Loðna

Mallotus villosus


Stofnmatsskýrsla
Birt af

Hafrannsóknastofnun

Birt

31. október 2025

Helstu niðurstöður

  • Stærð veiðstofns loðnu og veiðar úr honum sveiflast milli ára og stjórnast af stærð árganga hverju sinni. Síðan breytingar áttu sér stað upp úr árinu 2000 á uppeldis- og fæðuslóð stofnsins hefur bæði stofnstærð og afli verið minni að jafnaði.

  • Lífmassi kynþroska hluta loðnustofnsins var metinn 417,5 þús. tonn í haustmælingu 2025. Að teknu tilliti til mælingunnar, metnu afráni á loðnustofninum og aflareglu strandríkja verður loðnuaflinn fyrir fiskveiðiárið 2025/2026 ekki meiri en 43 766 tonn.

  • Heildarlífmassi loðnu var metinn 1 209 þús. tonn í haustmælingu 2025. Vísitala um fjölda ungloðnu var metin 118,9 milljarðar sem er fimmta hæsta mæling í tímaröðinni og bendir til að 2024 árgangurinn sé stór.

Almennar upplýsingar

Loðna er smávaxin og skammlíf uppsjávarfisktegund. Hún er kaldsjávartegund útbreidd á heimskautsvæðum og jöðrum þeirra í Norður-Atlantshafi og Norður-Kyrrahafi. Loðna á svæðinu kringum Ísland, Austur-Grænland og Jan Mayen er talin vera sérstakur stofn.

Loðnuveiðar hófust á Íslandi um miðjan sjöunda áratuginn. Auk þess að vera mikilvægur nytjastofn er loðna lykiltegund í vistkerfi Íslands. Hún nærist á smáum svifdýrum, sérstaklega krabbaflóm, en einnig á marflóm og ljósátu. Loðna er mikilvæg fæða fyrir þorsk, ufsa, ýsu, lúðu og aðrar nytjafiska. Hún er einnig mikilvæg fæða fyrir hvali og fugla. Þannig gegnir loðnan mikilvægu hlutverki í að flytja orku og næringarefni upp í efri lög fæðuvefsins. Kjörhitastig fyrir loðnu er venjulega 1-3°C á fæðugöngu og er það þá oft við syðsta hluta kalds heimskautasjávar. Loðna gengur í torfum til vetursetu og hrygningarsvæða síðla hausts frá fæðusvæðum norður af Íslandi, austan og suðaustan Grænlands. Hún nálgast landgrunnsbrúnina norðan við Ísland og gengur síðan meðfram henni réttsælis umhverfis landið. Hluti megin göngunnar heldur áfram vestur fyrir land. Hrygning fer fram á grunnsævi í mars–apríl í tiltölulega hlýjum sjó sunnan og suðvestan lands. Hrygningar hefur einnig orðið vart norðan við landið en umfang þeirrar hrygningar hefur verið talið lítið samanborið við heildar magnið sem hrygnir í suðri. Meirihluti loðnunnar deyr eftir hrygningu, yfirleitt þriggja ára gömul, en aðallega hrygnur geta lifað af hrygninguna (Christiansen og fél. 2008). Eftir klak reka loðnulirfur með straumum út á landgrunnið norðan Íslands og í breytilegu magni í Grænlandssund og á landgrunn Austur-Grænlands. Uppeldissvæði loðnunnar eru á hafsvæðum norðan við Ísland og í auknum mæli á landgrunninu við Austur-Grænland frá því í upphafi 21. aldar (Bardarson o.fl., 2021; Singh o.fl., 2023).

Fiskveiðar

Á vetrarvertíð 2025 voru veidd 9 439 tonn af loðnu (Mynd 1). Heildarafli loðnu frá upphafi er sýndur á Mynd 1 eftir veiðitímabilum og dreifing afla íslenskra skipa eftir árum má sjá á Mynd 2.

