RÆKJA Í ÍSAFJARÐARDJÚPI Pandalus borealis

Ráðgjöf 2025/2026

0

tonn

Ráðgjöf 2024/2025

0

tonn

Breyting á ráðgjöf

0 %

Birting ráðgjafar: 7. október 2025. Útgefið af Hafrannsóknastofnun.


Ráðgjöf

Hafrannsóknastofnun leggur til í samræmi við nýtingarstefnu sem mun leiða til hámarksafraksturs til lengri tíma litið (MSY), að afli fiskveiðiárið 2025/2026 verði 0 tonn.

Stofnþróun

Vísitala veiðistofns er undir aðgerðamörkum (Itrigger) og varúðarmörkum (Ilim) og veiðiálag er undir kjörsókn (target HRproxy).

Rækja í Ísafjarðardjúpi. Afli, vísitala veiðihlutfalls og vísitala veiðistofns ásamt aðgerðarmörkum (Itrigger), varúðarmörkum (Ilim) og kjörsókn (target HRproxy).

Stofnmat og gátmörk

Forsendur ráðgjafar

Hámarksafrakstur

Aflaregla

Ekki hefur verið sett aflaregla fyrir þennan stofn

Stofnmat

Byggt á tímaháðum breytingum í stofnmælingum

Inntaksgögn

Afli og vísitölur úr stofnmælingu innfjarðarsrækju

Nálgun

Viðmiðunarmörk

Gildi

Grundvöllur

Hámarksafrakstur

target HRproxy

0.5

Sögulegt samband afla og stofnvísitölu rækju á grunnslóð.

Varúðarnálgun

Ilim

604

Gildi vísitölu veiðistofns sem er 20 % af meðaltali þriggja hæstu vísitölugilda

Itrigger

604

Ilim

Grunnur ráðgjafar fylgir forskrift Alþjóðahafrannsóknaráðsins fyrir skammlífa stofna þar sem ekki er hægt að beita aldurs-aflagreiningu, en til eru vísitölur sem taldar eru gefa mynd af breytingum í stofnstærð (Category 3 stocks; ICES, 2025). Ráðgjafarreglan fyrir þennan stofn var metin samræmast markmiðum um hámarksafrakstur til lengri tíma litið auk þess að vera í samræmi við varúðarsjónarmið (Pamela J. Woods o.fl. 2023).

Lífmassavísitala rækju, ásamt afla, er notuð til að reikna vísitölu veiðihlutfalls (HRproxy = afli/vísitala). Ráðgjöfin er fengin með því að margfalda síðasta gildi vísitölunnar með markgildi HRproxy.

Rækja í Ísafjarðardjúpi. Útreikningur ráðgjafar.

Ay: Ráðgjöf fyrir 2024/2025

0

Lífmassavísitala

Vísitala (I2025)

534

Vísitala veiðihlutfalls

target HRproxy: Sögulegt samband afla og stofnvísitölu rækju á grunnslóð

0.5

Gátmörk

Aðgerðarmörk vísitölu (Itrigger)

604

b: Vísitala í hlutfalli við aðgerðamörk, ef I2025/Itrigger > 1 þá 1 annars 0

0

Varúðarlækkun til þess tryggja hrygningarstofn fari ekki undir gátmörk (Blim) með 95 % líkum

Ráðgjöf fyrir 2025/20261)

0

% breyting á ráðgjöf2)

0

1) Ay+1 = Iy× target HRproxy × b

2) Tölur í töflu eru námundaðar. Útreikningar eru gerðir með námunduðum tölum og því gætu reiknuð gildi ekki stemmt

Horfur

Nýliðunarvísitala rækju var undir meðallagi árin 2016–2025 (Stofnmatsskýrslur Hafrannsóknastofnunar 2025).

Aðrar upplýsingar

Vísitala ýsu í Ísafjarðardjúpi hefur haldist há frá 2004 og haustin 2020 og 2021 voru vísitölur ýsu þær hæstu frá upphafi mælinganna (Stofnmatsskýrslur Hafrannsóknastofnunar 2025). Afrán á rækju er því töluvert.

Ráðgjafareglan sem notuð er fyrir þennan stofn gerir ráð fyrir að stofnstærð þeirra stofna í firðinum sem rækja er mikilvæg fæða haldist stöðugt. Verði umtalsverðar breytingar þar á gæti þurft að endurskoða grundvöll ráðgjafar.

Ráðgjöf, aflamark og afli

Rækja í Ísafjarðardjúpi. Tillögur um hámarksafla, ákvörðun stjórnvalda um aflamark og afli (tonn).

Fiskveiðiár

Tillaga

Aflamark

Afli alls

1990/1991

3  000

3  000

3  114

1991/1992

2  500

2  500

2  555

1992/1993

2  500

2  500

2  501

1993/1994

2  500

2  500

2  511

1994/1995

2  100

2  100

1  955

1995/1996

2  700

2  700

2  756

1996/1997

2  300

2  300

2  265

1997/1998

1  450

1  450

1  426

1998/1999

1  000

1  000

1  025

1999/2000

1  800

1  800

1  715

2000/2001

1  200

1  200

1  287

2001/2002

1  500

1  500

1  497

2002/2003

1  000

1  000

989

2003/2004

0

0

0

2004/2005

0

0

0

2005/2006

0

0

0

2006/2007

0

0

0

2007/2008

0

0

0

2008/2009

0

0

0

2009/2010

0

0

0

2010/2011

0

0

0

2011/2012

1  000

1  000

1  040

2012/2013

500

500

527

2013/2014

1  100

1  100

1  128

2014/2015

750

750

801

2015/2016

700

700

767

2016/2017

484

484

491

2017/2018

322

322

343

2018/2019

456

456

459

2019/2020

565

565

570

2020/2021

586

586

582

2021/2022

0

0

12

2022/2023

523

523

529

2023/2024

0

0

0

2024/2025

0

0

0

2025/2026

0

Heimildir og ítarefni

ICES. 2025. ICES Guidelines - Advice rules for stocks in category 2 and 3. Version 3. ICES Guidelines and Policies - Advice Technical Guidelines. 31 pp. https://doi.org/10.17895/ices.pub.28506179

Pamela J. Woods, Bjarki Þór Elvarsson og Ingibjörg G. Jónsdóttir. 2023. Mat á ráðgjafareglum fyrir innfjarðarækjustofna í Arnarfirði og Ísafjarðardjúpi. HV2023-45.

Stofnmatsskýrslur Hafrannsóknastofnunar 2025. Rækja í Ísafjarðardjúpi Hafrannsóknastofnun, 7. október 2025.