Leturhumar Nephrops norvegicus
Birting ráðgjafar: 19 Mars 2026. Útgefið af Hafrannsóknastofnun.
Ráðgjöf
Hafrannsóknastofnun leggur til í samræmi við varúðarsjónarmið að humarveiðar verði ekki heimilaðar árin 2026. Hinsvegar, venga ósamræmis í vísitölu humarholna og upplýsinga úr togleiðöngrum, leggur stofnunin til að könnunarveiðar verði stundaðar til að afla upplýsinga um aflabrögð og stærðarsamsetningu stofnsins.
Ráðlagir eru 40 dagar alls í könnunarveiðar í Breiðamerkur-, Hornafjarðar- og Skeiðarárdjúpum, þar af skal ekki vera fleiri en 8 dagar í Skeiðarárdjúpi, en veiða skal úr öllum djúpunum. Aflasýni skulu tekin í könnunarveiðunum og þær skipulagðar fyrirfram. Hafrannsóknastofnun leggur jafnframt til að áfram verði í gildi reglugerð nr. 186/2020 um bann á veiðum með fiskibotnvörpu á afmörkuðum svæðum í Breiðamerkurdjúpi, Hornafjarðardjúpi og Lónsdjúpi til verndar humri.
Stofnþróun
Hafrannsóknastofnun getur ekki metið stöðu stofnsins og veiðiálag m.t.t. aðgerðarmarka hámarksafraksturs (MSY) og varúðarnálgunar (PA) þar sem viðmiðunarmörk hafa ekki verið skilgreind.
Humar. Humarafli, veiðihlutfall (fjöldi veiddra humra deilt með fjölda úr stofnmælingu) og stofnstærð í fjölda metin með humarholumyndatöku. Græn svæði sýna 95% öryggismörk.
Stofnmat og gátmörk
Forsendur ráðgjafar | Könnunarveiðar |
Aflaregla | Ekki hefur verið sett aflaregla fyrir þennan stofn |
Stofnmat | Byggt á tímaháðum breytingum á stofnvísitölum skv. humarholumyndatöku |
Inntaksgögn | Afli og vísitölur úr humarholumyndatöku |
Vegna óvissu um nýliðun og horfur er grunnur ráðgjafar sá sami og lagt til að humarveiðar verði ekki heimilaðar árið 2026.
Horfur
Vísitala humarhola í stofnmælingaleiðangri árið 2025 tvöfaldaðist frá árinu 2023 þegar síðast var farið í leiðangur, en sambærileg þróun átti sér stað milli áranna 2021 og 2023.
Humar. Útreikningur ráðgjafar.
Ráðgjöf 2025 | Ráðgjöf 2026 | Breyting á ráðgjöf |
|---|---|---|
0 | 0 |
Gæði stofnmats
Stofnmatið í ár er byggt á stofnmælingu þar sem humarholur eru taldar með neðansjávarmyndavél og hefur verið framkvæmd með sambærilegum hætti frá árinu 2016 að undanskildu árunum 2022 og 2024. Stofnmælingin er talin ná utan um öll veiðisvæði humars. Veiðihlutfall, sem gefur hámarksafrakstur (\(F_{MSY}\)), hefur ekki verið metið.
Aðrar upplýsingar
Veiðar á humri hafa verið bannaðar frá árinu 2022 vegna bágs ástand stofnsins. Auk þess hefur verið í gildi reglugerð 186/2020 um bann á veiðum með fiskibotnvörpu á veiðisvæðum humars í Breiðamerkurdjúpi, Hornafjarðardjúpi og Lónsdjúpi til verndar humri. Hár þéttleiki humarholna mældist í humarholutalningu árið 2025 á svæðum við Suðausturland. Niðurstöður úr þeim rannsóknatogum (afli og samseting) sem tekin hafa verið á sömu slóð, styður ekki að fullu þá miklu aukningu. Takmarkaðar könnunarveiðar munu leiða betur í ljós hverning aflabrögð hafa breyst á svæðinu og styðja þá við niðurstöður humarholutalninganna og auka sýnatöku úr stofninum. Dagurinn í könnunarveiðunum er skilgreindur sem 24 tímar, eftir að veiðar hefjast og þeim líkur auk tímans milli toga. Í Skeiðarárdýpi eru ráðgerðir að hámarki 8 dagar vegna meiri breytileika í holutalningu. Mæla skal og kyngreina að lágmarki 50 humra úr hverju togi, en nánari leiðbeiningar verða gefnar út af Hafrannsóknastofnun. Búast má við að afli í könnunarveiðunum verði um 7 – 34 tonn, en ef það stefnir í að magnið verði umtalsvert hærra verða þær endurskoðaðar.