Mynd 1: Loðna. Heildarafli (í þúsundum tonna) frá 1963/64 eftir veiðitímabilum.
Mynd 2: Loðna. Dreifing afla íslenskra fiskiskipa samkvæmt afladagbókum.

Breytingar á veiðitækni og veiðimynstri

Heildarafli á vertíðinni 2024/25 var 9 439 tonn og var hann allur veiddur með hringnót. Sögulega hefur meirihluti aflans verið tekinn í hringnót. Breytilegt er eftir vertíðum hve mikið hefur verið veitt í flottroll og tengist það útgefnu aflamarki og hvenær það er gefið út. Talið er að brottkast hafi verið óverulegt.

Stofnmat

Bergmálsmælingar

Loðnustofninn á Íslands-Austur Grænlands-Jan Mayen svæðinu hefur verið metinn með bergmálsmælingum árlega síðan 1978. Mælingar hafa verið gerðar að haustlagi (september–desember) og á veturna (janúar–febrúar). Frekara yfirlit er að finna í stofnviðauka (stock-annex) vinnunefndar Alþjóða hafrannsóknaráðsins sem fjallar um stofninn NWWG, ICES.

Haustmæling 2025

Haustmælingar á loðnu hafa það að markmiði að meta stærð bæði fullorðins og uppvaxandi hluta loðnustofnsins (Bardarson og fél. 2024). Frá því árið 2010 hafa haustmælingar hafist í september (og að hluta til seint í ágúst) eða mánuði fyrr en árin þar á undan. Þetta var gert vegna vandkvæða við að ná utan um útbreiðslu stofnsins vegna hafíss og erfiðra veðurskilyrða síðla hausts á norðvestlægari fæðuslóð en í upphafi 21. aldar (Vilhjálmsson, 2007).

Fyrir hönd Hafrannsóknastofnun tók r/s Árni Friðriksson þátt í haustmælingu loðnu 2025 og r/s Tarajoq fyrir hönd Grænlensku náttúrufræðistofnunarinnar (GINR, Greenland Institute of Natural Resources, Mynd 3). Rannsóknarsvæðið var á og meðfram landgrunnsbrún Austur-Grænlands frá um 64°30´N að um 72°15´N, og náði einnig yfir Grænlandssund og landgrunnsbrúnina norðvestan við Ísland. Íslandshaf, Kolbeinseyjarhryggur og Grænlandshaf voru einungis könnuð lítillega vegna tímaskorts og af sömu ástæðum voru sjórannsóknir og sýnataka á dýrasvifi takmarkaðar samanborið við fyrri ár. Tafir urðu einnig vegna slæms veðurs.

Almennt takmarkaði hafís ekki yfirferð rannsóknaskipanna, þó höfðu borgarís og skortur á kortlagningu hafsbotns stundum áhrif á leiðarlínur og takmarkaði hve nálægt strönd Grænlands hægt var að komast (Mynd 3).

Kynþroska loðna sást aðallega utan íslenska landgrunnsins út af Vestfjörðum og norðvestan og norðan við Ísland (á milli 68–70°N og 20–22°V, Mynd 4). Í vestanverðu Grænlandssundi var kynþroska loðna blönduð við ókynþroska loðnu, en loðnan austar var að mestu kynþroska. Líkt og á síðasta ári náði útbreiðsla kynþroska loðnu aðeins skammt austur af Grænlandssundi. Það fannst heldur engin loðna vestan við Jan Mayen hrygg eða Kolbeinseyjarhrygg. Almennt voru engin merki um verulegt magn loðnu austan við Kolbeinseyjarhrygg né meðfram landgrunnshlíðum út af norðurlandi. Norðan og norðvestan við Ísland og með suðvesturhluta grænlenska landgrunnsins var að finna ungviði (0-grúppa) af ýmsum tegundum, þar á meðal loðnu sem var ekki magngreind. Ókynþroska loðna var víða á grænlenska landgrunninu, aðallega á suðvesturhluta rannsóknarsvæðisins og í Grænlandssundi (Mynd 4).

