglu. Fyrir fyrri ár var óvissan í bergmálsmælingum áætluð með því að skoða leiðangursskýrslur sem og texta frá Hjálmari Vilhjálmssyni (1994). Áætlað var að óvissutölurnar (CV) væru á bilinu 0,15-0,25 og voru þær notaðar sem margfaldari í lognormal dreifingu yfir meðalgildi frá sömu heimildum.
Óvissa í mati og framreikningum
Óvissa í mati og framreikningum er háð gæðum bergmálsmælinga, m.t.t. yfirferðar, skilyrða til mælinga og dreifingar loðnunnar. Þannig leiðir hnappdreifing til hás breytileika en jöfn dreifing hins gagnstæða.
Óvissan er áætluð með slembivalshermunum með endurísetningu (sjá ICES 2015). Frávikshlutfall (CV) mats á fjölda óþroska var áætlað 0,11 í haustmælingu 2026, en fyrir kynþroska hluta stofnsins var það nokkru hærra eða 0,19. Þó að haustleiðangurinn 2026 hafi verið háður tímatakmörkunum er talið að hann hafa náð yfir dreifingu ókynþroska hluta stofnsins.
Yfirferð á stærstum hluta rannsóknasvæðisins var í samræmi við leiðangursáætlun og telst fullnægjandi. Ekki var þó hægt að kanna nyrsta svæðið að fullu vegna hafíss og slæmra veðurskilyrða. Kynþroska loðna var á þessu svæði og ekki náðist að norðurmörkum útbreiðslunnar (núlllínu). Því er líklegt að kynþroska hluti stofnsins sé vanmetinn, en ekki er vitað hversu mikið.
18 kHz botnstykkin voru ókvörðuð á báðum skipum. Það gerði erfitt að greina ókynþroska loðnu frá loðnuseiðum (0-grúppu) með fjöltíðnigreiningu. Þetta veldur nokkurri óvissu um útbreiðslu ókynþroska loðnu, en ekki er búist við að það hafi mikil áhrif á niðurstöður stofnmatsins, þar sem 38 kHz tíðnin er notuð við matið en ekki 18 kHz.
Samþykkt fiskveiðistjórnunaráætlun og aflaregla
Strandríkin Ísland, Grænland og Noregur komust að samkomulagi (Anon. 2015; Anon. 2023) um að nota eftirfarandi aflareglu (HCR) sem grundvöll fiskveiðistjórnunar sem var þróuð og yfirfarin hjá ICES (ICES, 2015; ICES, 2023).
Markmið aflareglunnar er að setja lokaaflamark (final TAC) sem tryggir með 95% líkum að eftir standi að lágmarki 114 þús. tonn til hrygningar. Til þess að þetta náist er farið til bergmálsmælinga á tímabilinu frá september til febrúar og ráðgjöf um aflamark gefin í þremur skrefum: sem upphafsráðgjöf, milliráðgjöf og lokaráðgjöf.
Upphafsráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár byggi á mati á stærð ókynþroska hluta stofnsins (Uimm) að loknum bergmálsmælingum að hausti (september-október).
Tveir fastar eru ákveðnir:
Utrigger = 50 milljarðar ókynþroska loðnu.
TACMax = 400 þús. tonn þegar U > 127 milljarðar ókynþroska.
Aðferðin við að setja upphafs/bráðabirgðaaflamark er:
TAC = 0 ef Uimm < 50 milljarðar.
TAC = 5.211702 x (Uimm - Utrigger) þús. tonn fyrir Uimm á bilinu 50-127 milljarðar.
TAC = 400 þús. tonn fyrir Uimm > 127 milljarðar.
Milliráðgjöf fyrir yfirstandandi fiskveiðiár er gefin að loknum bergmálsmælingum að hausti. Stærð kynþroska hluta stofnsins (SSB) er metin með óvissu og lögð við gögn um spáða stærð og dreifingu afræningja, og notuð sem upphafsgildi í afránslíkanakeyrslum sem gera ráð fyrir mismiklum veiðum fram að hrygningu í mars. Milliráðgjöf um aflamark er sett sem 2/3 af þeim afla sem gæfi p(SSB < Blim = 114 þús. tonn) < 0.05.
