BEITUKÓNGUR

Buccinum undatum


Stofnmatskýrslur
Birt af

Hafrannsóknastofnun

Birt

6. júní 2025

Helstu niðurstöður

  • Stofnvísitala (B/BMSY) er yfir Blim og Btrigger. Vísitalan lækkaði frá árinu 2004 til 2012 en hefur hækkað síðan.

  • Veiðiálag (F/FMSY) var hæst árið 2006 og árið 2012 en hefur lækkað síðan og hefur verið undir Flim og FMSY síðan árið 2012.

Almennt

Beitukóngur er lindýr sem finnst allt í kringum Ísland. Sjá nánar: https://www.hafogvatn.is/is/sjavardyr/beitukongur

Veiðar

Tilraunaveiðar á beitukóngi í Breiðafirði hófust árið 1996 þegar 500 tonnum var landað. Aflinn jókst árið eftir og var um 1300 tonn. Eftir það hefur afli verið á bilinu 0-1000 tonn. Árið 2019 voru 351 t landað, samanborið við 195 tonn árið áður. Engar veiðar voru á árinu 2020 en hófust að nýju árið eftir (Mynd 1). Lágmarksstærð á lönduðum beitukóngi er 50 mm. Brottkast er talið vera lítið þar sem beitukóngurinn fer fyrst í gegnum vökvatromlu þar sem minnsti kuðungurinn er sigtaður frá. Frá 2005 hefur beitukóngur einungis verið veiddur í beitukóngsgildrur og síðan 2006 hafa innan við sex bátar stundað veiðar. Síðustu ár hefur einungis einn bátur stundað beinar veiðar. Afli á sóknareiningu (kg/gildru) hefur sveiflast milli ára og var hæstur árið 2003 og var þá 4,8 kg/gildru. Afli á sóknareiningu lækkaði stöðugt til ársins 2017 en hækkaði eftir það. Þar sem afli á sóknareiningu endurspeglar ekki stofnstærð eða breytingar á stofnstærð (tekur ekki tillit til breytinga á sókn eftir árstíma né svæðum) var afli á sóknareiningu staðlaður með tilliti til mánaða og svæða með alhæfðu línulegu líkani (generalized linear model, GLM).

Mynd 1: Beitukóngur. Heildarafli (tonn) og staðlaður afli á sóknareiningu í Breiðafirði.

Árið 2024 var 220 tonnum landað af beitukóngi úr Breiðafirði, samanborið við 190 tonn árið áður. Veiðar fóru að mestu fram í suðurhluta Breiðafjarðar árin 2009, 2010, 2014, 2021 og 2022, en á öðrum árum dreifðust veiðar jafnar yfir allan fjörðinn, bæði í suður- og norðurhluta. Árin 2013–2014 voru veiðar í lágmarki, samanborið við árin 2011 og 2012 (Mynd 1 og Mynd 2). Veiðar árið 2024 fóru einna helst fram frá júní-september (Mynd 4). Engar veiðar voru árið 2020.

Mynd 2: Beitukóngur. Dreifing afla í Breiðafirði 2013-2024.
Mynd 3: Beitukóngur. Útbreiðsla veiða frá janúar til desember 2024.
Mynd 4: Beitukóngur. Útbreiðsla veiða frá janúar til desember 2024.

Beitukóngsleiðangrar

Tveir beitukóngsleiðangrar hafa verið farnir í Breiðafirði; fyrst árið 1997/1998 þegar veiðar hófust og svo árið 2012 (Mynd 5). Vísitala úr fyrri leiðangri var 26,9 samanborið við 23,7 árið 2012. Á milli leiðangra er mesta sjáanlega minnkunin á vísitölum í norðvestur hluta Breiðafjarðar. Á hinn bóginn sást veruleg aukning á beitukóngi á veiðisvæðum í austanverðum hluta fjarðarins milli leiðangranna (Mynd 5).

Mynd 5: Beitukóngur. Útbreiðsla og magn í beitukóngsleiðangri árin 1997/1998 (vinstri) og 2012 (hægri).