Mynd 3: Loðna. Hlutfallslegur þéttleiki sem NASC gildi, dagana 23. ágúst–22. september 2025. Leiðarlínur r/s Árna Friðrikssonar og Tarajoq í bergmálsmælingu í mismunandi lit.
Mynd 4: Loðna. Leiðarlínur þátttakenda og hlutfall kynþroska í loðnusýnum og svæðisbundin úthlutun í mati á haustmælingu á tímabilinu 23. ágúst–22. september 2025.

Heildar lífmassi loðnu mældist 1 209 þús. tonn, þar af var lífmassi kynþroska hluta stofnsins 417,5 þús. tonn. Ókynþroska hluti lífmassans var 791 þús. tonn. Vísitala fjölda ókynþroska loðnu var metinn 118,9 milljarðar, sem er fimmta hæsta mæling í tímaröðinni, og bendir til að 2024 árgangurinn sé stór. Tafla 1 gefur heildarfjölda og lífmassa skipt eftir aldri og lengd.

Tafla 1: Loðna. Áætluð stofnstærð í fjöldi (N) og lífmassa (tonn) eftir aldri (árum) og lengd (cm) úr haustmælingu með bergmálsaðferð (23. ágúst–22. september 2025, sjá Mynd 3).
Lengd aldur1 aldur2 aldur3 aldur4 Heildarfjöldi Heildarlífmassi (tonn)
8.5 1907 0 0 0 1907 5527
9 5877 0 0 0 5877 20271
9.5 11481 0 0 0 11481 47389
10 17854 0 0 0 17854 86157
10.5 19004 0 0 0 19004 107696
11 19393 79 0 0 19473 128578
11.5 18132 184 0 0 18316 139444
12 10995 450 0 0 11445 99659
12.5 7372 816 159 0 8347 83804
13 2653 1320 79 0 4053 46225
13.5 1223 2036 79 79 3419 44004
14 550 1768 79 0 2397 35539
14.5 173 2934 289 0 3396 57549
15 25 3215 172 0 3412 66042
15.5 0 2627 130 0 2757 61146
16 0 2302 279 0 2580 64069
16.5 0 1453 294 0 1746 49333
17 0 937 245 41 1223 37333
17.5 0 290 170 16 492 16651
18 0 41 179 0 220 8421
18.5 0 0 64 0 64 2441
19 0 0 25 0 25 1257
20 0 0 16 0 16 842

Söguleg þróun meðalþyngdar eins til þriggja ára ungloðnu í haustmælingum er sýnd á Mynd 5 og meðalþyngdar eins til fjögurra ára kynþroska loðnu á Mynd 6. Meðalþyngd eins og tveggja ára ókynþroska loðnu hefur aukist með tímanum, sérstaklega eftir 2000. Eldri aldurshópar hafa hærri meðalþyngd eins og við er að búast. Meðalþyngd 3 ára ókynþroska (Mynd 5) og 4 ára kynþroska (Mynd 6) loðnu er breytilegust.

Mynd 5: Loðna. Meðalþyngd eins til þriggja ára ungloðnu í haustmælingu síðan 1978. Aldurshópar sýndir í mismunandi lit og láréttar línur sýna meðalþyngd aldurshópa árin 1978–2025 (gráskyggt). Útmörk hvers aldurshóps eru hringuð með gráu (lágmark) og svörtu (hámark).
Mynd 6: Loðna. Meðalþyngd eins til fjögurra ára kynþroska loðnu í haustmælingu síðan 1978. Aldurshópar sýndir í mismunandi lit og láréttar línur sýna meðalþyngd aldurshópa árin 1978–2024 (gráskyggt). Útmörk hvers aldurshóps eru hringuð með gráu (lágmark) og svörtu (hámark).

Niðurstöður afránslíkans og lokaráðgjöf

Að loknu stofnmati byggðu á leiðangursniðurstöðum með óvissumati voru 100 þúsund slembivalshermanir hrygningarstofns með endurísetningu notaðar sem upphafsgildi fyrir keyrslur afránslíkans. Niðurstöður afránslíkansins eru gefnar í Tafla 2 og sýndar á Mynd 8 og Mynd 9.