Lokaráðgjöf er gefin að loknum bergmálsmælingum að vetrarlagi (janúar-febrúar). Stærð hrygningastofns (SSB) er metin með óvissu og lögð við gögn um spáða stærð og dreifingu afræningja. Lokaaflamark byggir á öllum bergmálsmælingum frá hausti að vetri. Niðurstöðurnar eru notaðar sem upphafsgildi í afránslíkanakeyrslum sem gera ráð fyrir mismiklum veiðum fram að hrygningu í mars. Lokaráðgjöf um aflamark er sett sem sá afli sem gæfi p(SSB < Blim) = 114 þús. tonn) < 0.05. Aflareglan sem var yfirfarin hjá ICES (2023) gerir ráð fyrir að haustmælingin vegi að hámarki 1/3 á móti mælingum að vetrarlagi.
Viðmiðunarmörk
| Nálgun | Viðmiðunarmörk | Gildi | Grundvöllur | Heimildaskrá |
|---|---|---|---|---|
| Nálgun sem gefur hámarksafrakstur til lengri tíma (MSY) | MSY Bescapement | Ekki skilgreint* | ||
| Nálgun sem gefur hámarksafrakstur til lengri tíma (MSY) | FMSY | Ekki skilgreint | ||
| Varúðarnálgun | Blim | 114 000 | Blim = Bloss, Meðalstærð þriggja lítilla hrygninga sem skiluðu meðalnýliðun (ár 1981,1982 og 1990), í tonnum | ICES (2023) |
| Aflaregla | Bmgt | 114 000 | Hluti af aflareglu; í tonnum | Skilgreint í samræmi við samþykkta aflareglu (Anon 2023) |
| Aflaregla | Utrigger | 50 | Hluti af aflareglu; á skala nýliðunarvísitölu, í milljörðum | ICES (2015) |
| Aflaregla | Cap | 127 | Hluti af aflareglu; á skala nýliðunarvísitölu, í milljörðum | ICES (2015) |
- MSY Bescapement hefur ekki verið skilgreint, þar sem aflareglan notar beint >95% líkur á að SSB verði yfir Blim.
Stjórnunarsjónarmið
Fyrr á árum voru loðnuveiðar bannaðar í apríl fram að júnílokum en vertíðin hófst í júlí/ágúst eða seinna, allt eftir ástandi stofnsins.
Svæðum þar sem mikill fjöldi ókynþroska eins og tveggja ára loðnu fannst (á landgrunninu úti fyrir Norðvestur-, Norður og Norðausturlandi) var oft lokað fyrir sumar- og haustloðnuveiðum.
Heimilt er að flytja afla úr nót eins skips yfir á annað skip, til að forðast brottkast. Ef aflinn er umfram burðargetu skipsins og ekkert annað skip er í nánd er þó leyfilegt að sleppa niður umfram afla. Undanfarin ár hefur slíkt brottkast ekki verið algengt samkvæmt skráningum. Vinnsluskip hafa ekki leyfi til að henda loðnu til að samræma afla vinnslugetu.
Á Íslandsmiðum eru veiðar með flotvörpu eingöngu leyfðar á takmörkuðu svæði undan NA-landi (veiðar í janúar) til að vernda ungloðnu og til að draga úr hættu á að hafa neikvæð áhrif á hrygningargönguna.
Síðan árið 2021 hafa veiðar ekki hafist fyrr en 15. október sem varúðarráðstöfun til að vernda ungloðnu og var það samkvæmt samkomulagi milli strandríkjanna (Ísland, Grænland og Noregur).
Fiskveiðistjórnunarsaga stofnsins
Frá upphafi níunda áratugarins var loðnuveiðum stýrt þannig að 400 000 tonn voru skilin eftir til hrygningar, án þess að taka tillit til óvissu í matinu.
Ný aflaregla og fiskveiðistjórnunaráætlun var þróuð á rýnifundi ICES árið 2015 og tekin upp sama ár (ICES, 2015). Helstu breytingar voru að tekið var tillit til óvissu í mælingum og afráni á loðnustofninum fram að hrygningu. Á rýnifundi ICES 2022 (ICES, 2023) voru gerðar minniháttar breytingar sem strandríkjafundur samþykkti að miða ráðgjöf við. Þær breytingar fólust meðal annars í að Blim var lækkað úr 150 þús. tonnum í 114 þús. tonn (Mynd 26) vegna endurútreikninga á sögulegri stærð hrygningarstofnsins.