Ráðgjöf

Árin 1999-2001 var ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar sú að sókn yrði ekki meiri en sóknin árið 1997 þegar landaður afli var 1284 tonn. Árið 2007 var lagt fram að veiðar upp á 800-1000 tonn væru sjálfbærar en einnig að mikil óvissa væri í því mati. Árið 2012 ráðlagði Hafrannsóknastofnun að afli yrði að hámarki 750 tonn og hélst sú ráðgjöf óbreytt til ársins 2017. Ráðgjöfin byggði á meðalafla undangengins áratugar af suðursvæði (450 tonn) og norðursvæði (300 tonn). Árið 2017 var ráðgjöfin lækkuð í 500 tonn og var sú sama fyrir árið 2018. Á tímabilinu 2012-2018 fóru landanir aldrei yfir 350 tonn (Tafla 4). Ráðgjöf árið 2019 byggði á breytingum á afla á sóknareiningu (óstöðluðum). Afli á sóknareiningu lækkaði stöðugt frá árinu 2003-2013 þegar hann var lægstur. Á meðan á lækkuninni stóð var afli að meðaltali um 470 tonn. Það benti til að fiskveiðidauði væri meiri en stofninn réði við og að ráðgjöf upp á 750 tonn og 500 tonn hafi því verið of há. Árin 2013-2021 jókst afli á sóknareiningu aftur en landaður afli minnkaði. Síðan þá hefur afli á sóknareiningu lækkað aftur og var rétt undir meðaltali árið 2024 (Tafla 4). Grunnur ráðgjafar fylgir forskrift Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) fyrir stofna með takmarkaðar upplýsingar (Category 3.1 stocks; ICES, 2021). SPiCT líkan (SPiCT; Pedersen and Berg, 2017) er einna helst notað til að meta stofna í þessum flokki en líkanið metur skekkjur í athugunum og ferlum og áætlar stöðu stofnsins og viðmiðunarpunkta með tilheyrandi öryggisbilum. SPiCT áætlar viðmiðunarpunkt hámarksafraksturs sem hægt er að nota við útreikninga á viðeigandi stikum sem eru notaðir til að veita ráðgjöf. ICES mælir með því að nota 35. hundraðshlutamarkið fyrir viðeigandi stika (Mildenberger et al., 2021).

Inntaksgögn

Líkanið samþættir upplýsingar úr fyrirframdreifingum (Woods and Jónasson 2017), löndunartölum og stofnvísitölum (staðlaður afli á sóknareiningu) frá árinu 2004. Stuðlar fyrirframdreifingar voru fengnir með samþættingu umhverfisþátta og líffræðilegra þátta beitukóngs í Breiðafirði (aldur við kynþroska, lengd við aldur o.fl.). Sjá Woods and Jónasson (2017) fyrir frekari uppl. Stikar fyrirframdreifingar eru burðargeta stofnsins, K, innri vaxtarhraði, r, skerðingarhlutfall lífmassa,, staðalfrávik veiðidauðaferils, sdf, og staðalfrávik í mæliskekkju í afla, sfd (Tafla 1). n er fest í 2 til að líkja eftir Schaefer framleiðslukúrfu.

Tafla. 1: Beitukóngur. Stikar fyrirframdreifingar líkansins
Stiklar fyrirframdreifingar Gildi Staðalfrávik
K log(18500) 0.0925
r log(0.075) 0.0340
p log(0.467) 0.0100
sdf log(0.3) 0.2500
sdc log(0.1) 0.0100

Niðurstöður

Niðurstöður líkansins eru sýndar í Tafla 2 og Tafla 3. Greining líkans er sýnd á Mynd 6, niðurstöður líkans á Mynd 7 og reiknuð endurlitsgreining á Mynd 8. Samkvæmt gátlista um samþykki SPiCT líkans (Mildenberger et al., 2021) uppfyllti líkanið allar kröfur um marktækni. Allar forsendur stóðust og framleiðslufall var raunsætt (B/K = 0.5) (Mynd 6). Reiknuð endurlitsgreining var nokkuð stöðug en töluverð óvissa er þó í hlutfallslegri veiðidánartölu (F/FMSY) sem gæti orsakast af árum þar sem ekkert var veitt. Lífmassi sem gefur af sér hámarksafrakstur (BMSY) var metið 8.8 kt.