Tafla 2: Loðna. Hlutfallsmörk og meðaltöl framreiknaðs hrygningarstofns (í tonnum) þann 15. mars auk mats á heildarafráni byggt á afránslíkani
meðatal 5% 25% 50% 75% 95%
Hrygningarstofn SSB 228930 114130 171520 220030 277420 373140
Afrán Predation 124340 81930 103850 121730 141980 175660

Líkanið (ICES 2023, ICES 2024) tekur til afráns þorsks, ýsu og ufsa á göngutíma loðnunnar frá 15. janúar til 15. mars. Flæðirit sem sýnir hvernig líkanið er uppsett má finna á Mynd 7.

Mynd 7: Loðna. Efst: Þrjú svæði sem notuð voru í hermunum á afráni á gönguleið loðnunnar úr austri, þar sem gular örvar sýna leiðina. Neðst: Skýringarmynd sem sýnir hlutfallslega dreifingu gönguleiða og veiða í afránslíkaninu, sundurliðað yfir tveggja vikna tímabil. Veiðar eru sýndar sem hlutföll fyrir neðan láréttar örvar, og réttsælis göngur eru gefnar upp sem prósentur fyrir ofan lóðréttar örvar.

Afránslíkanið (ICES 2023, ICES 2024) á við um þann hluta loðnustofnsins sem gengur réttsælis í kringum Ísland. Flest ár hefur meirihluti stofnsins farið þessa leið, og næstum öll veiði hefur verið tekin úr þessum hluta stofnsins. Gert er ráð fyrir að allur loðnustofninn sé fyrir austan 15. janúar, og 15. mars er gert ráð fyrir að allur loðnustofninn hrygni í suður- og suðvesturhlutanum, með hærra hlutfalli í suðvestri. Gert er ráð fyrir að afræningjarnir (þorskur, ýsa og ufsi) séu dreifðir í samræmi við meðaldreifingu þeirra í stofnmælingu botnfiska í mars frá 1985 fram að síðasta ári. Heildarfjöldi í stofnum afræningja er byggður á spá fyrir núverandi ár út frá mati fyrra árs.

Mynd 8: Loðna. Samantekt niðurstaðna úr haustmælingu 2025 og afránslíkaninu. Mat á stofnstærð úr mælingunni á kynþroska loðnu (efst til vinstri), áætluð stærð hrygningarstofns sem verður eftir til hrygningar byggt á afránslíkaninu (efst til hægri), áætlað afrán frá 15. janúar til 15. mars (neðst til vinstri) og dreifing metinnar dánartíðni vegna afráns (neðst til hægri).
Mynd 9: Loðna. Framreiknuð stærð hrygningarstofns, byggt á forsendu um 65 650 tonna veiðar og afránslíkani. Blá lína sýnir varúðarmörk Blim = 114 000 t (ICES 2023, ICES 2024).

Fiskveiðistjórnun

Samþykkt fiskveiðistjórnunaráætlun og aflaregla

Strandríkin Ísland, Grænland og Noregur hafa komist að samkomulagi (Anon. 2015; Anon. 2023) um að nota eftirfarandi aflareglu (HCR) sem grundvöll fiskveiðistjórnunar sem var þróuð og yfirfarin hjá ICES (ICES, 2015; ICES, 2023).

Markmið aflareglunnar er að setja lokaaflamark (final TAC) sem tryggir með 95% líkum að eftir standi að lágmarki 114 þús. tonn til hrygningar. Til þess að þetta náist er farið til bergmálsmælinga á tímabilinu frá september til febrúar og ráðgjöf um aflamark gefin í þremur skrefum: sem upphafsráðgjöf, milliráðgjöf og lokaráðgjöf.

  1. Upphafsráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár byggi á mati á stærð ókynþroska hluta stofnsins (Uimm) að loknum bergmálsmælingum að hausti (september–október).