Tafla 8 sýnir sögu aflamarks og ráðgjafar fyrir loðnu á ÍSAGJM svæðinu frá 1981. Taflan inniheldur árið, upphafsaflamark sett á grundvelli haustmælingar, milliaflamark sett á grundvelli afránslíkans og haustmælingar, og lokaaflamark sett á grundvelli allra tiltækra mælinga og afránslíkansins. Taflan inniheldur einnig skráðan afla hvers árs.
Fiskveiðiár | Upphafstillaga | Lokatillaga | Lokaflamark | Afli alls |
|---|---|---|---|---|
1986/1987 | 1 100 000 | 1 333 400 | 1 290 000 | 1 334 000 |
1987/1988 | 500 000 | 1 115 800 | 1 115 000 | 1 117 000 |
1988/1989 | 900 000 | 1 036 500 | 1 065 000 | 1 036 000 |
1989/1990 | 900 000 | 807 800 | 900 000 | 808 000 |
1990/1991 | 600 000 | 313 600 | 250 000 | 313 000 |
1991/1992 | 0 | 677 100 | 740 000 | 677 000 |
1992/1993 | 500 000 | 787 700 | 900 000 | 788 000 |
1993/1994 | 900 000 | 1 178 700 | 1 250 000 | 1 179 000 |
1994/1995 | 950 000 | 863 900 | 850 000 | 864 000 |
1995/1996 | 800 000 | 929 300 | 1 390 000 | 926 000 |
1996/1997 | 1 100 000 | 1 570 900 | 1 600 000 | 1 569 000 |
1997/1998 | 850 000 | 1 244 900 | 1 265 000 | 1 245 000 |
1998/1999 | 950 000 | 1 099 400 | 1 200 000 | 1 100 000 |
1999/2000 | 866 000 | 1 000 000 | 1 000 000 | 931 000 |
2000/2001 | 650 000 | 1 110 000 | 1 090 000 | 1 070 000 |
2001/2002 | 700 000 | 1 300 000 | 1 300 000 | 1 249 000 |
2002/2003 | 690 000 | 1 000 000 | 1 000 000 | 989 000 |
2003/2004 | 555 000 | 875 000 | 900 000 | 743 000 |
2004/2005 | 335 000 | 985 000 | 985 000 | 784 000 |
2005/2006 | 0 | 238 000 | 235 000 | 247 000 |
2006/2007 | 0 | 385 000 | 385 000 | 377 000 |
2007/2008 | 207 000 | 207 000 | 207 000 | 203 000 |
2008/2009 | 0 | 0 | 0 | 15 000 |
2009/2010 | 0 | 150 000 | 150 000 | 151 000 |
2010/2011 | 0 | 390 000 | 390 000 | 391 000 |
2011/2012 | 366 000 | 765 000 | 765 000 | 748 000 |
2012/2013 | 0 | 570 000 | 570 000 | 551 000 |
2013/2014 | 0 | 160 000 | 160 000 | 142 000 |
2014/2015 | 225 000 | 580 000 | 580 000 | 517 000 |
2015/2016 | 53 600 | 173 000 | 173 000 | 173 500 |
2016/2017 | 0 | 299 000 | 299 000 | 297 732 |
2017/2018 | 0 | 285 000 | 285 000 | 287 000 |
2018/2019 | 0 | 0 | 0 | 0 |
2019/2020 | 0 | 0 | 0 | 0 |
2020/2021 | 169 520 | 127 300 | 127 300 | 128 647 |
2021/2022 | 400 000 | 869 600 | 869 600 | 689 200 |
2022/2023 | 400 000 | 459 800 | 459 800 | 330 051 |
2023/2024 | 0 | 0 | 0 | 0 |
2024/2025 | 0 | 8 589 | 8 589 | 9 439 |
2025/2026 | 46 384 | 197 474 | 197 474 | 190 086 |
2026/2027 | 358 044 |
Vistkerfisjónarmið
Loðna er undirstöðutegund í fæðu margra helstu nytjastofna við Ísland og búast má við að ef breyting verður á útbreiðslu hennar, þá muni það hafa áhrif á framleiðni afræningja.
Mikilvægi loðnu við Austur-Grænland er ekki vel skjalfest en aukið hefur verið til muna rannsóknum í haustmælingum til að meta hlutverk loðnu í lífríkinu, t.d. með rannsóknum á áti loðnu, mati á fæðuframboði, útbreiðslu afræningja og umhverfisvöktun (Petursdottir o.fl. 2026; Sigurðsson o.fl. 2026; Singh o.fl. 2026).
