BLÁLANGA Molva dipterygia

Ráðgjöf 2026/2027

1 898

tonn

Ráðgjöf 2025/2026

307

tonn

Breyting á ráðgjöf

518 %

Birting ráðgjafar: 12. júní 2026. Útgefið af Hafrannsóknastofnun.


Ráðgjöf

Hafrannsóknastofnun og Alþjóðahafrannsóknarráðið ráðleggja, í samræmi við nýtingarstefnu sem mun leiða til hámarksafraksturs til lengri tíma litið (MSY), að afli fiskveiðiárið 2026/2027 verði ekki meiri en 1 898 tonn.

Hafrannsóknastofnun leggur jafnframt til að hrygningarsvæðum suður af Vestmannaeyjum og á Franshól verði áfram lokað á hrygningartíma frá 15. febrúar–30. apríl.

Stofnþróun

Veiðidánartala er undir kjörsókn (FMSY) og gátmörkum (Fpa). Stærð hrygningarstofns er yfir aðgerðarmörkum (MSY Btrigger), gátmörkum (Bpa) og varúðarmörkum (Blim)

Blálanga. Afli eftir veiðarfærum, nýliðun (5 ára), veiðidánartala 10–20 ára og stærð hrygningarstofns. Skyggð svæði og öryggisbil sýna 95 % öryggismörk.

Stofnmat og gátmörk

Forsendur ráðgjafar

Hámarksafrakstur

Aflaregla

Ekki hefur verið sett aflaregla fyrir þennan stofn

Stofnmat

Tölfræðilegt aldurs-lengdarlíkan (Gadget) sem notar afla í líkani og spám

Inntaksgögn

Heildarafli; vísitölur úr stofnmælingu botnfiska við Ísland (IS-SMH), lengdardreifingar úr afla; lengdardreifingar úr IS-SMH

Nálgun

Viðmiðunarmörk

Gildi

Grundvöllur

Hámarksafrakstur

FMSY

0.09

Fpa

MSY Btrigger

7 094

Bpa

Varúðarnálgun

Blim

5 105

Meðaltal hrygningarstofns 2003–2005

Bpa

7 094

Blim × e1.645σ, σ = 0.2.

Fpa

0.09

Hæsta veiðidánartala þar sem líkurnar á því hrygningarstofn fari niður fyrir Blim eru < 5%

Flim

0.19

Fiskveiðidánartala sem í framreikningum leiðir til þess miðgildi hrygningarstofns er við Blim

Horfur

Blálanga. Forsendur fyrir stofnmatsárið og í framreikningum.

Breyta

Gildi

Athugasemdir

Afli (2026)

743

jan-mar: landaður afli jan-mar 2026; apr-sep: landaður afli apr-sep 2025; okt-des: afli miðað við FMSY; í tonnum

Hrygningarstofn (2027)

14 878

Úr framreikningum stofnmats; í tonnum

Nýliðun 2 ára (2027)

3 288

Meðaltal nýliðunar síðustu þrjú árin; í þúsundum

Nýliðun 2 ára (2028)

3 288

Meðaltal nýliðunar síðustu þrjú árin; í þúsundum

F10-20 (2026)

0.034

Fiskveiðidánartala sem svarar til áætlaðs heildarafla árið 2025

Blálanga. Áætluð þróun stofnstærðar hrygningarstofns (tonn) miðað við veiðar samkvæmt markmiðum um hámarksafrakstur

Grunnur

Afli (2026/2027)

Veiðidánartala (2026/2027)

Hrygningarstofn (2028)

% Breyting á hrygningarstofni1)

% Breyting á ráðgjöf2)

Hámarksafrakstur

1 898

0.092

15 377

3

522

1) Hrygningarstofn árið 2028 miðað við hrygningarstofn 2027

2) Ráðlagt aflamark fyrir 2026/2027 miðað við ráðlagt aflamark 2025/2026 (307 t)

Ráðlagt aflamark fyrir fiskveiðiárið 2026/2027 er hærra en ráðgjöf síðasta fiskveiðiárs vegna endurskoðunar á grundvelli ráðgjafar og uppfærðum viðmiðunargildum (ICES, 2025).

Gæði stofnmats

Uppfærð stofnmatsaðferð fyrir blálöngu var samþykkt á rýnifundi Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES, 2025). Byggir ráðgjöfin nú á tölfræðilegu stofnmatslíkani, Gadget, sem nýtir upplýsingar um stærðarsamsetningu í stofni og í afla. Gert er ráð fyrir að þessi breyting auki gæði stofnmatsins og styrki grunn ráðgjafarinnar með því að endurspegla betur breytingar í stofnþróun, meðal annars með því að taka tillit til breytinga á aldurs- og stærðarsamsetningu stofnsins. Þetta er fyrsta árið sem ráðgjöfin byggir á þessari uppfærðu aðferðafræði.

Aðrar upplýsingar

Veiðar á svæðum þar sem blálanga safnast saman til hrygningar geta leitt til þess að hrygningarstofn minnki ár frá ári. Hafrannsóknastofnun leggur því til áframhaldandi verndun hrygnandi blálöngu með lokun veiðisvæða á hrygningartíma.

Ráðgjöf, aflamark og afli

Blálanga. Tillögur um hámarksafla, ákvörðun stjórnvalda um aflamark og afli (tonn).

Fiskveiðiár

Tillaga

Aflamark

Afli Íslendinga

Afli annarra þjóða

Afli alls

2010/2011

6  467

6  467

2011/2012

4  000

4  242

4  242

2012/2013

3  100

2  999

2  999

2013/2014

2  400

2  400

1  655

6

1  661

2014/2015

3  100

3  100

1  900

105

2  005

2015/2016

2  550

2  550

1  097

10

1  107

2016/2017

2  032

2  032

636

3

639

2017/2018

1  956

1  956

549

4

553

2018/2019

1  520

1  520

464

7

471

2019/2020

483

483

371

5

376

2020/2021

406

406

365

12

377

2021/2022

334

334

369

3

372

2022/2023

259

259

477

10

487

2023/2024

259

259

389

9

398

2024/2025

307

307

452

3

455

2025/2026

307

307

2026/2027

1  898

Heimildir og ítarefni

ICES. 2025. Benchmark Workshop on Selected Deep-Sea Fisheries Stocks (WKBDEEP). ICES Scientific Reports. 7:24. 148 pp. https://doi.org/10.17895/ices.pub.28882295

Stofnmatsskýrslur Hafrannsóknastofnunar 2026. Blálanga. Hafrannsóknastofnun 12. júní 2026.