    Tveir fastar eru ákveðnir:

    1. Utrigger = 50 milljarðar ókynþroska loðnu.

    2. TACMax = 400 þús. tonn þegar U > 127 milljarðar ókynþroska.

    Aðferðin við að setja upphafs/bráðabirgðaaflamark er:

    • TAC = 0 ef Uimm < 50 milljarðar.

    • TAC = 5.2 x (Uimm - Utrigger) þús. tonn fyrir Uimm á bilinu 50–127 milljarðar.

    • TAC = 400 þús. tonn fyrir Uimm > 127 milljarðar.

  2. Milliráðgjöf fyrir yfirstandandi fiskveiðiár er gefin að loknum bergmálsmælingum að hausti. Stærð kynþroska hluta stofnsins (SSB) er metin með óvissu og lögð við gögn um spáða stærð og dreifingu afræningja, og notuð sem upphafsgildi í afránslíkanakeyrslum sem gera ráð fyrir mismiklum veiðum fram að hrygningu í mars. Milliráðgjöf um aflamark er sett sem 2/3 af þeim afla sem gæfi p(SSB < Blim) = 114 þús. tonn) < 0.05.

  3. Lokaráðgjöf er gefin að loknum bergmálsmælingum að vetrarlagi (janúar–febrúar). Stærð hrygningastofns (SSB) er metin með óvissu og lögð við gögn um spáða stærð og dreifingu afræningja. Lokaaflamark byggir á öllum bergmálsmælingum frá hausti að vetri. Niðurstöðurnar eru notaðar sem upphafsgildi í afránslíkanakeyrslum sem gera ráð fyrir mismiklum veiðum fram að hrygningu í mars. Lokaráðgjöf um aflamark er sett sem sá afli sem gæfi p(SSB < Blim) = 114 þús. tonn) < 0.05.

Upphafsráðgjöf fyrir fiskveiðiárið 2025/2026

Upphafsráðgjöf er gefin fyrir vertíðina 2025/26 því vísitala ókynþroska í haustleiðangri 2024 er 58.9 milljarðar, sem er hærra en Utrigger (50 milljarðar). Byggt á aflareglunni (sjá tækniskýrslu frá júní 2025), var upphafsaflamark 46 384 t fyrir fiskveiðiárið 2025/2026 (Mynd 10).

Mynd 10: Loðna. Ráðgjöf skv. aflareglu fyrir upphafsráðgjöf, sem byggir á sambandi lokaráðgjafar og metins fjölda ókynþroska haustið á undan. Myndin sýnir áætlaða lokaráðgjöf (svört óbrotin lína) og upphafsráðgjöf (blá brotin lína), sem er sett útfrá Utrigger (rauð lárétt lína) við 50 milljarða ókynþroska. Þak á upphafsráðgjöf er sett 400 þús. tonn. Græn lína sýnir fjölda ókynþroska haustið 2024, sem er varpað í upphafsráðgjöf fyrir 2025/2026 á y-ásnum.

Milliráðgjöf fyrir fiskveiðiárið 2025/2026

Mat á stærð kynþroska hluta loðnustofnsins með bergmálsmælingum í ágúst og september 2025 og niðurstöður afránslíkans benda til að markmið aflareglunnar um að skilja eftir að lágmarki 114 þús tonn til hrygningar með 95% líkum myndu nást með 65 650 tonna aflamarki. Með varúðarviðbót aflareglunnar fyrir milliráðgjöf (2/3 af útreiknuðu aflamarki) verður ráðgjöf um aflamark nú 43 766 tonn.

Fyrir aflareglur og fiskveiðistjórnun fyrir loðnu

Frá upphafi níunda áratugarins var loðnuveiðum stýrt þannig að 400 000 tonn voru skilin eftir til hrygningar, án þess að taka tillit til óvissu í matinu.