Á Íslandsmiðum er loðnan helsta einstaka fæðutegundin í fæðu þorsks, en hún er einnig lykilbráð nokkurra tegunda sjávarspendýra og sjófugla og er einnig mikilvæg fæða nokkurra annarra nytjafisktegunda (sjá t.d. Vilhjálmsson, 2002; Singh o.fl. 2023). Fæðurannsóknir þorsks í stofnmælingu botnfiska í mars sýna vel mikilvægi loðnu í fæðu hans og jafnframt breytileika í aðgengi að loðnu milli ára (Mynd 27). Hlutfallsleg tíðni loðnu í magainnihaldi þorsks sýnir breytileika milli ára og kemur í sumum tilvikum heim og saman við mismunandi gangnamynstur vetrargöngunnar eins og sást í febrúar 2026 hjá þeim hluta kynþroska stofnsins sem var á leið vestur (Mynd 27).
Heimildaskrá
Anon. 2015. Agreed Record of Conclusions of Coastal State consultations on the management of the capelin stock in the Iceland–East Greenland–Jan Mayen area. Reykjavík, Iceland. 7–8 May 2015. https://www.regjeringen.no/contentassets/37b66bdf33d84e99924bb27553641719/samledokument-lodde-mai-2015---agreed-records---bilateral-avtale.pdf. Last accessed: 17 November 2022.
Anon. 2023. Framework arrangement between Greenland and Iceland on the conservation and management of capelin. 2023. Reykjávik, Iceland 3 July 2023. 4 pp. https://www.althingi.is/altext/pdf/154/fylgiskjol/s1655-f_I.pdf Last accessed: 31 May 2025.
Bardarson, B, Heilman, L, Jonsson, SÞ and Jansen, T 2024. Cruise report of acoustic assessment of the Iceland-East Greenland-Jan Mayen capelin stock in the autumn 2024. Kver Hafrannsóknastofnunar. KV2024-10. 18 pp.
Bardarson, B, Gudnason, K, Singh, W, Petursdottir, H, & Jonsson, SÞ (2021). Loðna (Mallotus villosus). Í Guðmundur J. Óskarsson (ritstj.), Staða umhverfis og vistkerfa í hafinu við Ísland og horfur næstu áratuga. Haf- og vatnarannsóknir, HV 2021-14, 31–34.
Christiansen, JS, Præbel, K, Siikavuopio, SI, Carscadden, JE 2008. Facultative semelparity in capelin Mallotus villosus (Osmeridae)-an experimental test of a life history phenomenon in a sub-arctic fish, Journal of Experimental Marine Biology and Ecology, Volume 360, Issue 1, 2008, Pages 47-55, ISSN 0022-0981, https://doi.org/10.1016/j.jembe.2008.04.003.
Engilbertsson, V, Óskarsson, GJ and Marteinsdóttir, G (2012). Inter-annual Variation in Fat Content of the Icelandic Capelin. ICES CM 2013/N:26.
Gjøsæter, H, Bogstad, B, and Tjelmeland, S 2002. Assessment methodology for Barents Sea capelin, Mallotus villosus (Müller). – ICES Journal of Marine Science, 59: 1086–1095.
Gudmundsdottir, A, and Vilhjálmsson, H 2002. Predicting Total Allowable Catches for Icelandic capelin, 1978–2001. ICES Journal of Marine Science, 59: 1105–1115.
Gudmundsdottir, A, and Sigurdsson, Th 2014. Growth of capelin in the Iceland-East Greenland-Jan Mayen area. NWWG 2014/WD:29.
ICES. 2015. Report of the Benchmark Workshop on Icelandic Stocks (WKICE), 26-30 January, 2015. ICES Headquarters. ICES CM 2015/ACOM:31. 335 pp.https://doi.org/10.17895/ices.pub.5295
ICES. 2023. Benchmark workshop on capelin (WKCAPELIN). ICES Scientific Reports. 5:62. 282 pp. https://doi.org/ices.pub.23260388
ICES 2024. Capelin (Mallotus villosus) in subareas 5 and 14 and Division 2.a west of 5°W (Iceland and Faroes grounds, East Greenland, Jan Mayen area). ICES Advice: Recurrent Advice. Report. https://doi.org/10.17895/ices.advice.25663980.v1
Jansen, T, Hansen, FT, Bardarson, B 2021. Larval drift dynamics, thermal conditions and the shift in juvenile capelin distribution and recruitment success around Iceland and East Greenland. Fisheries Research 236.