Ráðgjöf, aflamark og afli
Humar. Tillögur um hámarksafla, ákvörðun stjórnvalda um aflamark og afli (tonn).
Fiskveiðiár | Tillaga | Aflamark | Afli alls |
|---|---|---|---|
1984 | 2 400 | 2 600 | 2 500 |
1985 | 2 300 | 2 400 | 2 400 |
1986 | 2 500 | 2 500 | 2 600 |
1987 | 2 700 | 2 800 | 2 700 |
1988 | 2 600 | 2 600 | 2 200 |
1989 | 2 100 | 2 100 | 1 900 |
1990 | 2 100 | 2 000 | 1 700 |
1991 | 2 100 | 2 100 | 2 200 |
1991/92 | 2 100 | 2 100 | 2 200 |
1992/93 | 2 200 | 2 400 | 2 401 |
1993/94 | 2 200 | 2 400 | 2 261 |
1994/95 | 2 200 | 2 200 | 1 043 |
1995/96 | 1 500 | 1 500 | 1 632 |
1996/97 | 1 500 | 1 500 | 1 226 |
1997/98 | 1 500 | 1 200 | 1 400 |
1998/99 | 1 200 | 1 200 | 1 312 |
1999/00 | 1 200 | 1 200 | 1 256 |
2000/01 | 1 400 | 1 400 | 1 403 |
2001/02 | 1 500 | 1 500 | 1 577 |
2002/03 | 1 600 | 1 600 | 1 688 |
2003/04 | 1 600 | 1 600 | 1 466 |
2004/05 | 1 500 | 1 500 | 1 908 |
2005/06 | 1 600 | 1 800 | 1 946 |
2006/07 | 1 700 | 1 800 | 1 946 |
2007/08 | 1 900 | 1 900 | 2 000 |
2008/09 | 2 200 | 2 200 | 1 999 |
2009/10 | 2 200 | 2 200 | 2 456 |
2010/11 | 2 100 | 2 100 | 2 259 |
2011/12 | 2 000 | 2 100 | 2 130 |
2012/13 | 1 900 | 1 900 | 1 965 |
2013/14 | 1 750 | 1 750 | 1 983 |
2014/15 | 1 650 | 1 650 | 1 425 |
2015/16 | 1 500 | 1 500 | 1 536 |
2016/17 | 1 300 | 1 300 | 1 186 |
2017/18* | 1 150 | 1 150 | 820 |
2019 | 235 | 0# | 259 |
2020 | 214 | 214 | 194 |
2021 | 143 | 143 | 107 |
2022 | 0 | 0 | 0 |
2023 | 0 | 0 | 0 |
2024 | 0 | 0 | 0 |
2025 | 0 | 0 | 0 |
2026 | 0 | ||
*Inniheldur haustafla 2018. | |||
#Ekkert aflamark var gefið út 2019 en útgerðum var heimilt að veiða kvótatilfærslur frá fyrri árum. | |||
Heimildir og ítarefni
MFRI Assessment Reports 2026. Norway lobster. Marine and Freshwater Research Institute, 19 Mar 2026.
Reglugerð um tímabundið bann við veiðum með fiskibotnvörpu á veiðisvæðum humars (Reglugerð nr. 186/2020). https://island.is/reglugerdir/nr/0186-2020.