Ný aflaregla og fiskveiðistjórnunaráætlun var þróuð á rýnifundi ICES árið 2015 og tekin upp sama ár (ICES, 2015). Helstu breytingar voru að telið var tillit til óvissu í mælingum og afráni á loðnustofninum fram að hrygningu. Á rýnifundi ICES 2022 (ICES, 2023) voru gerðar minniháttar breytingar sem strandríkjafundur samþykkti að miða ráðgjöf við.

Þær breytingar fólust meðal annars í að Blim var lækkap úr 150 þús. tonnum í 114 þús. tonn (Mynd 11).

Mynd 11: Loðna. Upphafsráðgjöf, samþykkt lokaráðgjöf og afli tilkynntur til ICES.

Viðmiðunarmörk

Blim var skilgreint sem 114 000 tonn á fundi WKCAPELIN (ICES, 2023). Utrigger er skilgrein sem 50 milljarðar (ICES, 2015). Engin önnur viðmiðunarmörk eru skilgreind fyrir þennan stofn.

Staða stofnsins

Miðgildi lífmassa veiðistofns er metið 480 314 tonn haustið 2025. Afránslíkan (ICES, 2015), sem tekur mið af veiðum (í þessu tilfelli vetrarveiði upp á 43 766 tonn) og afráni á milli mælinga og hrygningar af völdum þorsks, ufsa og ýsu, áætlaði að 228 930 tonn verði miðgildi lífmassa eftir til hrygningar vorið 2026. Að teknu tilliti til óvissumatsins eru meiri en 95% líkur á að minnsta kosti 114 000 tonn verði skilin eftir til hrygningar, ef veidd verða 43 766 tonn af loðnu,.

Bergmálsmæling á fjölda ókynþroska loðnu í haustleiðangri 2025 var 118,9 milljarðar. Upphafsráðgjöf samkvæmt aflareglu fyrir loðnuvertíðina 2026/27 byggt á þeim fjölda verður gefin út af ICES og Hafrannsóknastofnun í júní 2026.

Mynd 12: Loðna. Vísitala ókynþroska loðnu í haustmælingu síðan 1981.

Áætluð stærð hrygningarstofns (SSB) á hrygningartíma (mars-apríl) hefur verið endurreiknuð fyrir árin 1981–2023 (Mynd 13), með líkaninu sem var tekið upp 2015 og 2023. Endurmatið tekur mið af óvissu í bergmálsmælingum og beitir afránslíkani sem var innleitt árið 2015. Óvissan í bergmálsmælingum var endurreiknuð fyrir árin 2002–2006 og 2012–2014 með því að endurreikna bergmálsvísitölur og beita slembivalshermunum með endurísetningu (e. bootstrapping). Fyrir tímabilið frá 2015 hefur óvissan verið tiltæk þar sem ráðgjöf hefur verið veitt út frá nýrri aflareglu. Fyrir fyrri ár var óvissan í bergmálsmælingum áætluð með því að skoða leiðangurs skýrslur sem og texta frá Hjálmari Vilhjálmssyni (1994). Áætlað var að óvissutölurnar (CV) væru á bilinu 0,15-0,25 og voru þær notaðar sem margfaldari í lognormal dreifingu yfir meðalgildi frá sömu heimildum.

Mynd 13: Loðna. Miðgildi, 5% og 95% hundraðshlutamörk dreifinga hrygningarstofns á hrygningartíma (mars–apríl) síðan 1981. Blim = 114 kt.

Óvissa í mati og framreikningum

Óvissa í mati og framreikningum er háð gæðum bergmálsmælinga, m.t.t. yfirferðar, skilyrða til mælinga og dreifingar loðnunnar. Þannig leiðir blettótt dreifing til hás breytileikastuðuls en jafndreifð hins gagnstæða.