Tafla. 2: Beitukóngur. Niðurstöður SPiCT líkans
Parameter Mat 95% neðra öryggisbil 95% efra öryggisbil Log mat
alpha 1.670 1.099 2.537 0.513
beta 0.109 0.064 0.187 −2.214
r 0.075 0.053 0.106 −2.585
rc 0.075 0.053 0.106 −2.585
rold 0.075 0.053 0.106 −2.585
m 331.418 192.099 571.776 5.803
K 17574.530 10723.520 28802.470 9.774
q 0.000 0.000 0.000 −9.407
sdf 0.906 0.631 1.300 −0.099
sdi 0.167 0.110 0.254 −1.790
sdc 0.099 0.067 0.146 −2.312
Tafla. 3: Beitukóngur. Niðurstöður líkans. Mat á gildum ákveðinna og slembinna viðmiðunarmarka
Mat 95% neðra öryggisbil 95% efra öryggisbil
Bmsys 8182.190 5013.216 13354.348
Fmsys 0.035 0.024 0.051
MSYs 286.637 161.856 507.618
Mynd 6: Beitukóngur. SPiCT-model greining
Mynd 7: Beitukóngur. SPiCT-model niðurstöður
Mynd 8: Beitukóngur. Reiknuð endurlitsgreining SPiCT líkans.
Tafla. 4: Veiðiráðgjöf fyrir Breiðafjörð, landaður afli (tonn), staðlaður afli á sóknareiningu og afli á sóknareiningu (kg í gildru).
Fiskveiðiár Ráðgjöf Afli Ár Vísitala afla á sóknareiningu Afli á sóknareiningu
1996 - 524 1996 - -
1997 - 1,284 1997 - -
1998 - 10 1998 - -
1999 - 417 1999 - -
2000 - 824 2000 - -
2001 - 709 2001 - -
2002 - 0 2002 - -
2003 - 248 2003 - 4.843
2004 - 863 2004 0.569 3.032
2005 - 991 2005 0.767 3.975
2006 - 839 2006 0.616 2.935
2007 - 554 2007 0.606 2.933
2008 - 398 2008 0.448 1.869
2009 - 116 2009 0.575 2.644
2010 - 142 2010 0.648 3.219
2011 - 512 2011 0.504 2.564
2012/2013 750 89 2012 0.369 1.741
2013/2014 750 0 2013 0.288 1.059
2014/2015 750 166 2014 0.505 2.282
2015/2016 750 332 2015 0.356 1.370
2016/2017 750 186 2016 0.384 1.582
2017/2018 500 171 2017 0.396 1.990
2018/2019 500 324 2018 0.525 2.630
2019/2020 220 133 2019 0.505 2.323
2020/2021 264 88 2020 0.618 -
2021/2022 264 239 2021 0.731 3.869
2022/2023 254 268 2022 0.557 2.798
2023/2024 196 211 2023 0.545 2.704
2024/2025 190 75 2024 0.500 2.380
2025/2026 178 - 2025 - -
Tafla. 5: Beitukóngur. Mat á B/BMSY og F/FMSY með 95% öryggismörkum úr SPiCT líkani.
Ár 95% neðra öryggisbil B/Bmsy 95% efra öryggisbil 95% neðra öryggisbil F/Fmsy 95% efra öryggisbil
2004 0.820 1.001 1.221 0.935 2.873 8.831
2005 0.751 0.988 1.299 1.304 3.326 8.482
2006 0.658 0.905 1.246 1.437 3.696 9.506
2007 0.587 0.833 1.181 1.035 2.727 7.184
2008 0.537 0.773 1.111 0.892 2.340 6.136
2009 0.528 0.767 1.115 0.312 0.822 2.168
2010 0.532 0.768 1.110 0.167 0.458 1.260
2011 0.505 0.720 1.027 0.495 1.311 3.474
2012 0.432 0.624 0.902 1.295 3.315 8.483
2013 0.387 0.565 0.825 0.323 0.856 2.271
2014 0.418 0.604 0.873 0.163 0.445 1.216
2015 0.423 0.606 0.868 0.261 0.701 1.884
2016 0.439 0.628 0.899 0.619 1.615 4.216
2017 0.449 0.648 0.934 0.443 1.164 3.059
2018 0.492 0.711 1.026 0.297 0.806 2.187
2019 0.521 0.756 1.096 0.319 0.920 2.650
2020 0.545 0.803 1.181 0.274 0.748 2.044
2021 0.587 0.856 1.248 0.220 0.633 1.823
2022 0.583 0.842 1.217 0.369 0.991 2.661
2023 0.561 0.817 1.188 0.377 1.007 2.687
2024 0.544 0.803 1.185 0.294 0.827 2.325
2025 0.523 0.812 1.260 0.283 1.005 3.567
2026 0.509 0.824 1.336 0.113 1.005 8.905
2027 0.494 0.836 1.415 0.060 1.005 16.747

Greining á vísitölu

Tafla. 6: Beitukóngur. Niðurstöður úr GLM líkani. Svarbreytan er kvaðratrótin af afla á sóknareiningu (CPUE).
Þáttur Frítölur Frávik Leyfar frítalna Leyfar frávika F Pr(>F)
NULL - - 6,459 820.165 - -
factor(ar) 20 251.215 6,439 568.950 148 0.000000e+00
factor(man) 11 11.288 6,428 557.661 12 7.121655e-23
factor(sreitur) 6 13.363 6,422 544.298 26 4.570911e-31
Mynd 9: Beitukóngur. Greiningarmyndir úr GLM líkani.

Heimildir

ICES. 2021. Benchmark Workshop on the development of MSY advice for category 3 stocks using Surplus Production Model in Continuous Time; SPiCT (WKMSYSPiCT). ICES Scientific Reports. 3:20. 317 pp. https://doi.org/10.17895/ices.pub.7919

Pamela Woods, Jónas Páll Jonasson. 2017. Bayesian hierarchical surplus production model of the common whelk Buccinum undatum in Icelandic waters, Fisheries Research, Volume 194, 2017, Pages 117-128, https://doi.org/10.1016/j.fishres.2017.05.011.

Pedersen, Martin W., and Casper W. Berg. 2017. “A stochastic surplus production model in continuous time.” Fish and Fisheries 18 (2): 226–43. https://doi.org/10.1111/faf.12174

Mildenberger, T. K., Kokkalis, A., & Berg, C. W. (2021). Guidelines for the stochastic production model in continuous time (SPiCT).