Hafrannsóknastofnun. 2024. Astand nytjastofna sjávar og ráðgjöf 2024,ráðgjöf um loðna. Hafrannsóknastofnun, 11 October 2024.
Petursdottir H, Jansen T, Silva T, o.fl. 2026. Diet composition and feeding behavior of capelin (Mallotus villosus) in the changing Iceland–East Greenland–Jan Mayen ecosystem. Rev Fish Biol Fish, 36(1). https://doi.org/10.1007/s11160-025-10022-3.
Sigurðsson GM, Víkingsson G, Chosson V o.fl. 2026. Spatiotemporal co-occurrence of whales and capelin on the east Greenland shelf during autumn. Mar Biol, 173(1). https://doi.org/10.1007/s00227-025-04778-2.
Singh, W, Ólafsdóttir, AH, Jónsson, SÞ, Óskarsson, GJ 2023. Loðna á tímum umhverfisbreytinga. Haf- og vatnarannsóknir, HV 2023-33. https://www.hafogvatn.is/static/research/files/lodnurannsoknir_skyrsla2023.pdf
Singh W, Giorgi E, Jónsson S et al. 2026 Habitat characterization of capelin along East Greenland: insights from hydrographic conditions and feeding distribution patterns. Rev Fish Biol Fish, 36(1). https://doi.org/10.1007/s11160-025-10019-y.
Vilhjálmsson, H 1994. The Icelandic capelin stock. Capelin, Mallotus villosus (Müller), in the Iceland– Greenland–Jan Mayen area. Rit Fiskideildar, 13: 281 pp.
Vilhjálmsson, H 2002. Capelin (Mallotus villosus) in the Iceland–East Greenland–Jan Mayen ecosystem.ICES Journal of Marine Science: Journal du Conseil, 59: 870–883.
Vilhjálmsson, H 2007. Impact of changes in natural conditions on ocean resources. Law, science and ocean management 11, 225.
Orðskýringar
Skammstafanir og vísitölur notaðar í skýrslunni:
| Hugtak | Skilgreining |
|---|---|
| Blim | Neðri viðmiðunarmörk lífmassa (114 000 tonn fyrir loðnu); lágmarkslífmassi hrygningarstofns sem skal viðhalda með 95% líkum |
| CV | Breytileikastuðull; mælikvarði á óvissu eða breytileika í leiðangursmati |
| GINR | Grænlenska náttúrufræðistofnunin (Greenland Institute of Natural Resources) |
| HCR | Aflaregla; samþykkt stjórnunarstefna strandríkja til að setja aflamark á grundvelli stofnmats |
| Hafró | Hafrannsóknastofnun |
| ICES | Alþjóða hafrannsóknaráðið (International Council for the Exploration of the Sea) |
| ÍSAGJM | Ísland–Austur-Grænland–Jan Mayen svæðið; stjórnunarsvæði þessa loðnustofns |
| NASC | Flatarstuðull eða -þéttleiki endurvarps í fermetrum á fersjómílu; mælieining notuð í bergmálsmælingum |
| NWWG | Norðvesturnefnd ICES (Northwestern Working Group); sér um mat á loðnustofni m.fl. |
| PGT | Flottroll; tegund veiðarfæris |
| PSE | Hringnót; tegund veiðarfæris |
| SSB | Lífmassi hrygningarstofns; áætluð heildarþyngd kynþroska fiska sem munu hrygna |
| TAC | Hámarksafli sem heimilt er veiða á vertíð |
| TACMax | Hámarksaflamark (400 000 tonn) þegar vísitala ókynþroska er há |
| Uimm | Stofnvísitala ókynþroska loðnu úr bergmálsleiðöngrum (mæld í milljörðum) |
| Utrigger | Aðgerðamark (gikkmark) fyrir ókynþroska stofn (50 milljarðar); þröskuldur notaður í aflareglu til að setja upphafsaflamark |
| WKCAPELIN | Rýnifundur ICES um loðnu (Benchmark Workshop on Capelin); fór yfir og endurskoðaði viðmiðunarmörk og aflareglu |