Óvissan er áætluð með slembivalshermunum með endurísetningu (sjá WKICE 2015). Frávikshlutfall (CV) fyrir mat á óþroska hluta stofnsins var áætlað 0,15 og 0,2 fyrir veiðistofninn í haustmælingunni 2025. Yfirferð haustið 2025 er talin hafa nægt til að ná utan um dreifingu stofnsins. Nokkur óvissar er um mælingu ókynþroska loðnu vegna þess að 18 kHz bergmálsmælir r/s Tarjoq var ókvarðaður og því reyndist erfitt að greina á milli ókynþroska og núllgrúppu loðnu. Þessi óvissa hefur þó ekki áhrif á mat á kynþroska hluta stofnsins.

Þó að haustmæling 2025 hafi verið háð tímatakmörkunum virðist hafa náðst utan um dreifingu bæði ókynþroska og kynþroska hluta stofnsins.

Hlutverk loðnu vistkerfinu

Loðna er undirstöðutegund í fæðu margra helstu nytjastofna við Ísland og búast má við að ef breyting verður á útbreiðslu hennar, þá muni það hafa áhrif á framleiðni afræningja.

Mikilvægi loðnu við Austur-Grænland er ekki vel skjalfest en átak hefur verið aukið til muna í haustmælingum til að meta hlutverk loðnu í lífríkinu, t.d. með rannsóknum á áti loðnu, mati á fæðuframboði, útbreiðslu afræningja og umhverfisvöktun.

Á Íslandsmiðum er loðnan helsta einstaka fæðutegundin í fæðu þorsks, en hún er einnig lykilbráð nokkurra tegunda sjávarspendýra og sjófugla og er einnig mikilvæg fæða nokkurra annarra nytjafisktegunda (sjá t.d. Vilhjálmsson, 2002, Singh o.fl.. 2023). Fæðurannsóknir þorsks í stofnmælingu botnfiska í mars sýna vel mikilvægi loðnu í fæðu hans, en þar sýna jafnframt vel breytileika í aðgengi að loðnu milli ára (Mynd 14).

Mynd 14: Loðna. Finnst í magasýnum þorsks í stofnmælingu botnfiska (SMB) í mars 1993–2025, sýnt sem hlutfallsleg fylling loðnu í magasýnum (gult og rautt sýnir mikið bráðar), framkvæmd á sama tíma og loðnuhrygningin fer fram.

Reglugerðir og áhrif þeirra

Fyrr á árum voru loðnuveiðar bannaðar í apríl fram að júnílokum en vertíðin hófst í júlí/ágúst eða seinna, allt eftir ástandi stofnsins. Hinsvegar síðan árið 2021 hafa veiðar ekki hafist fyrr en 15. október sem varúðarráðstöfun til að vernda ungloðnu og var það samkvæmt samkomulagi milli strandríkjanna (Ísland, Grænland og Noregur).

Heimilt er að flytja afla úr nót eins skips yfir á annað skip, til að forðast brottkast. Ef aflinn er umfram burðargetu skipsins og ekkert annað skip er í nánd er þó leyfilegt að sleppa niður umfram afla. Undanfarin ár hefur slíkt brottkast ekki verið algengt. Vinnsluskip hafa ekki leyfi til að henda loðnu til að samræma afla vinnslugetu.

Á Íslandsmiðum eru veiðar með flotvörpu eingöngu leyfðar á takmörkuðu svæði undan NA-landi (veiðar í janúar) til að vernda ungloðnu og til að draga úr hættu á að hafa áhrif á hrygningargönguleiðina.

Heimildaskrá

Anon. 2015. Agreed Record of Conclusions of Coastal State consultations on the management of the capelin stock in the Iceland–East Greenland–Jan Mayen area. Reykjavík, Iceland. 7–8 May 2015. https://www.regjeringen.no/contentassets/37b66bdf33d84e99924bb27553641719/samledokument-lodde-mai-2015---agreed-records---bilateral-avtale.pdf. Last accessed: 17 November 2022.

Anon. 2023. Framework arrangement between Greenland and Iceland on the conservation and management of capelin. 2023. Reykjávik, Iceland 3 July 2023. 4 pp. https://www.althingi.is/altext/pdf/154/fylgiskjol/s1655-f_I.pdf Last accessed: 31 May 2025.

Bardarson, B, Heilman, L, Jonsson, SÞ and Jansen, T 2024. Cruise report of acoustic assessment of the Iceland-East Greenland-Jan Mayen capelin stock in the autumn 2024. Kver Hafrannsóknastofnunar. KV2024-10. 18 pp.

Bardarson, B, Gudnason, K, Singh, W, Petursdottir, H, & Jonsson, SÞ (2021). Loðna (Mallotus villosus). Í Guðmundur J. Óskarsson (ritstj.), Staða umhverfis og vistkerfa í hafinu við Ísland og horfur næstu áratuga. Haf- og vatnarannsóknir, HV 2021-14, 31–34.

Christiansen, JS, Præbel, K, Siikavuopio, SI, Carscadden, JE 2008. Facultative semelparity in capelin Mallotus villosus (Osmeridae)-an experimental test of a life history phenomenon in a sub-arctic fish, Journal of Experimental Marine Biology and Ecology, Volume 360, Issue 1, 2008, Pages 47-55, ISSN 0022-0981, https://doi.org/10.1016/j.jembe.2008.04.003.

Engilbertsson, V, Óskarsson, GJ and Marteinsdóttir, G (2012). Inter-annual Variation in Fat Content of the Icelandic Capelin. ICES CM 2013/N:26.

Gjøsæter, H, Bogstad, B, and Tjelmeland, S 2002. Assessment methodology for Barents Sea capelin, Mallotus villosus (Müller). – ICES Journal of Marine Science, 59: 1086–1095.

Gudmundsdottir, A, and Vilhjálmsson, H 2002. Predicting Total Allowable Catches for Icelandic capelin, 1978–2001. ICES Journal of Marine Science, 59: 1105–1115.

Gudmundsdottir, A, and Sigurdsson, Th 2014. Growth of capelin in the Iceland-East Greenland-Jan Mayen area. NWWG 2014/WD:29.

ICES. 2015. Report of the Benchmark Workshop on Icelandic Stocks (WKICE), 26-30 January, 2015. ICES Headquarters. ICES CM 2015/ACOM:31. 335 pp.https://doi.org/10.17895/ices.pub.5295

ICES. 2023. Benchmark workshop on capelin (WKCAPELIN). ICES Scientific Reports. 5:62. 282 pp. https://doi.org/ices.pub.23260388

ICES 2024. Capelin (Mallotus villosus) in subareas 5 and 14 and Division 2.a west of 5°W (Iceland and Faroes grounds, East Greenland, Jan Mayen area). ICES Advice: Recurrent Advice. Report. https://doi.org/10.17895/ices.advice.25663980.v1

Jansen, T, Hansen, FT, Bardarson, B 2021. Larval drift dynamics, thermal conditions and the shift in juvenile capelin distribution and recruitment success around Iceland and East Greenland. Fisheries Research 236.

Hafrannsóknastofnun. 2024. Astand nytjastofna sjávar og ráðgjöf 2024,ráðgjöf um loðna. Hafrannsóknastofnun, 11 October 2024.

Singh, W, Ólafsdóttir, AH, Jónsson, SÞ, Óskarsson, GJ 2023. Loðna á tímum umhverfisbreytinga . Haf- og vatnarannsóknir, HV 2023-33. https://www.hafogvatn.is/static/research/files/lodnurannsoknir_skyrsla2023.pdf

Vilhjálmsson, H 1994. The Icelandic capelin stock. Capelin, Mallotus villosus (Müller), in the Iceland– Greenland–Jan Mayen area. Rit Fiskideildar, 13: 281 pp.

Vilhjálmsson, H 2002. Capelin (Mallotus villosus) in the Iceland–East Greenland–Jan Mayen ecosystem.ICES Journal of Marine Science: Journal du Conseil, 59: 870–883.

Vilhjálmsson, H 2007. Impact of changes in natural conditions on ocean resources. Law, science and ocean management 11, 225.